Fréttablaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 40
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
YFIR KAFFISOPA
UPPGÖTVUÐUM VIÐ
AÐ VIÐ ERUM MIKIÐ AÐ SPILA
MEÐ SAMA TÓNLISTARFÓLKINU
MEÐ HINUM ÝMSU BAROKK-
HÓPUM VÍÐS VEGAR UM
EVRÓPU.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
31. JANÚAR 2019
Hvað? Velferðarkaffi
Hvenær? 08.15
Hvar? Félagsstarfinu í Hæðargarði
31
Fjallað er um þjónustu velferðar
sviðs frá ýmsum hliðum.
Hvað? Málþing um náttúruvernd á
miðhálendinu
Hvenær? 14.00-17.00
Hvar? Frægarður, húsnæði Land-
græðslunnar í Gunnarsholti, Rangár-
völlum
Umræður um áherslur og sjónar
mið varðandi hálendisþjóðgarð.
Hvað? Unga fólkið á Myrkum
Hvenær? 18.00
Hvar? Kaldalón, Hörpu
Flutningurinn verður í höndum
kammersveitar skipaðri ungum
tónlistarmönnum frá Conserva
torio di „Santa Cecilia“ í Róm og
Tónlistarskóla Kópavogs.
Hvað? Tangó praktíka og milonga
Hvenær? 21.00-24.00
Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg
Argentínskur tangó dunar.
Hvað? Intertwined / Myndlistar-
sýning
Hvenær? 19.00-22.00
Hvar? Deiglan, Akureyri
Çağlar Tahiroğlu, gestalistamaður
Gilfélagsins, sýnir afrakstur dvalar
sinnar í gestavinnustofunni og í
Lýðveldinu Kongó.
Hvað? Láttu mig reyna … heyrirðu í
mér núna?
Hvenær? 20.00
Hvar? Norræna húsið
Heiða Árnadóttir f lytur verk sem
sérstaklega voru samin fyrir hana.
Elfa Rún Kristinsdóttir f iðluleikari, Barokkbandið Brák og Francesco Corti semballeikari koma fram á tónleikum í Hörpu á
sunnudaginn, 2. febrúar. Yfirskrift
tónleikanna er Frumkvöðlar úr for
tíð og nútíð.
Íslenskt verk frumflutt
Á efnisskránni eru klassísk verk
sem ekki hafa verið leikin oft opin
berlega hér á landi, sum jafnvel
aldrei, og nýtt íslenskt verk. „Við
leikum tvöfaldan konsert fyrir
fiðlu og sembal eftir Joseph Haydn
sem ég veit ekki til að hafi verið
spilaður hér áður. Ég hef einu sinni
heyrt hann spilaðan á tónleikum
erlendis og það var fyrir fimmtán
árum,“ segir Elfa Rún, sem er list
rænn stjórnandi tónleikanna og
leiðandi í Brák. „Á efnisskrá eru
einnig tvær strengjasinfóníur eftir
Carl Philipp Emanuel Bach. Þær eru
mjög skemmtilegar og afar krefj
andi í f lutningi. Við leikum líka
tríó sónötu eftir Johann Friederich
Fasch, sem er örugglega f lutt hér á
landi í fyrsta sinn. Á tónleikunum
verður svo frumflutt verk eftir Hlyn
A. Vilmars sem var pantað sérstak
lega fyrir tónleikana.“
Einn fremsti
semballeikari heims
Elfa Rún og semballeikarinn Fran
cesco Corti kynntust þegar þau
unnu bæði fyrstu verðlaun í alþjóð
legu Bachkeppninni í Leipzig árið
2006. Hún hefur búið í Berlín í
þrettán ár, er margverðlaunaður
fiðluleikari og hefur komið fram
á tónleikum víða um heim, ýmist
sem einleikari, konsertmeistari
eða f lytjandi kammertónlistar.
Hann er einn fremsti semballeikari
heims og spilar um allan heim en
gegnir einnig prófessorsstöðu við
Schola Cantorum í Basel. „Ári eftir
keppnina í Leipzig spiluðum við
nokkrum sinnum saman, meðal
annars á tónleikum hér á Íslandi,
en hittumst síðan ekki aftur fyrr en
á tónlistarhátíð í Þýskalandi fyrir
tveimur árum þar sem við spiluð
um sitt með hvorum hópnum. Yfir
kaffisopa uppgötvuðum við að við
erum mikið að spila með sama tón
listarfólkinu með hinum ýmsu bar
okkhópum víðs vegar um Evrópu.
Þá datt mér í hug að bjóða honum að
koma hingað og hann þáði boðið,“
segir Elfa Rún.
