Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Hauks Arnar Birgissonar BAKÞANKAR Dreifðu greiðslum, borgaðu eftir jól siminnpay.is FRÍTT KAFFI Í DESEMBER Ég er svo saddur! Samt er ég bara búinn að fara í þrjú jólaboð. Það eru enn tvær vikur til jóla svo ekki verður hjá því komist að fara í nokkur boð til viðbótar. Borða meira f lesk. Síðustu þrjá daga hef ég borðað pörusteik í öll mál. Það getur ekki verið hollt en hún er bara svo góð. Ég ræð ekki við mig. Ég gæti aldrei verið vegan, þó ekki væri nema af þessari ástæðu. Ég er þegar byrjaður að upp- lifa kulnun í neyslu og hugsa til þess að sjálf jólin eru eftir. Hádegishittingar, kökuboð og kvöldverðir. Dag eftir dag. Hugtakið „allt er gott í hófi“ fær nýja merkingu. Hófin eru mörg og allt sem er á veislu- borðunum er gott. Óhófið hefur hins vegar gert það að verkum að mér líður eins og fylltum kalkúni sem á aðeins 20 mínútur eftir af eldunartímanum. Þið vitið, rétt áður en lokið er tekið af ofnpottinum og hitinn settur á 250 gráður – svona rétt til að brúna fuglinn í lokin. Það felst samt smá huggun í því að það séu einungis 20 mínútur eftir. Nú tel ég niður dagana þar til mínar mest fyrirgefandi skyrtur hafa snúið við mér bakinu og ég get hafið nýtt og betra líf um áramótin. Kannski þarf maður, eftir allt saman, að stunda fullkomið óhóf yfir jólin – því annars hefur maður enga ástæðu til þess að strengja áramótaheit um mannbætandi lífsstíl. En talandi um óhóf – í guð- anna bænum hættið að setja myndbönd af jólatónleikum inn á samfélagsmiðla. Nú segi ég stopp. Upplifunin er ekki að skila sér í gegnum símann. Treystið mér. Gott í hófi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.