Fréttablaðið - 31.01.2020, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@
frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
JÚÚ, ÞETTA ER Í
GEGNUM MÍN SAM-
BÖND. ÉG Á GÓÐA VINI ÞARNA
OG ÆTLA AÐ LEIÐA HÓPINN Á
ÞESSAR SLÓÐIR.
ÉG HEF NÁTTÚRLEGA
STARFAÐ MEÐ
BRESKUM ÍHALDSMÖNNUM
MJÖG LENGI OG ÞETTA ERU
VINIR MÍNIR SEM HAFA STAÐIÐ
Í ÞESSU.
Tryggðu þér áskrift
Í KVÖLD
KL. 20:10
KAUPTU STAKAN LEIK:
Bretland gengur formlega úr Evrópusambandinu í dag þannig að hvernig sem á það er litið verður 31. janúar 2020 söguleg dagsetning héðan í frá.
Hvort fólk harmi eða fagni hinu
stóra Brexit-skrefi dagsins ræðst
vitaskuld fyrst og fremst af því úr
hvaða átt það horfir á málið og flest-
ir f lugu þeir til London frá hægri,
Íslendingarnir sem í gær héldu í
leiðangur til þess að fagna Brexit
með þarlendum.
„Þetta er svona sameiginlegt
ferða lag. Þarna eru félagar úr Heims-
sýn, Félagi Sjálfstæðismanna um
fullveldismál, og svo bara svona
Sjálfstæðismenn eins og ég sem
er bara að fara til þess að vera við-
staddur þennan sögulega atburð,“
segir alþjóðastjórnmálafræðingur-
inn Jón Kristinn Snæhólm sem var
framarlega í f lokki íslenska föru-
neytisins sem hélt utan í gær.
Taka tvö
„Ég var þarna líka í apríl þegar við
héldum að við værum að ganga út
þannig að þetta er tilraun númer tvö
hjá mér til að verða vitni að Brexit.
Þetta er stórt mál í Bretlandi og
aðdragandinn búinn að vera
gríðarlegur,“ heldur Jón Krist-
inn áfram og rekur fyrstu skref
hinnar langdregnu útgöngu til
Margrétar Thatcher sem hann
hefur að vonum í miklum
metum. „Þetta er búið að kljúfa
Íhaldsflokkinn í tugi ára.“
Sögulegur Brexit-vinafundur
Jón Kristinn Snæhólm og Boris Johnson hafa báðir Winston Churchill í hávegum og telja Brexit í anda stríðsforsætisráðherrans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Boris Johnson verður aðal-
gæinn og stjarna dagsins í
Brexit-fagnaðarlátunum þar
sem íslenskir aðdáendur hans
ætla ekki að láta sig vanta.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Vígreifur hópur
Íslendinga sem er í
London til þess að
fagna Brexit nýtur
góðs af því að með í
för er alþjóðastjórn-
málafræðingurinn
Jón Kristinn Snæ-
hólm en tengingar
hans við Íhaldsflokk-
inn opna íslenska
klappliðinu leið inni í
Westminster.
Brexit-hópurinn frá Íslandi telur
fyrst og fremst félaga í Heimssýn,
hreyfingu Sjálfstæðissinna í Evr-
ópumálum, sem flugu utan í gær til
þess að vera örugglega mættir í tæka
tíð á Brexit-hátíðarhöldin á Parlia-
ment Square í London í kvöld.
Þeir munu síðan einnig njóta
þess að hafa Jón Kristin í þeirra
útgönguröðum um helgina
þótt hann komi ekki beint
að skipulagi ferðarinnar.
Íhaldshaukar í horni
„Okkur er boðið inn
í Romford-kjördæmi
í Norður-London og
gleðskap í höfuðstöðv-
u m Íhaldsf lok k sins
þar en húsið heitir Lady
Thatcher House,“ segir Jón
Kristinn en Andrew Rosin-
dell, þingmaður Romford,
er gamall vinur Jóns og tíður
gestur á Íslandi. „Júú, þetta er í
gegnum mín sambönd. Ég á góða
vini þarna og ætla að leiða hópinn
á þessar slóðir.“
Og slíkur höfðingi er Íslands-
vinurinn í Romford heim að sækja
að „síðan á laugardeginum ætlar
Andrew að fara með okkur í ferð og
sýna okkur House of Commons og
lávarðadeildina. Það er meiri háttar
dæmi að sjá þingið sem er náttúrlega
vagga lýðræðis í heiminum.“
Góðra Brexit-vinafundur
„Ég hef náttúrlega starfað með
breskum íhaldsmönnum mjög lengi
og þetta eru vinir mínir sem hafa
staðið í þessu,“ segir Jón Kristinn og
nefnir sérstaklega, auk Romfords,
„hugmyndafræðinginn að Brexit“,
eins og hann kallar vin sinn Daniel
Hannan.
„Hann var búinn að vera í tuttugu
ár á Evrópuþinginu og hefur verið
með málefnaleg rök að hætti Jóns
Sigurðssonar gegn Dönum á meðan
Nigel Farage var þessi æsingamaður
og popúlisti,“ segir Jón Kristinn og
bætir við að Hannan hafi komið
fyrst til Íslands fyrir tuttugu árum,
hann lesi Heimskringlu og að vinir
hans hafi haldið honum steggjapartí
á Íslandi. „Þannig að tengslin eru svo
mikil að ég er bara að samfagna með
þessu fólki.“ toti@frettabladid.is
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð