Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Markvissari
ferðaþjónusta
Það hefur stundum verið sagt að ef við vitum hvert við ætlum að stefna,
þá komumst við þangað. Að sama skapi er stefnumótun í rekstri fyrirtækja,
stofnana eða atvinnugreina býsna nauðsynleg ef árangur á að nást. Slík
vinna hefst með upplýsingaöflun, leiðir til markmiðasetningar og ákvörð-
unar um þær leiðir sem fara á til að ná tilsettum markmiðum. Þeir sem
hyggja á stefnumótun byrja því á að skoða umhverfi sitt. Skoða hvar þeir
eru, hvert þeir vilja komast og hvernig þeir ætla að ná þangað. Í blaðinu í
dag er ítarlega greint frá verkefni sem undanfarin tvö ár hefur verið í gangi
og snýr að stefnumótun í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Áfangi í því verkefni
var útgáfa skýrslu sem nefnist Áfangastaðaáætlun Vesturlands.
Í rúma tvo áratugi hef ég talsvert fylgst með vexti og viðgangi ferða-
þjónustu á Vesturlandi. Fyrst sem sumarstarfsmaður milli vetra í háskóla-
námi, þá sem atvinnuráðgjafi hjá SSV en eftir það í gegnum starf mitt við
fjölmiðlun. Skessuhorn hefur undanfarna tvo áratugi í samstarfi við ferða-
þjónustuna á Vesturlandi gefið út ferðabækling um landshlutann. Bækling
sem ferðamenn, erlendir sem innlendir, geta nýtt sér til gagns á ferðum
sínum. Óhætt er að segja að atvinnugreinin hafi á liðnum áratug vaxið á
ógnarhraða. Með falli krónunnar samhliða gjaldþroti íslensku bankanna
árið 2008 urðu efnahagslegar forsendur til ferðaþjónustu miklu betri en
áður. Lágt gengi krónunnar var sem vítamínsprauta í ferðaþjónustu líkt og
í tilfelli annarra útflutningsgreina. Menn fóru að grípa þau tækifæri sem í
þessu fólust, nýir gististaðir urðu til, afþreying jókst, veitingageirinn tók
að blómstra og áfram mætti telja. Þannig er nú verulegt hlutfall starfa við
ferðaþjónustu sem víða er orðin burðarstoð í atvinnulífinu.
Stoðkerfi ferðaþjónustunnar hefur einnig verið að eflast, ekki síst vegna
þess að menn vilja beina áherslum og fjármunum til skynsamlegra verk-
efna. Þess vegna fagna ég því að út er komin viðamikil skýrsla sem verð-
ur grunnur að stefnumótun ferðaþjónustu á Vesturlandi. Til efnisöflunar
var leitað til grasrótar íbúa og hagsmunaaðila á Vesturlandi og þeir hafðir
með í ráðum frá upphafi. Menn hafa áttað sig á að ferðaþjónusta sem ekki
er stunduð í sátt við umhverfið á það á hættu að lenda í árekstrum. Ekki
síst fagna ég því að eitt fyrsta áhersluatriðið sem ákveðið hefur verið er að
kortleggja þá áningarstaði og útivistarleiðir sem ferðamenn vilja fara um.
Kanna þarf t.d. vilja landeigenda til uppbyggingar og tryggja að ferðaþjón-
ustan sé þannig rekin í sátt við nærumhverfið. Í viðtali við Margréti Björk
Björnsdóttir, ferðamálafræðing hjá SSV, í Skessuhorni í dag kemur ein-
mitt fram að skoða á burðarþol, aðgengi, áhættu og kostnað við nauðsyn-
lega uppbyggingu áningarstaða og útivistarsvæða. Þegar því verki verður
lokið verður hægt að forgangsraða þessum svæðum varðandi uppbyggingu
og kynningu. Óhætt er að segja að slíka greiningarvinnu hefur skort með
tilheyrandi óhöppum og árekstrum. Nægir að nefna sem dæmi tilviljana-
kenndar gönguferðir ferðafólks á hið formfagra Kirkjufell í slæmu veðri
og afleitri færð eða ólöglega gjaldtöku á bílastæði við Hraunfossa. Slíka
árekstra má koma í veg fyrir og í raun er kortlagning upplýsinga um fjöl-
marga staði forsenda þess að ferðaþjónustan geti byggst upp og þrifist í sátt
við samfélagið.
Vesturland á mikið inni þegar horft er til mögulegrar fjölgunar ferða-
manna. Það væri hins vegar ekkert vit í takmarkalausri fjölgun nema að
undangenginni grunnvinnu eins og þeirri sem hér hefur verið nefnd. Óheft
fjölgun ferðafólks á ýmsa staði myndi einfaldlega kalla á slys og árekstra við
fólkið sem landið byggir. Það er skynsamlegt að koma í veg fyrir Gullfoss-
og Geysistroðning þar sem magnið er fyrir löngu farið að bitna á upplifun
gesta af þessum stöðum.
Magnús Magnússon
Í Héraðsdómi Vesturlands síðast-
liðinn mánudag var dæmt í máli
sem Hús og lóðir ehf. höfðuðu
á hendur sveitarfélaginu Borg-
arbyggð. Krafa stefnanda var að
viðurkennd yrði með dómi bóta-
skylda sveitarfélagsins vegna tjóns
sem hlaust af byggingarleyfum
sem Borgarbyggð gaf út til Húss
og lóða ehf. fyrir nýbyggingar að
Borgarbraut 57 og 59 í Borgar-
nesi 16. september 2016 og fyr-
ir nýbyggingu að Borgarbraut 59
hinn 5. október 2016, en sem úr-
skurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála felldi úr gildi með úr-
skurðum síðar undir lok þess árs.
