Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 20198
46% óku of
hratt
BIFRÖST: Lögreglan á Vest-
urlandi var við hraðamæling-
ar á sérútbúnum bíl á tveimur
stöðum í umdæminu í vikunni
sem leið. Milli kl. 17 og 18 á
fimmtudag var athugaður um-
ferðahraði á Vesturlandsvegi
við Hafnarskóg undir Hafn-
arfjalli. Alls voru hraðamæld-
ir 153 bílar á þessum klukku-
tíma og þar af voru sjö kærð-
ir fyrir of hraðan akstur, en há-
markshraði á staðnum er 90
km/klst. Daginn eftir voru lög-
reglumenn við hraðamælingar
við Bifröst milli kl. 16 og 18,
þar sem hámarkshraði er 70
km/klst. Þar voru 120 ökutæki
hraðamæld og hvorki fleiri né
færri en 55 voru kærðir fyrir of
hraðan akstur, eða tæp 46%.
Meðalhraði þessara 55 sem
voru kærðir var 90 km/klst.,
eða 20 km/klst. yfir leyfilegum
hámarkshraða. Lögregla vill
minna á að ástæða er fyrir því
að hámarkshraði þjóðvegarins
er lækkaður úr 90 og niður í 70
km/klst. þegar ekið er framhjá
Bifröst. Vill lögregla biðja
ökumenn að huga sérstaklega
að lækkuðum hámarkshraða á
þjóðvegum. -kgk
Sýna samstöðu
með þolendum
ofbeldis
GRUNDARFJ: Dansbylt-
ingin Milljarður rís fer fram
í íþróttahúsinu í Grundar-
firði fimmtudaginn 14. febrú-
ar klukkan 12.15-13.00. Að
þessu sinni verður það eini
staðurinn á Vesturlandi þar
sem dansað verður. „Þetta er
í sjöunda sinn sem viðburður-
inn er haldinn hér á landi og
fólk kemur saman og dansar
fyrir heimi þar sem allir, óháð
kyni og kynhneigð, fá að njóta
sömu tækifæra án ótta við of-
beldi. Það er óhugnanleg stað-
reynd að ein af hverjum þrem-
ur konum um heim allan verð-
ur fyrir kynbundnu ofbeldi
einhvern tímann á lífsleiðinni,
það er um ein milljón kvenna.
Við mjökumst þó hægt í rétta
átt og það verður ljósara með
hverju árinu sem líður að of-
beldi í garð kvenna verður
ekki lengur liðið,“ segir í til-
kynningu. -fréttatilkynning
Gæsluvarðhald
framlengt
AKRANES: Með dómi hefur
Landsréttur framlengt gæslu-
varðhaldsúrskurð yfir sjötugri
konu sem grunuð er um til-
raun til manndráps á Akra-
nesi í nóvember á síðasta ári.
Konunni er gefið að sök að
hafa stungið tengdason sinn
með hnífi í brjóstkassann.
Hún neitar sök og heldur því
fram að tengdasonurinn hafi
sjálfur gengið að henni og far-
ið þannig á hníf sem hún hélt
á. Fram kemur í gæsluvarð-
haldsúrskurðinum að kon-
unni og tengdasyninum beri
ekki saman um atvik máls en
framburður tengdasonarins
eigi sér að mörgu leyti stoð
í gögnum málsins. Með hlið-
sjón af almannahagsmunum
ákvað Landsréttur, að kröfu
lögreglustjóra, að framlengja
gæsluvarðhald konunnar til
28. febrúar nk. klukkan 16:00.
-mm
Ragnar Þór
sjálfkjörinn
LANDIÐ: Framboðsfrestur
vegna formanns- og stjórn-
arkjörs VR rann út á hádegi
sl. mánudag. „Kjörstjórn VR
hefur úrskurðað eitt einstak-
lingsframboð til formanns VR
fyrir kjörtímabilið 2019-2021
löglega fram borið en það er
framboð Ragnars Þórs Ing-
ólfssonar og er hann því sjálf-
kjörinn formaður VR til næstu
tveggja ára. Önnur fram-
boð til formanns bárust ekki.
