Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 201918
Valdís Einarsdóttir á Akranesi er
sannkölluð listakona en hún hefur í
ríflega þrjá áratugi hannað og búið
til piparkökuhús sem eru ekkert í lík-
ingu við þau hefðbundnu piparköku-
hús sem sjá má á mörgum heimil-
um í desember. Valdís hafði um ára-
bil fyrir jólin keppt í piparkökuhúsa-
samkeppni Kötlu og margoft lent í
verðlaunasæti. Eftir að hafa sigrað í
keppninni ár eftir ár var Valdís sett í
heiðursflokk í keppninni 2009 til að
aðrir keppendur ættu einnig mögu-
leika á sigri, en Valdís var ein í sín-
um flokki og sjálfkrafa sigurvegari.
Skessuhorn heimsótti Valdísi fyr-
ir helgi og ræddi við hana um pip-
arkökuhúsin, baksturinn og lífið.
Við fengum okkur sæti í setustofu á
heimili Valdísar við Jaðarsbraut þar
sem fer vel um nokkur af þeim pipar-
kökuhúsum sem Valdís hefur búið til.
„Það er merkilegt hvað þau hafa enst
vel. En ætli það sé ekki vegna þess
að þetta herbergi er gluggalaust og
þau fá því frið frá sólinni,“ segir Val-
dís um leið og hún sýnir blaðamanni
eitt af húsunum, torfbæ með öllu til-
heyrandi. Fyrir framan torfbæinn er
að finna ljá og önnur mikilvæg land-
búnaðaráhöld frá tíma torfbæjanna.
Þá er einnig fólk á sveimi og kon-
urnar klæddar vel skreyttum upphlut
en nákvæmnin bakvið hvern einasta
hlut sem fylgir þessu piparkökuhúsi
er ótrúleg. „Þetta er elsta húsið sem
ég á ennþá, það er frá árinu 2000,“
segir Valdís. Allt húsið og hlutirnir
sem fylgir því er búið til úr piparkök-
um eða marsípani. „Það væri hægt að
borða þetta allt.“
Akraneskirkja var fyrsta
sigurhúsið
Piparkökuhúsagerðin hófst hjá Val-
dísi sem samverustund með fyrsta
barnabarninu sem fæddist fyrir nærri
fjörutíu árum. „Mig langaði að gera
eitthvað skemmtilegt með sonarsyni
mínum fyrir jólin og við gerðum þá
svona hefðbundið lítið piparkökuhús
skreytt með nammi,“ segir Valdís,
brosir og rifjar upp hversu skemmti-
legt henni hafi þótt að baka með
barnabörnunum. „Ég hélt þessu svo
bara áfram og barnabörnunum fjölg-
aði og svo barnabarnabörnunum.
Þau fengu öll að taka þátt og höfðu
gaman af, og ekki síður ég.“ Það var
svo nokkru fyrir aldamótin sem Val-
dís fór að leggja meiri metnað í húsin
og taka þátt í piparkökuhúsakeppn-
inni. Fyrsta húsið sem hún fór með í
keppnina hafnaði í þriðja sæti. „Ann-
að húsið sem ég gerði var eftirmynd
af Akraneskirkju og það hús sigraði.
Þetta var dálítið fyrir aldamótin,“
segir hún. Valdís hefur gert nokkrar
eftirmyndir af þekktum húsum og má
þar nefna Höfða og Alþingishúsið en
húsin eru bæði mjög lík fyrirmynd-
inni. „Ég byrjaði á að taka myndir af
húsunum, alveg bak og fyrir og nota
þær svo til að gera snið. Ég var nú
einu sinni spurð hvort ég hefði alveg
fengið frið til að taka myndir af öll-
um hliðum Alþingishússins því mað-
ur má víst ekki fara inn í garðinn. En
ég fékk alveg frið í garðinum, ætli ör-
yggisverðirnir hafi ekki haldið að ég
væri bara enn einn túristinn sem vissi
ekki betur,“ segir hún.
Skuldar nokkur hús
Valdís hefur haft það sem venju að
nefna húsin eftir barnabörnum sín-
um og barnabarnabörnum. „Mér
þótti þetta mjög sniðugt til að byrja
með en svo eru afkomendurnir orðn-
ir svo margir að ég hef ekki undan að
gera hús fyrir þau öll. Ég skulda enn
nokkur hús,“ segir Valdís og hlær en
hún á sjálf tvo syni sem hvor um sig
eiga fimm börn. Þá eru barnabarna-
börnin einnig orðin tíu talsins. Að-
spurð segist Valdís vera um sex vik-
ur að gera hvert hús enda mikil ná-
kvæmnisvinna á bakvið þau. En á
hverju byrjar hún þegar hún gerir
piparkökuhús?
