Skessuhorn - 13.02.2019, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 23
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Sveitarstjórn Dalabyggðar sam-
þykktir á fundi sínum í desemb-
er að taka upp frístundastyrki fyr-
ir börn á aldrinum 3-18 ára, að því
er fram kemur í frétt á heimasíðu
sveitarfélagsins. Þar segir að styrk-
urinn verði greiddur út tvisvar á
ári, 10.000 krónur fyrir vorönn og
10.000 krónur fyrir haustönn. Fyrir
þá sem nýta ekki styrkinn á vorönn
geta fengið 20.000 krónur greiddar
á haustönn en ekki er hægt að nýta
styrkinn á milli ára.
Þá segir að markmið styrksins
sé að hvetja börn og ungmenni til
frístundaiðkunar, ýta undir aukna
hreyfingu og félagsþátttöku, styrkja
félagslegt umhverfi, auka jöfn-
uð og hafa jákvæð áhrif á þroska
barna og ungmenna og auka fjöl-
breytileika íþrótta-, lista- og tóm-
stundastarfs. „Skilyrði fyrir styrk er
að styrkþegi eigi lögheimili í Dala-
byggð og að hann sé nýttur til frí-
stundaiðkunar í Dalabyggð. Hægt
er að nýta styrkinn í skipulagt frí-
stundastarf sem stundað er undir
leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda
samfellt í a.m.k. átta vikur. Þetta
á t.d. við um allt íþróttastarf sem
stundað er á vegum viðurkenndra
íþróttafélaga, dans í dansskólum,
skátastarf og annað reglubundið
frístundastarf,“ segir í fréttinni á
heimasíðu Dalabyggðar. Styrkinn
má einnig nota fyrir tónlistarnám,
árskort eða þriggja mánaða kort í
líkamsræktarstöð eða sund. Börn í
leikskóla og fyrstu tveimur bekkj-
um grunnskólans geta nýtt styrkinn
í íþrótta- og tómstundanámskeið.
„Framhaldsskólanemar sem stunda
nám utan heimabyggðar fá undan-
þágu til að nýta styrkinn hvar sem
er. Leikskólabörn geta nýtt styrk-
inn hvar sem er ef ekki er fram-
boð af námskeiðum (íþróttaskóli)
í heimabyggð. Frístundastyrkur-
inn gildir ekki sem greiðsla fyrir
aðbúnað, ferðalög eða annan til-
fallandi kostnað vegna keppni eða
þjálfunar,“ segir í fréttinni.
arg
Frístundastyrkur í Dalabyggð
Upprennandi glímudrottningar í Dölum. Ljósm. úr safni/ Jón Trausti Markússon.
Skallagrímskonur töpuðu gegn KR
á útivelli, 80-64, þegar liðin mættust
í Domino‘s deild kvenna á laugar-
daginn. Fyrri hálfleikur var heilt yfir
nokkuð jafn en slakur þriðji leikhluti
Skallagríms varð til þess að KR-ing-
ar fóru með sigur af hólmi.
Borgnesingar höfðu heldur yfir-
höndina í upphafi leiks og höfðu
fjögurra stiga forskot um miðjan
fyrsta leikhluta, 10-14. KR-ingar
jöfnuðu, tóku forystuna og leiddu
með fjórum stigum eftir upphafs-
fjórðunginn, 22-18. Skallagríms-
konur minnkuðu muninn í eitt stig
snemma í öðrum leikhluta en KR
jók forystuna að nýju og hafði ellefu
stiga forskot í hálfleik, 43-32.
KR-ingar voru mun sterkari í
þriðja í þriðja leikhluta og bættu jafnt
og þétt við forskot sitt. Skallagríms-
konur náðu sér ekki á strik, skoruðu
aðeins átta stig allan fjórðunginn á
móti 24 stigum KR-inga. Staðan
fyrir lokafjórðunginn var 67-40 og
úrslit leiksins ráðin. Skallagríms-
konur náðu aðeins að laga stöðuna
í lokafjórðungnum en máttu að lok-
um sætta sig við 16 stiga tap, 80-64.
Shequila Joseph var atkvæðamest
í liði Skallagríms með 21 stig og 13
fráköst, Brianna Banks skoraði 21
stig, tók sex fráköst og gaf níu stoð-
sendingar og Ines Kerin skoraði 13
stig og gaf fimm stoðsendingar.
Kiana Johnson skoraði 23 stig,
tók tíu fráköst og gaf átta stoðsend-
ingar í liði KR. Orla O‘Reilly skor-
aði 22 stig og tók ellefu fráköst og
Ástrós Lena Ægisdóttir var með ell-
efu stig.
Skallagrímskonur hafa tólf stig í
sjötta sæti deildarinnar, jafn mörg
stig og Haukar í sætinu fyrir neðan.
Þessi tvö lið mætast í fallbaráttuslag
í Borgarnesi eftir viku, miðvikudag-
inn 20. febrúar. kgk
Slakur þriðji leikhluti reyndist dýrkeyptur
Shequila Joseph átti prýðilegan leik fyrir Skallagrím en það dugði skammt gegn
sterku liði KR. Ljósm. úr safni/ Skallagrímur.
Snæfell vann stórsigur á Skallagrími,
79-42, þegar liðin mættust í Vestur-
landsslag í Domino‘s deild kvenna.
Leikið var í Stykkishólmi á miðviku-
dagskvöld.
Snæfellskonur gáfu tóninn snemma
leiks, voru sterkari í upphafsfjórð-
ungnum og leiddu með átta stigum
að honum loknum, 20-12. Skalla-
grímsliðið minnkaði muninn lítið
eitt í upphafi annars leikhluta áður
en Snæfellskonur tóku smá rispu og
komst tíu stigum yfir. Þær áttu síðan
lokaorðið í fyrri hálfleik og fóru með
13 stiga forskot inn í hálfleikinn.
Síðari hálfleikur fór hægt af stað
þar sem hvorugu liði tókst að skora
fyrstu mínúturnar. Snæfellskon-
ur höfðu áfram yfirhöndina og með
smá rispu undir lok þriðja leikhluta
tryggðu þér sér 17 stiga forskot fyr-
ir lokafjórðunginn. Það var síðan í
fjórða leikhluta sem þær stungu af.
Botninn datt algerlega úr leik Skalla-
gríms sem skoraði aðeins átta stig all-
an leikhlutann, þar af fimm síðustu
mínútuna. Á meðan bættu Snæfells-
konur ört við forskot sitt og unnu að
lokum stórsigur, 79-42.
Kristen McCarthy átti stórleik fyr-
ir Snæfell á báðum endum vallarins.
Hún skoraði 26 stig, reif niður 20
fráköst, gaf sex stoðsendingar, stal sjö
boltum og varði þrjú skot. Gunnhild-
ur Gunnarsdóttir skoraði tíu stig og
varði fimm skot. Berglind Gunnars-
dóttir skoraði níu stig, Angelika Ko-
walska og Helga Hjördís Björgvins-
dóttir voru með átta stig hvor og Kat-
arina Matijevic skoraði sjö stig og tók
ellefu fráköst.
Shequila Joseph var stigahæst í liði
Skallagríms með tólf stig og tók hún
tólf fráköst að auki. Maja Michalska
og Brianna Banks skoruðu níu stig
hvor. kgk
Stórsigur Snæfells í Vesturlandsslagnum
Kristen McCarthy fór mikinn á báðum
endum vallarins þegar Snæfell vann
stórsigur á Skallagrími sl. miðvikudag.
Ljósm. sá.
Skallagrímur mátti játa sig sigraðan
gegn Keflvíkingum, 104-82, þeg-
ar liðin mættust í Domino‘s deild
karla í körfuknattleik á fimmtu-
dagskvöld. Leikið var suður með
sjó.
Heimamenn náðu snemma
nokkurra stiga forystu og höfðu yf-
irhöndina í upphafi leiks. Þeir náðu
góðum spretti undir lok fyrsta leik-
hluta og leiddu með 13 stigum að
honum loknum, 32-19. Heima-
menn juku muninn lítið eitt framan
af öðrum fjórðungi. Borgnesing-
ar svöruðu fyrir sig þegar nær dró
hálfleiknum og minnkuðu muninn
í ellefu stig áður en hálfleiksflautan
gall, 59-48.
Skallagrímsmenn voru held-
ur sterkari í framan af þriðja leik-
hluta og náðu að minnka muninn í
sjö stig. Keflvíkingar svöruðu fyrir
sig og leiddu með ellefu stigum fyr-
ir lokafjórðunginn, 78-67. Heima-
menn áttu síðan fjórða leikhlutann
með húð og hári. Þeir skoruðu 18
stig gegn átta fyrstu fimm mínútur
leikhlutans og innsigluðu sigur sinn
í leiknum. Lokatölur urðu 104-82,
Keflvíkingum í vil.
Matej Buovac var atkvæðamestur
í liði Skallagríms með 20 stig og tíu
fráköst. Bjarni Guðmann Jónsson
skoraði 17 stig, Domagoj Samac
var með 16 stig og Aundre Jackson
skoraði 13 stig.
Michael Craion var besti maður
Keflvíkinga í leiknum, með 23 stig,
14 fráköst og sex stoðsendingar.
Mindaugas Kacinas skoraði 22 stig,
tók tólf fráköst og gaf sjö stoðsend-
ingar, Gunnar Ólafsson skoraði 22
stig og Hörður Axel Vilhjálmsson
skoraði 16 stig og gaf átta stoð-
sendingar.
Skallagrímur hefur átta stig í
ellefta sæti deildarinnar, tveimur
minna en Valur í sætinu fyrir ofan.
Næst leikur Skallagrímur gegn Þór
Þ. sunnudaginn 3. mars næstkom-
andi. Sá leikur fer fram í Borgar-
nesi. kgk
Töpuðu suður með sjó
Bjarni Guðmann Jónsson og félagar hans í Skallagrími máttu sætta sig við tap
gegn Keflavík. Ljósm. úr safni/ Skallagrímur.
Snæfell tapaði óvænt gegn Haukum,
73-67, þegar liðin mættust í Dom-
ino‘s deild kvenna í körfuknattleik á
laugardaginn. Leikið var á Ásvöllum
í Hafnarfirði og var leikurinn jafn og
spennandi frá fyrstu mínútu.
Snæfell hafði heldur yfirhönd-
ina framan af upphafsfjórðungnum,
leiddu með fjórum stigum á kafla en
Haukar jöfnuðu í 17-17 áður en leik-
hlutinn var úti. Mikið jafnræði var
með liðunum í öðrum fjórðungi. Þau
skiptust á að leiða leikinn og þegar
hálfleiksflautan gall voru Snæfells-
konur stigi yfir, 33-34.
Síðari hálfleikur hófst eins og sá
fyrri endaði. Leikurinn var hníf-
jafn og spennandi. Til marks um
það munaði aldrei meira en þremur
stigum á liðunum í þriðja leikhluta.
Haukar leiddu með einu stigi fyr-
ir lokafjórðunginn, 52-51. Snæfells-
konur komust yfir í upphafi fjórða
leikhluta en Haukar tóku forystuna
aftur. Snæfell minnkaði muninn í eitt
stig þegar fjórar mínútur voru eftir
og útlit fyrir æsispennandi lokamín-
útur. En þá náðu Haukakonur góðum
endaspretti. Þær komust sex stigum
yfir þegar tvær mínútur lifðu leiks og
Snæfelli tókst ekki að koma til baka.
Lokatölur urðu 73-67, Haukum í vil.
Kristen McCarthy átti afar góðan
leik fyrir Snæfell, skoraði 25 stig, tók
13 fráköst, gaf sjö stoðsendingar og
stal boltanum sjö sinnum. Gunnhild-
ur Gunnarsdóttir skoraði 21 stig og
Katarinja Matijevic skoraði tólf stig
og tók tíu fráköst.
Lele Hardy var atkvæðamest í liði
Hauka með 19 stig, níu fráköst, sjö
stoðsendingar og fimm stolna bolta.
Klaziena Guijt skoraði 17 stig, Þóra
Kristín Jónsdóttir skoraði 13 stig, tók
fimm fráköst og gaf níu stoðsend-
ingar og Eva Margrét Kristjánsdóttir
skoraði ellefu stig og tók átta fráköst.
Snæfellskonur hafa 24 stig í fjórða
sæti deildarinnar, tveimur stigum
meira en Stjarnan en tveimur stig-
um á eftir Val í sætinu fyrir ofan.
Næsti deildarleikur Snæfells er gegn
Val í Stykkishólmi, sunnudaginn 24.
febrúar næstkomandi. Í millitíðinni
mætast þessi sömu lið hins vegar í
undanúrslitum bikarsins í Laugar-
dalshöllinni í dag, miðvikudaginn 13.
febrúar.
kgk
Óvænt tap Snæfells
Gunnhildur Gunnarsdóttir og félagar
hennar í Snæfelli máttu sætta sig við
tap eftir spennandi leik gegn Haukum.
Ljósm. úr safni/ sá.