Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Side 11

Skessuhorn - 12.06.2019, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 2019 11 Vilt þú hjálpa okkur að gæta hagsmuna þjóðarinnar? Fiskistofa óskar eftir að ráða metnaðarfulla og jákvæða starfsmenn í veiðieftirlit í Stykkis- hólmi og á Höfn í Hornafirði. Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og þekkingarmiðlun. Starfandi veiðieftirlitsmenn eru nær eingöngu karlar og er því athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim tilgangi að jafna kynjahlutföll í starfsgreininni, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Helstu verkefni: Eftirlit á sjó, en í því felst m.a. lengdarmæling á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með aflasamsetningu, • veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð. Eftirlit í landi, en það felur m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og aflasam-• setningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu afladagbóka. Eftirlit með löndunum erlendra skipa og úttektir á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og silungsveiði ásamt skrifstofustörfum s.s. skýrslugerð þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma. Menntunar- og hæfniskröfur: Haldgóð reynsla af störfum í sjávarútvegi.• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta er áskilin.• Gott heilsufar sbr. heilsufarskröfur Fiskistofu• Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.• Sanngirni og háttvísi.• Mjög góð hæfni í samskiptum nauðsynleg.• Menntun sem nýtist í starfi s.s. skipstjórnarréttindi, stúdentspróf eða iðnmenntun æskileg.• Nánari upplýsingar um störfin veitir Sævar Guðmundsson, deildarstjóri í veiðieftirliti eða Hildur Ösp Gylfadóttir sviðs- stjóri mannauðs og fjármála í síma 5697900 Ferilskrá á íslensku sem hefur m.a. að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila sem og kynningarbréf þar sem hæfni viðkomandi umsækjanda í starfið er rökstudd sendist í gegnum heimasíðu fiskistofu, www. fiskistofa.is Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2019. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við SFR. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri. Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr upplýsingum um þá málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is. Traust - Framsækni - Virðing Lausar stöður við Grunnskóla Snæfellsbæjar Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir starfsmanni í eldhús í 70% starf við Lýsuhólsskóla. Starfsvið: Skipuleggur matseðil hvers mánaðar Annast aðdrátt á matvörum Eldar og ber fram mat Sér um frágang og þrif í eldhúsi Tekur þátt í öðrum verkefnum innan skólans Menntun, reynsla og hæfni: Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Menntun og reynsla sem nýtist í starfi Góð kunnátta í íslensku er skilyrði Borgað er samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samflots bæjarstarfsmannafélaga. Umsóknarfrestur er til 23. júní, umsóknareyðublað er á heimasíðu Snæfellsbæjar, https://snb.is/wp-content/ uploads/2013/12/Atvinnuums%C3%B3kn.pdf Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason skólastjóri í síma 894 9903 og Rósa Erlendsdóttir í síma 863 8328. Umsóknir skal senda til skólastjóra hilmara@gsnb.is. S K E S S U H O R N 2 01 9 Snæfellsbær GRUNNSKÓLI SNÆFELLSBÆJAR Meðlimir í leshópnum Köttur úti í mýri í Grundarfirði hafa í nógu að snúast í sumar, því þeir ætla að opna bókamarkað 28. júní á neðri hæð í húsnæði við Borgarbraut 2. Að sögn Lilju Magnúsdóttur, eins af stofnendum leshópsins, ætla átta bókaforlög að senda bækur á mark- aðinn auk