Þá hefur kjörstjórn VR feng-
ið 16 einstaklingsframboð til
stjórnar VR fyrir kjörtímabil-
ið 2019-2021 og vinnur í að
kanna lögmæti þeirra. Fundur
verður haldinn með frambjóð-
endum kl. 12.00 miðvikudag-
inn 13. febrúar og verða nöfn
frambjóðenda birt á vef VR að
honum loknum,“ segir í til-
kynningu. Alls verður kosið
til sjö sæta í stjórn og þriggja
í varastjórn.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 2.-8. febrúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 24.464 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 11.436
kg í tveimur róðrum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 12.601 kg.
Mestur afli: Kvika SH: 12.601
kg í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: 9 bátar.
Heildarlöndun: 329.018 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.007 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 271.463 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 60.765 kg í sex róðrum.
Rif: 15 bátar.
Heildarlöndun: 566.602 kg.
Mestur afli: Rifsnes SH:
110.357 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 9.329 kg.
Mestur afli: Sjöfn SH: 2.776
kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Rifsnes SH - RIF:
71.095 kg. 3. febrúar.
2. Hringur SH - GRU:
65.007 kg. 6. febrúar.
3. Sigurborg SH - GRU:
61.054 kg. 5. febrúar.
4. Tjaldur SH - RIF:
60.504 kg. 6. febrúar.
5. Vörður EA - GRU:
58.199 kg. 2. febrúar.
-kgk
Á Borgarnesblótinu síðast-
liðið laugardagskvöld var til-
kynnt um hver væri útnefnd-
ur Borgnesingur ársins 2018.
Er þetta í þriðja sinn sem
staðið er að þessar útnefningu
á Borgarnesblótinu og að
þessu sinni var það Guðrún
Birna Haraldsdóttir. Guðrún
á heiðurinn sannarlega skil-
inn en hún hefur í nærri 22
ár staðið vaktina við gang-
braut á Borgarbraut og að-
stoðað unga grunnskólanem-
endur yfir götuna á leið sinni
í skólann á morgnanna. Það
var Gunnlaugur A Júlíusson
sveitarstjóri sem veitti Guð-
rúnu viðurkenninguna. Hann
lýsti Guðrúnu sem glaðværri,
jákvæðri og hjálpsamri konu
og máli sínu til stuðnings
nefndi hann að hún meira að
segja skutli kisum heim til sín
þurfi þær á því að halda.
„Svona lagað getur held
ég aldrei annað en komið manni á
óvart. Þegar ég var fyrst látin vita af
þessu vali kom það mér alveg í opna
skjöldu en ég er gríðarlega þakklát,“
segir Guðrún í samtali við Skessu-
horn. Spurð hvernig það hafi komið
til að hún gerðist gangbrautarvörður
segir hún gangbrautavörsluna hafa
verið eins og vandræðabarn sveitar-
félagsins sem enginn vildi taka að sér
og þá hafi hún ákveðið að gera það
sjálf. „Ég byrjaði að vinna í Grunn-
skólanum í Borgarnesi árið 1997
sem gangavörður og á þeim tíma var
gangbrautavarsla í höndum bæjar-
vinnumanna og svo færðist þetta
eiginlega yfir á hitaveitustarfsmenn
að standa þarna á morgnana. Þeir
kærðu sig náttúrulega ekkert um að
sinna þessu svo það var leitað upp í
grunnskóla eftir fólki og það
þróaðist bara þannig að ég fór
að gera þetta. Ég bý við Böðv-
arsgötu og geng þessa leið til
vinnu á morgnana svo þetta
bara hentaði vel,“ segir Guð-
rún, sem er í dag hætt að vinna
í grunnskólanum en mætir þó
áfram alla virka morgna við
gangbrautina. „Ég er ein af
þessum þrjóskustu sem hættir
ekkert alveg í vinnunni. Þetta
er eiginlega það mikilvægasta
í mínum huga og ég held að
foreldrarnir treysti á þetta og
geti þá sent börnin sín af stað
í skólann. Ég myndi örugg-
lega fá hjartaáfall ef ég myndi
vakna einn daginn klukkan
hálf níu,“ segir hún og hlær.
Spurð um kisuna sem
Gunnlaugur minntist á í ræðu
sinni svarar Guðrún að um sé
að ræða kött sem fylgir barna-
barni hennar af stað frá heim-
ili sínu að gangbrautinni alla
morgna. Þar bíður kisan með Guð-
rúnu og „fær sína þjónustu,“ eins og
Guðrún orðar það. Þegar börnin eru
öll komin yfir Borgarbrautina fara
Guðrún og kisan saman að bílnum.
„Þar bíður hún þar til ég opna hurð-
ina og stekkur svo inn í bílinn. Ég ek
henni svo heim og hleypi henni út
heima hjá sér,“ útskýrir Guðrún.
arg
Guðrún Birna er Borgnesingur
ársins 2018
Alltaf eru hópar fólks, misjafnlega
stórir, sem venja komur sínar í heitu
pottana. Myndast góður vinskap-
ur meðal pottverja enda oft tilefni
til að ræða um mál líðandi stund-
ar, stjórnmálin og helstu spennu-
sögur í samfélaginu. Meðfylgjandi
eru tvær myndir sem teknar voru
í heitu pottunum á Akranesi og í
Borgarnesi í liðinni viku. Þá blót-
uðu menn þorra í yfirborðinu þar
sem frost og hiti mættust. mm
Blóta þorra í heitu pottunum
Hér er vaskur hópur kvenna í heita pottinum í Jaðars-
bakkalaug á Akranesi. Ljósm. Valdimar Hallgrímsson.
Hið árlega heitapottsþorrablót í Borgarnesi.
Ljósm. Sigrún Ögn Sigurðardóttir.
Rás 1 og Borgfirðingurinn Guð-
mundur Björn Þorbjörnsson hlaut
fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ fyrir
árið 2018. Viðurkenninguna hlaut
hann fyrir útvarpsþættina Mark-
mannshanskarnir hans Alberts Ca-
mus. Í þáttunum ræðir Guðmund-
ur Björn við íslenska íþróttamenn
og skyggnist inn í heim íþrótta-
mannsins frá öðru sjónarhorni en
venjulega er gert. „Þættirnir voru
fyrst birtir síðla árs 2017, en efni
þeirra er tímalaust og segja má
að þessir þættir hafi orðið kveikj-
an að hlaðvarpsþáttunum sem eft-
ir komu, en hlaðvarp varð afar vin-
sælt meðal knattspyrnuáhugafólks.
Guðmundur Björn er þannig frum-
kvöðull í innreið hlaðvarps í ís-
lenska íþróttafjölmiðlaflóru,“ segir
í frétt á heimasíðu KSÍ.
arg
Guðmundur Björn hlaut fjölmiðla-
viðurkenningu KSÍ um helgina.
Hlaut fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ
Talsvert hefur snjóað í Borgarnesi
að undanförnu eins og víðast hvar á
landinu. Þá þarf að ryðja snjó af göt-
um og bílastæðum. Oddný Þórunn
Bragadóttir, kaupmaður í Kristý í
Borgarnesi, tók þessa mynd af mann-
gerðum snjóskafli við bílastæðið við
Hyrnutorg í síðustu viku. Á toppi
haugsins tróndi þá innkaupakerra.
Myndinni póstaði Oddný á facebo-
ok síðu sína og eðli málsins vakti
hún athygli og umræðu. Einn sagði
að áhugavert væri að vita hver hafi
verið að aka innkaupakerrunni þeg-
ar moksturinn fór fram! mm
Hver var að aka innkaupakerrunni?