„Það er mikilvægt að byrja á að út-
búa snið og svo bara hnoðar maður
í deigið, sker út og byrjar að baka,“
svarar hún og brosir. Spurð hvort
uppskriftin skipti miklu máli, eða
hvort hægt væri að nota hvaða pipar-
kökuuppskrift sem er, segir hún upp-
skriftina eflaust hafa sitt að segja. „Ég
hef alltaf notað sömu uppskrift en það
eru kannski til betri og örugglega líka
verri uppskriftir,“ svarar hún. „Ég
læt sírópið, kryddið og smjörið alltaf
sjóða saman áður en ég blanda hveit-
inu við og ég held að það geri deigið
betra. En ég hef svosem ekkert fyrir
mér í því annað en tilfinninguna. Ég
læt deigið alltaf standa í 24 klukku-
stundi áður en ég flet það út. Ég flet
það líka út í plasti því þá er það með-
færilegra,“ svarar hún og bætir við að
þegar húsið er komið saman hefjist
alvöru vinnan. „Það krefst mikillar
nákvæmni að skreyta húsið og það
er mjög tímafrekt. Sem dæmi, þeg-
ar ég gerði Höfða notaði ég um 300
litlar þakflísar úr piparkökum sem ég
þurfti að skera út og handmála og það
tók sko tímann sinn. En ég fékk góða
aðstoð frá börnunum,“ segir hún og
brosir. „Eldhúsið var líka allt undir-
lagt en ég var heppin að eiga alveg
einstaklega þolinmóðan eiginmann
sem hefur ekki kvartað yfir fyrirferð-
inni í piparkökuhúsagerðinni,“ segir
Valdís og hlær.
Litlir puttar nældu
sér í grýlukerti
Aðspurð segist Valdís ekki stefna
á að taka þátt í annarri piparköku-
húsakeppni ef slík verður haldin,
en keppnin á vegum Kötlu var ekki
haldin fyrir síðustu jól. „Nú er bara
komið að öðrum og ég get alveg
hugsað mér að hjálpa bara barna-
börnunum. Ég á tvær ömmustelp-
ur sem eru 11 og 13 ára og báðar
mjög áhugasamar og efnilegar í pip-
arkökuhúsagerð,“ segir Valdís og
bendir blaðamanni á lítið blátt pip-
arkökuhús með tjörn fyrir framan.
„Sú eldri gerði þetta hús með minni
aðstoð og sendi í keppnina.“
Valdís segist ekki eiga sér nein
uppáhalds hús heldur séu þau öll í
miklu uppáhaldi. „Mér þykir vænt
um þau öll og það er gaman að
eiga húsin ennþá. Þó það sé nú að-
eins farið að sjá á þeim mörgum og
þau farin að upplitast. Það hafa líka
litlir puttar komist í nokkur þeirra
og nælt sér í grýlukertin. Það voru
grýlukerti á þeim öllum en þau eru
flest öll horfin,“ segir Valdís og sýnir
blaðamanni þau grýlukerti sem hafa
sloppið frá litlum fingrum, enn sem
komið er í það minnsta. „Það hefur
líka orðið eitthvað heitt inni hjá hús-
unum á einhverjum tímapunkti, og
kannski sólargeisli náð hingað inn,
en eitt handrið úr súkkulaði bráðn-
aði af. Fyrir utan þetta eru húsin enn
í mjög góðu standi og fá að vera hér
áfram,“ segir Valdís.
arg
Gerir piparkökuhús af mikilli nákvæmni
Valdís Einarsdóttir hefur í gegnum árin bakað fjölda piparkökuhúsa af mikilli nákvæmni.
Hluta af þeim húsum sem Valdís hefur gert á hún enn og geymir á heimili sínu.
Þetta er síðasta húsið sem Valdís sendi í piparkökuhúsakeppni Kötlu. Þetta ár var hún
sett í heiðursflokk því hún hafði þá unnið keppnina svo mörg ár í röð.
Þennan torfbæ gerði Valdís árið 2000.
Hér sést inn í hellinn hennar Grýlu en Valdís hugar vel að hverju
smáatriði í húsunum.
Hér sést inn í hellinn hennar Grýlu og fyrir ofan er bústaður
jólasveinanna.
Á Höfða setti hún um 300 þakflísar sem voru allar skornar út og hand-
málaðar.