Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 7. tbl. 22. árg. 13. febrúar 2019 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Gildir alla daga
frá 11–16
ef þú sækir
1.000 KR.
Lítil pizza af matseðli
0,5 lítra gos
1.500 KR.
Pizza af matseðli, miðstærð
0,5 lítra gos
Landnámssetur
í febrúar
sími 437-1600
„Farðu á þinn stað“
Í flutningi Tedda löggu
laugardaginn 23. febrúar kl. 20:00
sunnudaginn 24. febrúar kl. 16:00
Ný sýning á Söguloftinu
Njálssaga Bjarna Harðar
Frumsýning
laugardaginn 2. mars kl. 20:00
Næsta sýning
sunnudaginn 3. mars kl. 16:00
Nánar um dagskrá og miðasala á
landnam.is/vidburdir
UPPSELT
ÖRFÁ SÆTI LAUS
20 ÁR
Á Borgarnes-
blótinu síðast-
liðið laugardags-
kvöld var til-
kynnt um hver
væri útnefnd-
ur Borgnesingur
ársins 2018. Er
þetta í þriðja sinn
sem staðið er að þessar útnefningu á
Borgarnesblótinu. Áður hafa Þor-
steinn Eyþórsson og Guðrún Emilía
Daníelsdóttir hlotið þennan heiður.
Að þessu sinni er það Guðrún Birna
Haraldsdóttir sem er Borgnesingur
ársins. Guðrún á heiðurinn sannar-
lega skilinn en hún hefur í um 22 ár
staðið vaktina við gangbraut á Borg-
arbraut og aðstoðað unga grunn-
skólanemendur að komast heilu og
höldnu yfir götuna á leið sinni í skól-
ann á morgnana. Það var Gunnlaug-
ur A Júlíusson sveitarstjóri sem veitti
Guðrúnu viðurkenninguna. Hann
lýsti Guðrúnu sem glaðværri, já-
kvæðri og hjálpsamri konu og máli
sínu til stuðnings nefndi hann að
hún meira að segja skutli kisum heim
til sín þurfi þær á því að halda. Sjá
nánar bls. 8.
Borgnesingur
ársins
Þeir Daði Freyr og Alexander Dominik voru meðal þeirra sem kynntu sér starfsemi viðbragðsaðila á 112 deginum síðastliðinn
mánudag. Þessir grundfirsku snáðar fengu að máta hjálmana hjá slökkviliðinu í Grundarfirði og líkaði það vel. Sjá nánar bls. 17.
Ljósm. tfk.
Björgunarsveitin Berserkir í Stykk-
ishólmi fékk á dögunum nýjan
harðbotna slöngubát af gerðinni
Ribcraft. „Báturinn er árgerð 2014
og kemur til með að leysa af hólmi
eldri bát sveitarinnar, sem var af
gerðinni Atlantic 21, árgerð 1985,“
segir Kristján Lár Gunnarsson í
samtali við Skessuhorn. „Nýi bát-
urinn er sex metra langur og knú-
inn áfram af tveimur 90 HP Suzuki
utanborðsmótorum sem skila bátn-
um á 35 hnúta hraða. Hann er vel
búinn tækjum til siglingar og á von-
andi eftir að nýtast sveitinni vel,“
segir Kristján Lár. arg
Berserkir fá nýjan bát
Berserkir fjárfestu í nýjum björgunarbáti. Ljósm. sá.
Síðastliðinn föstudag féll lítið snjó-
flóð úr norðvesturhlíðum Akra-
fjalls, ofantil á móts við Reynisrétt.
Frá þessu var greint á Facebook síðu
Björgunarfélags Akraness þar sem
meðfylgjandi mynd var birt. „Þetta
er góð áminning. Snjóflóð geta fall-
ið í hvaða brekku sem er, sé snjór til
staðar og réttar veðuraðstæður, en
algengt í 30-60 gráðu halla.“
Björgunarfélagsfólk notar tæki-
færið og minnir fjallgöngufólk að
vera vakandi fyrir snjóflóðahættu á
ferðum sínum. „Í vetrarferðum er
rétt að vera með snjóflóðaýla, skóflu
og snjóflóðastöng meðferðis. Sleða-
menn og skíðamenn í dag geta líka
verið með bakpoka með innbyggð-
um púða sem blæs upp í þvi skyni að
minnka líkur á að viðkomandi graf-
ist undir flóði lendi hann í því. Síð-
an þarf að kunna að nota búnaðinn
í neyð! Staðreyndin er sú að lífslíkur
þess sem grefst í flóði eru góðar ná-
ist hann upp mjög fljótt (helst innan
15 mínútna). Þá reynir á félagana að
bjarga. Eftir þann tíma fara lífslíkur
hratt minnkandi.“ mm
Spýja féll úr
hlíðum Akrafjalls