Fréttablaðið - 10.12.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 10.12.2019, Blaðsíða 25
Heilkornabrauð er hollur kostur. NORDICPHOTOS/GETTY Það er heilsufarslegur ávinn-ingur af því að auka neyslu á heilkornabrauði og heil- kornavörum. Rannsóknir benda til að neysla á grófu kornmeti dragi úr líkum á hjarta- og æðasjúk- dómum og áunninni sykursýki. Grófa kornmetið veitir auk þess meiri mettunartilfinningu og fyll- ingu og hjálpar þannig til við að halda þyngdinni innan eðlilegra marka. Að auki hefur lengi verið vitað að trefjaríkar vörur hafa góð áhrif á meltinguna og benda rannsóknir til að neysla trefjaríkra vara úr jurtaríkinu dragi úr líkum á krabbameini í ristli. Æskilegt er að landsmenn borði meira af grófum heilkorna- brauðum og heilkornavörum til að stuðla að bættri heilsu. Talað er um heilkornavörur þegar allt sem var upphaf lega í korninu er enn til staðar og ekkert hefur verið sigtað frá eftir mölun. Heilkorna- vörur geta því ýmist innihaldið heil og ómöluð korn eða fínmalað mjöl og eru þá enn öll næringar- efni kornsins til staðar; vítamín, steinefni, trefjar, andoxunarefni og plöntusterólar. Heimild: Embætti landlæknis Heilkornavörur fyrir betri heilsu Þá er runninn upp tími flensu, kvefs og annarra veikinda. Það þarf vart að fjölyrða um mikilvægi þess að klæða sig vel, þvo hendurnar oft vandlega og nota sótthreinsigel, en það er ýmislegt annað sem ágætt er að hafa í huga. n Haltu þig í hæfilegri fjarlægð frá fólki sem er hóstandi eða hnerr­ andi. Sýklar eru fljótir að berast langar leiðir með þessum máta. n Ekki fikta í andlitinu á þér. Þú veist aldrei hvaða sýkla þú kemst í snertingu við, bara með því að taka í hurðarhún eða kveikja á ljósi, svo eitthvað sé nefnt. n Slakaðu á. Streita getur haft hræðileg áhrif á heilsuna og er talin veikja ónæmiskerfið. Rannsóknir hafa til dæmis sýnt að streita dragi úr myndun mót­ efna hjá fólki sem fær flensu­ sprautu. Þrjú góð ráð gegn veikindum Norðmenn keyra til Svíþjóðar til að fara í vínbúð og kaupa ódýrara vín. Áfengisgjöld eru mjög há í Noregi en þar í landi eru miklar áhyggjur af auknum áfengiskaupum frá Svíþjóð þar sem gjöld eru lægri og áfengið ódýrara. Þessi landamæravið- skipti hafa aukist um rúm 15 prósent á síðustu tólf mánuðum. Bent er á að Danir hafi brugðist við slíkum áfengiskaupum þegar þeim fór að blöskra áfengiskaup frá Þýskalandi. Rætt er um að Norðmenn tapi háum fjárhæðum vegna áfengiskaupa í Svíþjóð. Þá hefur lýðheilsustofnun áhyggjur af því að ekki sé hægt að vita hversu mikils víns Norðmenn neyta þar sem engin stjórn er á sölunni. Áfengisgjöld í Danmörku og Svíþjóð eru mun hóf legri en í Noregi. Þá segja bjórframleið- endur að áfengisgjöldin skerði mjög samkeppni þeirra við önnur lönd, að því er kemur fram í Dagbladet. no. Talið er að níu af hverjum tíu viðskiptavinum í vín- búðinni í Strömstad í Svíþjóð séu Norðmenn enda liggur bærinn nálægt landamærunum. Samkvæmt nýrri norskri rannsókn drekka þrír af hverjum fjórum fullorðnum alkóhól um helgar. Þá kemur fram að karlar drekka meira en konur. Um 60 prósent aðspurðra drekka áfengi einn dag um helgar en um 30 pró- sent sögðust drekka tvo daga um helgar. Karlmenn drekka frekar bjór á meðan konur fá sér léttvín. Tapa miklu á háu áfengisgjaldi Y F I R F A N N H V Í T A J Ö R Ð J Ó L A T Ó N L E I K A R Í H Ö R P U 13. D E S E M B E R Pálmi Gunnarsson tix.is/palmi FÓLK KYNNINGARBLAÐ 11 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.