Fréttablaðið - 10.12.2019, Side 11
Í hartnær heila öld höfum við staðið þétt við bakið á þjóð-inni og brugðist við þörfum
hverju sinni. Við erum fjölmennt
félag sjálf boðaliða sem starfar
eftir alþjóðlegum hugsjónum með
mannúð að leiðarljósi. Við erum
Rauði krossinn á Íslandi.
Á fyrstu áratugum tuttugustu
aldar var mikil þörf á aukinni heil-
brigðisþjónustu og þekkingu fólks
á mikilvægi heilbrigðis og hrein-
lætis. Hið nýstofnaða Rauða kross
félag fyllti að hluta til í skarðið með
þjálfun hjúkrunarfólks, kaupum
og rekstri sjúkrabíla, fræðslu um
hreinlæti, kennslu í skyndihjálp,
blóðsöfnun og rekstri sjúkraskýla í
verstöðvum landsins. Síðar bættist
við rekstur sjúkrahótels, hjálpar-
tækjabanka fyrir fólk með fötlun
og rekstur sumardvalarheimila
fyrir börn.
Heilbrigðisyfirvöld og háskólar
hafa síðar tekið við mörgum þess-
ara nauðsynlegu viðfangsefna, en
félagið heldur þó enn úti stórum
f lota sjúkrabíla um allt land og
fræðir þjóðina um skyndihjálp.
Börn og ungmenni hafa stutt
okkur dyggilega frá upphaf i,
m.a. með mikilvægri f járöf lun
með sölu merkja á öskudag og
hafa haldið hlutaveltur fyrir utan
verslanir lengur en nokkurt okkar
man.
Hlutverk félagsins í almanna-
vörnum breyttist á einni nóttu við
upphaf Vestmannaeyjagossins í
janúar 1973 þegar fjölmargar fjölda-
hjálparstöðvar voru opnaðar undir
merkjum félagsins. Sjálf boðaliðar
tóku að sér gríðarmikið hjálparstarf
næstu árin í Eyjum og um allt land.
Síðustu áratugi hafa sjálf boðaliðar
brugðist mörg þúsund sinnum við
hvers kyns neyð með fjölbreyttum
stuðningi við þolendur náttúru-
hamfara, hópslysa og annarra
atburða. Við búum að vel þjálfuðum
sjálf boðaliðum um allt land sem
eru búnir undir viðbrögð við nátt-
úruhamförum hvenær sem er og
hvar sem þær verða.
Rauði krossinn hefur safnað
fötum hér á landi í meira en 80 ár.
Fyrir miðja síðustu öld hófum við
söfnun fyrir fjölskyldur sem bjuggu
við fátækt og úthlutum enn fatnaði
til þeirra sem á þurfa að halda. Í
dag gerum við öllum íbúum lands-
ins kleift að „gefa í Rauða krossinn“
þann fatnað sem ekki er lengur þörf
fyrir. Afrakstur söfnunarinnar er
ómetanleg fjáröflun fyrir hjálpar-
starf félagsins hér á landi og erlend-
is.
Rauði krossinn á Íslandi hefur
tekið þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi
Rauða kross hreyfingarinnar síðan
1945 þegar við sendum okkar fyrsta
sendifulltrúa til að sinna hjálpar-
starfi í Evrópu á tímum ólýsanlegra
hörmunga sem höfðu þá varað í tæp
sex ár. Mörg hundruð hjálparstarfs-
menn hafa síðan haldið út í heim til
að sinna t.d. heilbrigðisþjónustu,
vatns- og hreinlætisverkefnum,
dreifingu hjálpargagna og sálræn-
um stuðningi. Áhrifa okkar gætir
víða um heim þar sem við höfum
komið fólki til aðstoðar á tímum
styrjalda, náttúruhamfara og ann-
arra þrenginga, oft á svæðum sem fá
önnur samtök hafa aðgengi að eða
geta jafnvel ekki starfað á.
Á hverjum degi styðja sjálf boða-
liðar Rauða krossins við mikinn
fjölda fólks hér á landi. Heim-
sóknavinir heimsækja fólk sem býr
við einsemd, heilbrigðismenntaðir
sjálf boðaliðar veita skaðaminnk-
un og heilbrigðisaðstoð fyrir fólk
með vímuefnavanda, aðrir starfa í
athvarfi fyrir heimilislausar konur,
veita ráðgjöf og stuðning í Hjálpar-
síma Rauða krossins 1717, veita
fjölbreytta þjónustu við flóttafólk,
innflytjendur og umsækjendur um
alþjóðlega vernd og eru alltaf til
staðar, allri þjóðinni til heilla.