Úrskurðirnir höfðu í för með sér
tafir á byggingaframkvæmdum
Húss og lóða með tilheyrandi fjár-
magnskostnaði. Jafnframt krafðist
stefnandi að málskostnaður yrði
greiddur af stefnda. Borgabyggð
krafðist sýknu.
Í dómsorðum segir: „Vísað er
frá dómi kröfu stefnanda, Húss
og lóða ehf., um að viðurkennd
verði bótaskylda stefnda, Borgar-
byggðar, gagnvart stefnanda vegna
tjóns sem hlaust af byggingarleyfi
sem stefndi gaf út hinn 16. sept-
ember 2016 fyrir nýbyggingum
að Borgabraut 57 og 59, Borgar-
byggð. Stefndi er að öðru leyti
sýkn af kröfum stefnanda í máli
þessu,“ segir í dómsorðum Ásgeirs
Magnússonar dómara við Héraðs-
dóm Vesturlands. Málskosntnað-
ur milli aðila var jafnframt felldur
niður.
mm
Borgarbyggð ekki bótaskyld vegna
nýframkvæmda við Borgarbraut
„Engir skoteldar af þeim 25 sem
voru skoðaðir í eftirliti Umhverf-
isstofnunar milli jóla og nýárs
reyndust merktir með fullnægjandi
hætti,“ segir í tilkynningu frá stofn-
uninni. „Vegna sprengihættu sem
stafar af skoteldum ber að merkja
þá með hættumerkinu „Sprengi-
fimt“ í samræmi við ákvæði reglu-
gerðar nr. 415/2014 um flokkun,
merkingu og umbúðir efna og efna-
blanda. Þá skulu á umbúðum þeirra
vera staðlaðar hættu- og varnað-
arsetningar á íslensku sem lýsa
eðli hættunnar og einnig skal leið-
beint um örugga notkun, geymslu
og förgun. Sömuleiðis er krafa um
að viðvörunarorð á íslensku komi
fram á umbúðunum, annað hvort
„Varúð“ eða „Hætta“ og lýsir hið
síðarnefnda alvarlegri hættueigin-
leikum.“
Í úrtaki eftirlits Umhverfisstofn-
unar lentu 25 mismunandi skot-
eldar frá þeim sex birgjum sem
eru ráðandi á markaði hér á landi.
„Hættumerkingum á skoteldum er
augljóslega mjög ábótavant þar sem
engin vara af þessum 25 í úrtakinu
uppfyllti kröfur á fullnægjandi hátt.
Hvorki voru íslenskar né erlend-
ar merkingar á 13 vörum (52%).
Merkingar voru aðeins á erlendu
tungumáli á 4 vörum (16%) og 8
vörur báru ófullnægjandi merking-
ar á íslensku.“
Umhverfisstofnun gerir kröfu
um að allar vörur verði rétt merktar
á næsta sölutímabili, þ.e. áramótin
2019-2020. Áformar stofnunin að
fylgja því eftir með öðru eftirliti.
mm
Hættumerkingum skotelda ábótavant
„Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld
að stofna óhagnaðardrifinn sam-
félagsbanka enda er almenningur
langþreyttur á skorti á samkeppni á
fjármálamarkaði, miklum kostnaði
og háu vaxtastigi hér á landi,“ seg-
ir í tilkynningu frá miðstjórn ASÍ.
„Með eignarhlut sínum í ríkisbönk-
um eru stjórnvöld í kjörstöðu til að
stofna óhagnaðardrifinn samfélags-
banka, þar sem hagsmunir neytenda
verði hafðir að leiðarljósi og skil-
ið sé á milli áhættusækins banka-
reksturs og almennrar inn- og út-
lánastarfsemi. Miðstjórn ASÍ tel-
ur að stofnun slíks samfélagsbanka
geti verið mikilvæg leið til að auka
heilbrigði fjármálamarkaðar og
færa vaxtastig og kostnað nær því
sem þekkist í nágrannalöndum.“
mm
Alþýðusambandið vill samfélagsbanka
Atlas lögmenn f.h. Sæmundur Ás-
geirsson eiganda Gamla bæjarins á
Húsafelli, hafa stefnt Borgarbyggð
og Páli Guðmundssyni á Húsafelli
II. Í stefnunni er gerð krafa um að
felld verði úr gildi ákvörðun þess
stefnda, frá 20. desember 2018, um
að synja kröfu um að fjarlægja af
lóðinni Bæjargili í Húsafelli mann-
virki væntanlegs legsteinasafns og
pakkhús sem komið var fyrir á lóð
þar og á að þjóna sem menning-
ar- og þjónustuhús fyrir væntan-
legt listaverkasafn Páls á Húsafelli.
Þess er krafist að málið verði tekið
til meðferðar að nýju.
Mál þetta var lagt fyrir fund
byggðarráðs Borgarbyggðar síð-
astliðinn fimmtudag. Þar var sam-
þykkt að fela sviðsstjóra umhverf-
is- og skipulagssviðs að taka sam-
an minnisblað um stöðu málsins
og kynna sveitarstjórnarfulltrúum
fyrir næsta fund sveitarstjórnar sem
er á dagskrá á morgun, fimmtudag.
Þá samþykkti byggðarráð jafnframt
að fela Pacta lögmönnum að ann-
ast málið fyrir hönd sveitarfélagsins
og leggja þá ákvörðun fyrir sveitar-
stjórn til afgreiðslu. mm
Stefna lögð fram vegna
legsteinasafns og pakkhúss
Pakkhúsið og fjær við enda þess er uppsteypt legsteinahús.