þess sem Bókakaffið á Selfossi mun senda þeim fornbæk- ur. „Það verður svona fornbóka- horn fyrir fólk að gramsa aðeins í,“ segir Lilja. „Grundarfjarðarbær var svo elskulegur að leigja okkur þessa fínu aðstöðu fyrir markaðinn á rosalega fínu verði,“ bætir hún við. Fyrirmynd markaðsins kem- ur frá Bókabæjunum Austanfjalls, sem er hópur fólks sem vill stuðla að aukinni bókmenningu á svæðinu þar; Árborg, Hveragerði og Ölfusi. „Þar hafa oft verið opnaðir sams- konar bókamarkaðir og ég hef sjálf unnið á slíkum mörkuðum þegar ég bjó fyrir austan,“ segir Lilja. Að- spurð segir hún markaðinn verða opinn um helgar í sumar og eitt- hvað meira í vikunni fyrir Grund- arfjarðardaga. „Við í leshópnum munum skiptast á að standa vakt- ina, hella upp á kaffi og vera sæt- ar og skemmtilegar. Svo verðum við með skipulagðar uppákomur á markaðnum og má þar nefna tón- leika þar sem aðeins verða flutt lög sem tengjast bókum. Ég lofa að það verður rosalega gaman að kíkja á okkur,“ segir Lilja og brosir. Sjálfbært bókasafn sett upp Þá er leshópurinn einnig að setja upp svokallað „Free little library“ sem verður staðsett fyrir utan Bjargarstein í Grundarfirði. „Við fengum Togga í Lavalandi til að smíða fyrir okkur lítinn kofa und- ir safnið,“ segir Lilja. Free little li- brary er alþjóðleg keðja lítilla sjálf- bærra bókasafna um allan heim, þar sem hugmyndin er að hver sem er geti sótt sér bækur eða komið með bækur. „Það eru engin skilyrði, öll- um er velkomið að koma og taka bækur. Það eru engin skilyrði um að skila bókunum aftur, hver og einn ræður því. Svo kemur fólk líka og setur bækur í kofann. Með því að vera partur af Free little library keðjunni verður bókasafnið merkt inn á kort yfir öll samskonar bóka- söfn um allan heim. Þetta verður annað svona bókasafnið á Íslandi, en það er eitt nú þegar í Reykja- vík,“ segir Lilja. „Okkur langar svo í framhaldinu að setja upp ann- að svona bókasafn hér í Grundar- firði sem verður aðeins með barna- bókum, en við erum ekki enn búin að finna hentugan stað fyrir það,“ bætir hún við. Bókaálfar dreifa bókum Lilja, ásamt leshópnum, hefur einnig gerst svokallaður bókaálf- ur. „Bókaálfarnir eru partur af al- þjóðlegri hugmynd sem kallast „The book Fairies“ og snýst verk- efnið um að dreifa bókum. Mað- ur merkir bækurnar með sérstök- um borða og merkingu sem hægt er að panta á netinu og svo dreif- ir maður bókunum á fjölfarna staði. Þeir sem svo finna bækurnar mega eiga þær,“ útskýrir Lilja. Bækurnar eru vel merktar verkefninu og það fer ekki á milli mála að sá sem finn- ur bækurnar megi eiga þær. „The book Fairies eru samtök sem snú- ast bara um að dreifa bókum áfram, það er enginn að græða á þessu eða neitt síkt og hver sem er getur tek- ið þátt. Harpa Rún Kristjánsdóttir á Selfossi er tengiliður fyrir verk- efnið á Íslandi og fólk getur haft samband við hana hefur það áhuga á að taka þátt. Þeir sem dreifa bók- um taka svo mynd af bókinni og deila á Instagram og það geta allir fylgst með undir #ibeliveinbookfai- ries,“ segir Lilja. Á Grundarfjarð- ardögum ætlar Lilja að fara í bóka- álfaverkefni með 5-6 ára börnum í Grundarfirði. „Ég ætla að dreifa bókum með krökkunum. Hver og einn kemur með bók sem hann vill gefa og við förum um bæinn og dreifum þeim saman,“ segir Lilja. arg Opna bókamarkað og lítið bókasafn í Grundarfirði Þegar við kvöddum Lilju í Grundarfirði lét hún blaðamann Skessuhorn hafa þessa bók til að skilja eftir á fjölförnum stað á Akranesi. Hér er bókin fyrir utan Bónus og beið eftir nýjum eiganda. Lilja Magnúsdóttir bókaálfur í Grundarfirði.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.