Þessir áhugaverðu tónleikar
Brákar, Elfu Rúnar og Francesco
Corti hefjast klukkan 16.00 í Norð
urljósasal Hörpu.
Verk sem sjaldan heyrast
Í Hörpu verða flutt verk sem ekki hafa verið leikin oft hér á landi, sum aldrei, og
nýtt íslenskt verk. Elfa Rún Kristinsdóttir er listrænn stjórnandi tónleikanna.
Elfa Rún Kristinsdóttir er listrænn stjórnandi tónleikanna Frumkvöðlar úr fortíð og nútíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KVIKMYNDIR
Little Women
Leikstjórn: Greta Gerwig
Aðalhlutverk: Saoirse Ronan,
Emma Watson, Florence Pugh,
Eliza Scanlen, Laura Dern, Timo-
thée Chalamet og Meryl Streep
Saga Louise May Alcott, Little
Women, sem fjallar um March
systurnar fjórar, hefur heillað les
endur allt frá útkomu árið 1868 og
ótal kvikmyndir og sjónvarpsseríur
hafa verið gerðar eftir henni.
Little Women er kvennasaga.
Karlmennirnir í sögunni eru unn
ustar og eiginmenn sem eru í skugga
sterkra kvenna sem leggja undir sig
sögusviðið. Það er ekki undarlegt að
Greta Gerwig hafi stokkið á þetta
efni og sett eigið handbragð á það.
Aðalpersóna Little Women er Jo
March sem þráir að verða rithöfund
ur og þarf að hafa mikið fyrir því að
ná takmarki sínu. Það er þessi þrá Jo
sem Gerwig gerir að útgangs punkti
myndarinnar og blandar inn í hana
á afar fimlegan hátt hugleiðingum
um stöðu kvenna á tíma þegar þær
þóttu best geymdar í hjónabandi.
Sterkar konur
Saoirse Ronan er hreint dásamleg í hlutverki Jo og er tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Hlutverk Jo er stjörnuhlutverk
og Katharine Hepburn og Winona
Ryder gerðu sér mat úr því í stór
góðum kvikmyndum frá 1933 og
1994, og sú síðarnefnda var tilnefnd
til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn.
Í þessari kvikmyndagerð sögunnar
leikur Saoirse Ronan hina sérlund
uðu og sjálfstæðu Jo March. Ronan
er gríðarlega hæfileikarík leikkona
og skapar hér dásamlega og töfrandi
aðalpersónu sem er skapmikil og
hvatvís og rekin áfram af takmarka
lausri þrá til að skapa.
Í fyrri kvikmyndum um systurn
ar fjórar hefur aðaláherslan verið á
gagnkvæma væntumþykju og sam
stöðu systranna en Gerwig, sem
skrifaði handritið, beinir sjónum að
togstreitu milli Jo og systur hennar
Amyar sem finnst hún stöðugt hafa
staðið í skugga Jo. Florence Pugh
leikur Amy með miklum ágætum
og Emma Watson og Eliza Scanlen
eru sömuleiðis í fínu formi sem Meg
og Beth.
Samleikur leikkvennanna er afar
minnisstæður, þær skapa nánd
og áhorfandinn finnur næstum
áþreifanlega hversu sterk um
böndum systurnar bindast. Laura
Dern er sannfærandi sem hin ást
ríka móðir þeirra og Timothée
Chalamet í hlutverki Laurie skapar
ungan ráðvilltan mann sem er í leit
að tilgangi. Meryl Streep bregst svo
vitanlega ekki í kómísku hlutverki
hinnar nöldursömu March frænku.
Hér eru atriði sem unnendur bók
arinnar gjörþekkja, eins og þegar
systurnar fara með jólamatinn
til fátæku móðurinnar, systurnar
ásamt móðurinni að lesa bréf frá
föðurnum, Jo og Laurie á skautum
að bjarga lífi Amyar og Beth yfir
komin af þakklæti vegna píanós
ins sem herra Laurence hefur gefið
henni. Þannig er Gerwig trú sög
unni sem hún er að segja um leið og
hún setur sitt eigið mark á myndina.
Kvikmyndataka, búningar og tón
list eru svo til fyrirmyndar.
Myndin er tilnefnd til sex Óskars
verðlauna en Gerwig er ekki til
nefnd til verðlaunanna fyrir leik
stjórn sína, eins og hún hefði átt
skilið, enda myndin ein af bestu
kvikmyndum síðasta árs.
Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Falleg og heillandi kvik-
mynd um sterkar og sjálfstæðar systur.
Allir standa sig með prýði en Saoirse
Ronan sýnir stórleik í hlutverki Jo.
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING