Skessuhorn


Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 13.02.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 15 ir Skorradal sem dæmi um hættu- legt landsvæði, en einnig Munaðar- nes og fleiri sumarhúsasvæði í Staf- holtstungum, á Mýrum og allt upp í Húsafell. „Gróðureldar á þess- um svæðum gætu orðið hreinar og klárar hamfarir. Heilu sumarhúsa- hverfin gætu hreinlega horfið ef að- stæður eru þannig. Hnattræn hlýn- un hefur nefnilega náð til okkar. Við erum reglulega minnt á það í frétt- um að víða um heim verða miklir og óviðráðanlegir skógareldar. Í haust þurrkaðist þannig út heill bær í Am- eríku sem nefndist Paradise, í Ástr- alíu urðu illviðráðanlegir eldar og ekki er lengra síðan en í fyrrasumar að slíkt ástand geisaði í Svíþjóð sök- um þurrka. Við hér á Íslandi gætum hæglega fengið þurrt vor og hlýtt sumar þar sem aðstæður af þessu tagi geta komið upp hjá okkur. Ég vil því vekja máls á þessu og skapa umræðu. Allir eiga að leggjast á eitt í fyrir- byggjandi vinnu,“ segir Bjarni. Eldtefjandi svæði vantar Á ferð okkar um Skorradal í síð- ustu viku mátti víða finna dæmi um hvernig betur mætti gera með til- liti til eldvarna. Sitthvorum megin við þjóðveginn í landi Stálpastaða eru til dæmis trjágöng svo þétt að við mikinn eld öðru hvorum meg- in við veginn myndi vegurinn ekki hindra að eldurinn næði yfir. „Þó er þetta miklu verra á afleggjurum víða að sumarhúsunum. Skógi hefur ver- ið plantað of þétt þannig að vegirnir hindra ekki útbreiðslu elds. Að mínu viti þyrfti að skipuleggja skógana með eldhólfum, þannig að trjágróðri væri eytt á nógu breiðu belti til að eldur næði ekki yfir hvernig sem að- stæður væru. Þá má fólk ekki undir neinum kringumstæðum hálfpartinn drekkja húsum í trjágróðri, en við getum víða fundið þess dæmi. Einn- ig ætti fólk ætíð að forðast að hafa of mikinn eldsmat í geymslum áföst- um sumarhúsunum eða jafnvel und- ir veröndunum. Þannig er fólk að bjóða hættunni heim ef eldur brýst út.“ Þá segir Bjarni að flugeldaskot- hríð og varðeldar eigi ekki heima í sumarhúsahverfum. Á það verði all- ir hlutaðeigandi að horfa og viður- kenna fyrir sjálfum sér, það er of mikið í húfi ef illa fer. Bjarni segist vilja vera í góðu sambandi við félög sumarhúsaeig- enda, en hann fullyrðir að almenn vitundarvakning þurfi að eiga sér stað. „Það væri sorglegt að fá stór- bruna þar sem mörg hús og jafnvel stór landsvæði þyrftu að brenna til að almenningur og stjórnvöld vökn- uðu til vitundar um hættuna sem að okkur steðjar,“ segir Bjarni. „Og þeir sem í sumarhúsum sínum dvelja eiga að láta sig það varða ef þeir verða varið við eitthvað óvenjulegt og það má nefna þetta sem nokkurskonar „nágrannagæslu“. Það varð heilmik- il umræða um gróðurelda í kjölfar Mýraeldanna vorið 2006. En sú um- ræða hljóðnaði smám saman eftir að búið var að halda málþing, ráðstefn- ur og skrifa skýrslur, sem líklega hafa flestar endað ofan í skúffum. Ýms- ir fræðimenn unnu við það í nokk- ur ár að telja skordýr og hornsíli á þeim svæðum á Mýrum sem brunnu og báru saman við óbrunnin svæði. Það er ágætt að eiga niðurstöðurnar í möppum, en það hjálpar okkur ekki í baráttuni. Það er hálfgerður sof- andaháttur gagnvart þessari vá hjá stjórnvöldum, á móti því verður ekki mælt. Það er ekki nóg að tala um hlutina, það þarf að framkvæma og sú framkvæmd er of sein þegar mikl- ir eldar hafa brotist út,“ segir Bjarni Kristinn Þorsteinsson að lokum. mm Hér er horft austur með Skorradalsvegi í landi Stálpastaða. Trjágöng umlykja veginn sem myndi ekki hefta útbreiðslu elds. Horft niður eina heimreið að sumarbústaðalandi í Skorradal. Þessi vegur myndi örugglega ekki hefta útbreiðslu elds. Víða eru sumarhús með kjarrgróðri alveg upp að þurrum útveggjum húsanna. „Opnun útboðs vegna fyrirhug- aðra kaupa á sjúkrabílum sem átti að fara fram 7. febrúar sl. hefur verið frestað til 13. mars næstkom- andi,“ segir í sameiginlegri tilkynn- ingu heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi. „Unnið er að samkomulagi milli þessara aðila um lyktir samnings um útvegun og rekstur sjúkrabíla sem Rauði kross- inn hefur sinnt til fjölda ára. Þá segir í tilkynningu að um sé að ræða langt samningssamband og flókna yfirfærslu á mikilvægri þjón- ustu og þess vegna hefur reynst tímafrekt að vinna úr stöðunni frá því að viðræður hófust í mars á síð- asta ári. „Á þeim tveimur áratugum sem samningar hafa verið í gildi hefur samstarfið verið farsælt og traust ríkt milli aðila. Rauði kross- inn lagði fram sjúkrabíla og búnað í upphafi og lagði rekstrinum til fjármuni á samningstímanum. Við- ræður hafa snúið að fjárhagslegu uppgjöri og yfirfærslu verkefnisins við samningslok. Samkvæmt sam- eiginlegri ákvörðun heilbrigðis- ráðuneytisins og Rauða krossins var samið við ráðgjafarfyrirtækið Capacent um að taka saman grein- argerð um málið. Capacent skilaði greinargerðinni með niðurstöðum sínum 7. febrúar. Greinargerðin er til skoðunar hjá aðilum málsins sem hafa orðið ásáttir um að ræða ekki efni hennar opinberlega að svo stöddu.“ mm Enn er frestun á útboði vegna sjúkrabifreiðakaupa Tveir gamlir úr sjúkrabílaflota Vesturlands fyrir nokkrum árum síðan. Bíllinn til hægri er árgerð 1997 og er enn í notkun í Stykkishólmi. Sá til vinstri er árgerð 1992 og er ekki í notkun lengur. Hins vegar er mjög sambærilegur bíll, ári yngri, enn í notkun í Ólafsvík og er elsti bíllinn í sjúkrabílaflotanum á Vesturlandi 26 ára gamall. Fyrsta farþegaskip ársins kemur til hafna Faxaflóahafna föstudag- inn 15. mars, en það er farþega- skipið Astoria sem siglir til Reykja- víkur. „Árið 2019 verður tvímæla- laust það stærsta hvað varðar skipa- komur farþegaskipa og farþega- fjölda hingað til lands. Alls eru áætluð 201 skipakoma farþegaskipa til Faxaflóahafna með 190.784 far- þega,“ segir í frétt frá Faxaflóa- höfnum. Fjölgun á skipakomum og fjölda farþega er því um 24% milli ára. Útlit er fyrir fjölgun skipa sem eiga viðdvöl á Akranesi. Þang- að kom fyrsta skemmtiferðaskipið sumarið 2017 þegar farþegaskipið Le Boreal átti þar viðdvöl og aftur kom það í fyrrasumar. Nú er búið að bóka fyrir næsta sumar sjö skipa- komur á Akranes, þ.e. sex komur skemmtiferðaskipsins Panorama frá 6. júní til 26. ágúst. Panorama kom á síðasta sumri tólf sinnum á Akranes. Þá er Le Boreal væntan- legt einu sinni í sumar líkt og und- anfarin ár og kemur það sunnudag- inn 28. júlí. Þau farþegaskip sem eru með flestar skipakomur á árinu til Faxa- flóahafna eru svokölluð leiðangurs- skip sem taka í kringum 250 far- þega. Farþegar í þeim skipum koma yfirleitt fyrr til landsins með flugi og gista á hótelum, áður en farið er í siglingu umhverfis landið. Leið- angusrsskip eru þau farþegaskip sem best er að dreifa um landið, því þau eru hentug í stærð og farþega- fjöldi hentar mjög vel innviðum á landsbyggðinni,“ segir í tilkynn- ingu Faxaflóahafna. mm Sjö komur skemmtiferðaskipa bókaðar á Akranes í sumar Panorama er bókað á Akranes sex sinnum í sumar. Le Boreal bakkar hér inn í Akraneshöfn í fyrrasumar. Skessuhorn greindi frá því í des- ember síðastliðnum þegar Fjöl- brautaskóli Snæfellinga festi kaup á svokölluðum fjarverum. Lýsa mætti fjarverunum sem nokkurs kon- ar vélmenni á hjólum, með skjá og myndavél. Sá sem notar búnaðinn getur verið staddur hvar sem er í heiminum við tölvu og andlit hans sést á skjá fjarverunnar. Viðkomandi getur síðan fært fjarveruna til innan veggja skólans, tekið þátt í kennslu- stundum og talað við þá sem á vegi hans verður. Á föstudagsmorgun var birt mynd á Facebook-síðu FSN, þar sem má sjá búnaðinn sanna gildi sitt. Þar er ungur maður sem er nemandi við skólann tengdur fjarverunni. Drengurinn er búsettur í Stykkis- hólmi en þarf að vera heima vegna beinbrots. Hann mætir hins vegar í tíma með aðstoð fjarverunnar, fer á henni milli borða og missir því ekki af neinu þó hann komist ekki á stað- inn sjálfur. kgk Fjarverurnar sanna gildi sitt Frá kennslu í FSN á föstudag. Á myndinni má sjá hvar nemandi notar fjarveru til að taka þátt í kennslustund, þrátt fyrir að geta ekki mætt sjálfur á staðinn. Ljósm. Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.