Fréttablaðið - 31.01.2020, Qupperneq 30
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Þá er loks komið að síðasta degi hins endalausa janúarmánaðar. Þessi fyrsti
mánuður ársins hefur verið ansi
litríkur og það hefur ekki verið
neinn skortur á slæmum fréttum,
svo það er kannski ágætt að enda
mánuðinn á einhverju upp-
lífgandi.
Í gær var byrjað að sýna
almenningi pöndutvíburana sem
fæddust í dýragarðinum í Berlín í
ágúst á síðasta ári og í tilefni af því
fengu blaðamenn að sjá þá daginn
áður. Þá voru þessar skemmtilegu
myndir teknar.
Litlu pöndustrákarnir Meng
Xiang og Meng Yuan, einnig
þekktir sem Pit og Paulie, eru
fyrstu pöndurnar sem fæðast í
Þýskalandi. Samt sem áður teljast
þeir kínverskir og það verður að
f lytja þá til Kína innan örfárra
ára.
Móðir þeirra, Meng Meng, og
pabbi þeirra, Jiao Qing, eru í láni
frá Kína og hafa búið á svæði sem
hefur kostað 10 milljón evrur
að standsetja síðan árið 2017.
Tvíburarnir virtust kunna vel að
meta nýju vistarverurnar.
Pöndutvíburar frumsýndir
Almenningur getur loks farið og séð pöndutvíburana Meng Xiang og Meng Yuan, sem fæddust í
dýragarðinum í Berlín í ágúst á síðasta ári. Þeir eru fyrstu pöndurnar sem fæðast í Þýskalandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kannaðir verða menningarheimar Kópavogs og lítt þekktari staðir í bænum.
Langar þig að upplifa Kópavog upp á nýtt? Á kvennagöng-unni Góðir grannar kynnir
Jo Van Schalkwyk öðrum konum
hverfið sitt, menningu og stað-
hætti í Kópavogi frá sínu einstaka
sjónarhorni. Kannaðir verða
menningarheimar Kópavogs, eitt
af íþróttasvæðum bæjarins og
aðrir lítt þekktir staðir athugaðir
undir líf legri leiðsögn Jo Van
Schalkwyk.
Jo van Schalkwyk hefur varið
helmingnum af 46 ára ævi sinni á
Íslandi. Hún býr nú 34 breiddar-
gráðum fjarri Suður-Afríku,
þar sem hún kom í heiminn. Jo
hefur unnið í fiskvinnslu, ferða-
mennsku, við kennslu og tekið
þátt í stjórnmálum á Íslandi. Hún
er með mastersgráðu í alþjóða
stjórnmálahagfræði.
Kópavogur er heimabær Jo, þar
sem hún dýfir tánum í kalda potta
og reitir af sér brandara á uppi-
stöndum. Hún er þriggja barna
móðir sem elskar lífið í Kópa-
vogi, sem hún deilir einnig með
tveimur köttum og eiginmanni.
Orðasmíð eru hennar helsta
áhugamál.
Það er Söguhringur kvenna
sem býður öllum konum að slást
í hópinn með Jo. Söguhringur
kvenna er vettvangur fyrir konur
þvert á samfélagið til að hittast
og tengjast í gegnum samveru og
listræna tjáningu. Jafnframt er
boðið upp á hagnýta fræðslu um
menninguna og samfélagið sem
við búum í. Öllum konum er vel-
komið að taka þátt hvenær sem er.
Söguhringur kvenna er sam-
vinnuverkefni Borgarbókasafns
Reykjavíkur og W.O.M.E.N., Sam-
taka kvenna af erlendum uppruna
á Íslandi. Dagskrá Söguhrings
kvenna vetur/vor 2020 er styrkt af
félagsmálaráðuneytinu.
Hist er við Kópavogskirkju á
sunnudaginn, 2. febrúar, klukkan
13.30 til 15. Komið með gamalt
brauð fyrir endurnar og vel skó-
aðar. Þátttaka er ókeypis.
Konur ganga
saman í Kópavogi
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R