Fréttablaðið - 10.12.2019, Síða 32
Hugmynd að mynd fæðist líka oft út frá litnum eða áferðinni á garninu, segir Loji. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Loji Höskuldsson sýnir fjórtán útsaumsverk á sýningunni Súper lókal í Hverfisgalleríi Hverfisgöt u . Spu rðu r u m efnið sem hann notar
í útsauminn segir hann: „Ég nota
venjulegt garn. Ég hef prófað pólý
ester og bómull en ullin finnst mér
henta best og gefa skemmtilegustu
áferðina. Ég lita ekki sjálfur heldur
kaupi litað garn. Kannski kemst ég
einn daginn á þá skoðun að það sé
algjörlega nauðsynlegt að ég liti allt
saman sjálfur. Hugmynd að mynd
fæðist líka oft út frá litnum eða
áferðinni á garninu. Einhvern tím
ann gaf mamma mér ótrúlega ljótt
garn og úr varð myndin Hlöllabáts
æla í Austurstræti.“
Minningar um Reykjavík
Loji Höskuldsson sýnir útsaumsverk í Hverfisgalleríi. Verkin
byggja á minningum hans um Reykjavík. Segist fá sterk viðbrögð.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Hvetjandi viðbrögð
Spurður hvenær áhugi hans á
útsaumi hafi vaknað segir hann
að það hafi gerst tiltölulega seint.
„Ég var í Listaháskólanum og var
að prófa alls konar hluti, gerði
gjörninga og málaði. Ég var að fara
austur á Seyðisfjörð á tveggja vikna
námskeið og sagði við mömmu að
mig langaði til að gera útsaum. Hún
rétti mér f losnál, sem er nál sem
virkar dálítið eins og rjómaþeytari,
maður þræðir hana og snýr. Þegar
ég fékk þessa nál gjörbreyttust
áherslurnar. Þarna var ég kominn
með tæki sem var millistykki milli
mín og verksins. Árið 2010 fóru
fyrstu verkin að verða til.“
Hann segist fá sterk viðbrögð
við verkunum. „Viðbrögðin ein
kennast af þakklæti og verkin kæta
fólk. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir
viðbrögðin og það hversu vel fólk
tengir við verkin. Þessar viðtökur
virka mjög hvetjandi á mig.“
Góðar minningar
Spurður hvort skilaboð sé að finna í
verkunum segir hann: „Þjóðfélags
rýni er ekki inngangspunkturinn í
verkunum en verður samt stundum
útgangspunktur. Ég gerði eitt sinn
verk sem sýndi fíf labreiðu. Myndin
átti að vera frá útihátíð í Galta
læk, ég vildi hafa bláan lit í henni
og appelsínugulan og svo vildi ég
hafa þar Bónuspoka. Þegar ég var
að gera myndina tilkynnti Bónus
þá ætlan sína að taka plastpoka úr
sölu. Á þeirri stundu breyttist titill
myndarinnar og varð Síðasti Bónus
plastpokinn.
Þessi sýning heitir Súper lókal af
því að þar eru portrett af minning
um mínum um Reykjavík. Ég hef
alltaf verið mjög hrifinn af þessari
borg og hef mikinn áhuga á borgar
skipulagi og arkitektúr.“
Alls kyns vörumerki og heiti eru
áberandi í myndunum, þar á meðal
Kjörís, Hörpusilki og blár Ópal. „Ég
ólst upp í Álf heimunum og Kjörís
myndin er óður til Álf heimaísbúð
arinnar. Ég vann í Hörpu Sjöfn og
fannst málningardollurnar þeirra
mjög f lottar og á nokkrar heima.
Fyrir mér eru þetta góðar minn
ingar,“ segir Loji.Myndin Skólagarður er til sýnis á sýningunni í Hverfisgalleríi.
ÉG ER ÓTRÚLEGA
ÞAKKLÁTUR FYRIR
VIÐBRÖGÐIN OG ÞAÐ HVERSU
VEL FÓLK TENGIR VIÐ VERKIN.
ÞESSAR VIÐTÖKUR VIRKA MJÖG
HVETJANDI Á MIG.
Stjarna féll niður í dómi um
f lutning Óperukórsins á
Sálumessu Verdis, sem birtist í
mánudagsblaði. Gagnrýnandi gaf
fjórar og hálfa stjörnu en ekki þrjár
og hálfa eins og misritaðist. Beðist
er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTTING
Um 160 listamenn sýna verk sín.
Sölusýningin Ég hlakka svo til stendur nú yfir í Ásmundarsal en þar er að finna verk um 160
listamanna. Verið er að endurvekja
gamla hefð en sölusýningar voru
haldnar fyrir jólin í Listvinasalnum
á fimmta áratug síðustu aldar. Þá
voru verk þekktustu listamanna
þjóðarinnar sýnd samhliða verkum
yngri og lítt þekktari listamanna.
Um 500 verk verða til sölu á
sýningunni og hægt verður að
pakka þeim beint í silkiþrykktan
jólapappír. Í Gryfjunni verður sett
upp grafíkverkstæði þar sem valdir
listamenn eru fengnir til að vinna
verk á hverjum degi. – kb
Jólasýning í
Ásmundarsal
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
10. DESEMBER 2019
Tónleikar
Hvað? Jazzkvöld
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex Hostel Skúlagötu
Kvintett danska trompetleikarans
Jakobs Buchanan. Ókeypis inn.
Við pökkum inn jólunum með bestu jólatónlistinni!
Jólastöðin þín
1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING