Fréttablaðið - 10.12.2019, Side 20

Fréttablaðið - 10.12.2019, Side 20
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Í stað þess að forðast fínu veislurnar væri kannski sniðugt að borða aðeins minna og fara færri ferðir að jólahlaðborðinu. Einnig er ágætt ráð að borða léttari mat á milli veislnanna. Veljið frekar kalkún af jólaborðinu, roast beef eða annað magurt kjöt. Einn- ig er fínt að fá sér graflax og síld. Setjið ríkulega af grænmeti á disk- inn og ávexti ef þeir eru til staðar. Það er fínt að velja rósakál, súrkál eða rauðkál. Einnig hrásalat ef það býðst. Núna er tími fyrir klem- entínur og það má borða mikið af þeim, sömuleiðis góðu jólaeplin. Eftir góða jólaveislu er fínt að fara í göngutúr og brenna nokkrum hitaeiningum í leiðinni. Mörgum finnst þeir melta betur þungan mat með því að fara í röska göngu. Jólamatur getur verið bæði saltur og feitur sem er ekki gott í magann. Borðaðu hollan og góðan morgunmat sama dag og þú ert að fara á jólahlaðborð. Alls ekki spara að borða þann daginn því ekki er gott að koma mikið hungraður í veislusal þar sem borðin svigna undan kræsingunum. Ef fólk vill varast að borða of mikið er sniðugt að velja lítinn disk. Þá er minni hætta á að hlaða of miklu á diskinn og borða yfir sig. Takið ykkur góðan tíma til að borða og þá verður meltingin betri. Það þarf enginn að stressa sig yfir jólamatnum og það má taka hlé á milli ferða. Athugið að jólaglögg, jólabjór og léttvín er ríkt af kaloríum. Drekkið mikið af vatni eða sódavatni með áfenginu. Sparið sæta eftirrétti. Á milli þess sem farið er í jóla- veislur þar sem mikill matur er á borðum er ágætt að borða léttan mat. Hafið fisk oft í viku, borðið mikið af ávöxtum og hnetur í millimál. Aðventan er auðvitað til að njóta góðs matar en líka til að eiga skemmtilegar stundir með fjölskyldunni, til dæmis fara í göngutúr og skoða jólaljósin hjá nágrönnunum eða í miðbænum. Ef maður reynir að koma til mót- vægis við feitan mat með göngu- túrum verður samviskan betri og kílóin hrannast síður upp á vigtinni. Hér eru tvær uppskriftir af hollu góðgæti. Nokkur góð ráð fyrir léttari jól Desember er óneitanlega mánuður þegar fólk leyfir sér meira en venjulega í mat og drykk. Jólaveislur eru margar og það getur verið erfitt að halda jafnvægi á vigtinni. En hvað er til ráða? Kalkúnn er hollur og fitu- lítill matur sem er góður kostur á jólum. NORDICPHOTOS/ GETTY Konfekt með döðlum og kókos. Pistasíukaramellur með chilli og hunangi Uppskriftin gefur 20 karamellur og hver og ein er 85 hitaeiningar 200 g ósaltaðar pistasíuhnetur 6 msk. púðursykur 4 msk. hunang 2 tsk. chilli-duft ½ tsk. cayennepipar Grófhakkið pistasíurnar og ristið þær síðan á þurri pönnu. Bætið púðursykri við og látið bráðna en bætið þá við hunangi og kryddi. Látið malla í 2-3 mínútur þar til blandan þykknar en hellið þá á bökunarpappír og kælið. Skerið í bita. Konfekt með döðlum og hnetum Um það bil 35 kúlur 85 hitaeiningar hver kúla 100 g ósaltaðar kasjúhnetur 70 g heslihnetur 13 döðlur 3 msk. kakó 1 tsk. vanillusykur 50 g kókosmjöl 1 tsk. kanill Setjið heslihnetur í ofnskúffu í 140°C heitan ofn í 15-20 mínútur. Fjarlægið húðina af hnetunum. Fjarlægið steininn úr döðlunum. Setjið döðlur, hnetur, kakó og vanillusykur í matvinnsluvél og hrærið þar til að úr verði þykkt deig. Vætið hendurnar og mótið kúlur og veltið þeim síðan upp úr kókosmjöli sem kanill hefur verið hrærður saman við. Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handriti að skáldsögu fyrir unglinga til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2020. Skilafrestur er til og með 10. janúar. Allar upplýsingar á www.forlagid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.