Við í Rauða krossinum horfum
bjartsýn til framtíðar. Rauði kross-
inn gengur um þessar mundir í
gegnum breytingar í samræmi við
nýjar hnattrænar áskoranir. Lands-
menn munu verða varir við aukna
áherslu okkar í umhverfis- og
loftslagsmálum, aukinn fjölbreyti-
leika í starfi okkar vegna breyttrar
samsetningar þjóðarinnar, aukna
áherslu á jafnrétti og virkara samtal
við ýmsa hópa samfélagsins.
Ég vil nota tækifærið og bjóða
ykkur öllum að ganga formlega til
liðs við okkur með sjálfboðnu starfi
eða mánaðarlegum fjárstuðningi
Mannvina Rauða krossins.
Til hamingju með afmælið, kæru
Rauða kross félagar.
Til hamingju, landsmenn, með
Rauða krossinn.
95 ár í þágu samfélagsins
Kæra Þórdís Lóa. Þú skrifar á ný um fjármál Reykjavíkur-borgar og lýsir þig reiðubúna
til að veita öðrum ráð um ábyrga
fjármálastjórn. Ekki veit ég um
neinn sem hefur þegið boðið. Við-
reisn skrifaði undir sáttmála eftir
síðustu kosningar þar sem því var
heitið að „greiða niður skuldir“.
Ekki hefur það tekist betur en svo
að skuldir samstæðu borgarinnar
hafa hækkað um heila 24 milljarða
frá síðustu áramótum. Þessar skuldir
eru ekki skáldaðar heldur raunveru-
legar.
Landsþekkt er meðferð borgar-
innar á fjármunum og koma mörg
önnur hugtök upp í hugann en
„ábyrg fjármálastjórn“ þegar við
rifjum upp braggann fyrir hálfan
milljarð, miðlæga stjórnsýslu upp á
fimm milljarða á ári eða nýlegt dæmi
um fundarkostnað í borgarstjórn.
Það síðastnefnda þurfti eitthvað
að endurskoða þar sem tölurnar
stemmdu illa.
Forseti borgarstjórnar og borgar-
fulltrúi Viðreisnar spurði kerfið um
matarkostnað og gleypti tölurnar
umhugsunarlítið. Eins og þú kannski
manst átti fjölgun borgarfulltrúa úr
15 í 23 ekki að kosta krónu. Reyndin
er sú að hún hefur þegar kostað
hundruð milljóna þegar allt er sam-
antekið; launakostnaður, aðstaða og
rekstrarútgjöld. Birtir voru útreikn-
ingar fyrir síðustu kosningar um að
þessi fjölgun myndi ekki kosta borg-
ina neitt. Kannski átti ekki að taka
þessa útreikninga alvarlega?
Mér finnst þú gera lítið úr fimm
ára áætlun meirihlutans fyrir árin
2018-2022 sem lá fyrir fyrir kosning-
ar og segir skuldahækkanir „ekki í
neinum tengslum við raunveruleik-
ann“. Staðreyndin er að lögbundna
fimm ára fjárhagsáætlunin sem lá
fyrir fyrir kosningar gerði ráð fyrir
skuldalækkun.
Eftir að Viðreisn kom til liðs við
vinstri meirihlutann hefur skulda-
aukningin vaxið og er nú gert ráð
fyrir 64 milljörðum meiri skuld-
setningu borgarinnar í lok kjörtíma-
bilsins en kynnt var fyrir kosningar.
Þetta er allt skjalfest og birt af ykkur
sjálfum á reykjavik.is og því aðgengi-
legt þeim sem vilja kynna sér málið.
Og svo talar þú um aðhald í rekstri.
Sextán prósent hærri rekstrarkostn-
aður borgarinnar á 2 árum er ekki
aðhald. Hærri gjöld borgarinnar
eru líka óhófleg og leggjast þungt á
rekstraraðila og heimili. Það er stað-
reynd. Ég er með eitt einfalt ráð til
þín, Lóa: Það er að horfast í augu við
staðreyndirnar. Þetta er hollráð sem
mun reynast þér vel.
Bréf til Lóu
Eyþór Arnalds
oddviti Sjálf-
stæðisflokks-
ins í Reykjavík
Sveinn
Kristinsson
formaður
Rauða krossins
á Íslandi Sextán prósent hærri rekstr-
arkostnaður borgarinnar á 2
árum er ekki aðhald.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
1
1
4
H
y
u
n
d
a
i
i2
0
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
Nýr og spennandi
Hyundai i20.
Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20.
Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun
aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér
fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20.
Verð frá:
2.390.000 kr.
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu
ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára
verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9