Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 12.06.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 201912 Það lifnaði heldur betur yfir há- skólasvæðinu við HÍ í vikunni þegar um 370 krakkar á aldrinum 12-16 ára mættu á hinn árlega Há- skóla unga fólksins. Skólinn, sem er settur var í gærmorgun, stendur til föstudagsins 14. júní. Í Háskóla unga fólksins búa nemendur til sína eigin stundaskrá en þeir geta valið á milli rúmlega 50 námskeiða af öll- um fræðasviðum Háskóla Íslands. Nemendur sækja þrjú tveggja daga námskeið, einn þemadag og tvö ör- námskeið dagana fjóra sem skólinn stendur yfir. Meðal viðfangsefna nemendanna í námskeiðunum eru afbrotafræði, iðnaðarverkfræði, til- finningar- og geðheilsa, ofurhetju- myndir, plánetan jörð, japanska, loftsteinar og árekstrar, rannsókn- arblaðamennska og vefsmíði, svo fátt eitt sé nefnt. Á þemadeginum, sem verður á morgun, fimmtudag, verja nem- endur heilum degi í tilteknum greinum og fara vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið og jafnvel víð- ar. Þemadagarnir hverfast m.a. um mat í geimnum, dýralíffræði, lög og rétt, stafræna tækni og forritun, listir og lífsleikni, tungumál heims- ins og smíði kappakstursbíls. Tugir nemenda og kennara í Há- skóla Íslands koma að kennslu í Háskóla unga fólksins auk sérfræð- inga annars staðar úr atvinnulíf- inu. Nemendur fást ekki aðeins við verkefni í húsakynnum Háskólans í vikunni heldur býðst þeim einn- ig að taka þátt í leikjum og gleði í hádegishléum. Þá verður efnt til stórrar grillveislu og lokahátíðar við Háskólatorg eftir hádegi föstudag- inn 14. júní og þar geta nemendur spreytt sig á alls kyns þrautum og tekið þátt í skemmtilegum leikjum. Hægt verður að fylgjast með skóla- starfi Háskóla unga fólksins á vef- síðu skólans, www.ung.hi.is og Fa- cebook-síðu hans. mm Aðfararnótt síðastliðins fimmtudags unnu starfsmenn Rarik á Vestur- landi við lagningu háspennustrengs undir brúna yfir Kljáfoss í Hvítá, neðan við Hurðarbak í Reykholts- dal. Þeim til aðstoðar voru félagar í Björgunarsveitinni Ok sem voru til taks með gúmmibát undir brúnni ef eitthvað færi úrskeiðis. Var veg- inum lokað milli klukkan 22 og 04 um nóttina vegna framkvæmdanna, en kranabíll var á brúnni með körfu til að láta starfsmenn Rarik síga fram af brúnni. iss Ívar Örn Þórðarsson hefur verið ráðinn nýr slökkviliðsstjóri í Dala- byggð, Reykhólahreppi og Strand- abyggð. Ívar er fæddur og uppalinn í Vogum á Vatnsleysuströnd en síð- ustu sex ár hefur hann verið búsettur á Fáskrúðsfirði þar sem hann starfaði fyrstu þrjú árin sem eigna- og fram- kvæmdafulltrúi fyrir Fjarðabyggð áður en hann fór yfir í Slökkvilið Fjarðabyggðar í september 2016. „Ég hef bakgrunn í slökkviliðs- starfi frá árinu 1999 þegar ég byrj- aði í varaliði hjá Brunavörnum Suð- urnesja. Þaðan fór ég svo í Slökkvi- lið Keflavíkurflugvallar í tæp fjögur ár og svo í Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins um tíma. Við fjölskyld- an fluttum því næst til Danmerkur í nám, en ég er byggingafræðingur að mennt frá OTS. Eftir heimkom- una fluttum við fjölskyldan svo fljót- lega hingað austur. Ég er löggiltur slökkviliðsmaður með neyðarflutn- ingaréttindi líka,“ segir Ívar. Þá hef- ur Ívar einnig starfað með björgun- arsveitum frá 17 ára aldri. „Ég sá þetta starf auglýst og fannst það spennandi og flott tækifæri fyrir mig svo ég ákvað að sækja um,“ se- gir Ívar sem er um þessar mundir í miðjum flutningum milli landshluta „Við erum svona komin með annan fótinn í Dalina og erum að tína dó- tið yfir. Það eru minnst sjö klukkutí- mar að fara á milli svo þetta tekur tíma,“ segir hann og hlær. „En star- fið leggst bara allt vel í mig, þetta verður bæði spennandi og krefjan- di verkefni og við fjölskyldan erum bjartsýn,“ segir hann. arg Stjórn Veiðifélags Reykjadalsár í Borgarfirði auglýsti nýverið til sölu veiðileyfi í ánni í sumar. Þar er veitt á tvær stangir á tímabilinu 20. júní til 30. september. Sú óvenjulega staða er nú komin upp að tveir að- ilar eru að selja sömu veiðileyfin; annars vegar landeigendur í Veiði- félagi Reykjadalsár en hins vegar Stangveiðifélag Keflavíkur. Kom- in er upp deila milli þessara aðila um lögmæti samnings um veiðirétt í ánni. Stangveiðifélag Keflavíkur er samkvæmt heimildum Skessu- horns búið að selja flestalla veiði- daga í ánni í sumar, en stjórn þess hefur átt í deilum við stjórn veiði- félags árinnar um lögmæti fimm ára samnings um veiðirétt fyrir árin 2018-2022. Ástæðu deilunn- ar má rekja til þess að tveir fyrr- um stjórnarmenn í veiðifélaginu gerðu drög að samningi um leigu árinnar til fimm ára vorið 2018 og lögðu fyrir fund í veiðifélag- inu. Samningsdrögunum var hafn- að og öðlaðist hann því aldrei lög- formlegt gildi. Málið kom til kasta Fiskistofu sem úrskurðaði í málinu 15. janúar 2019. Felldi stofnunin úr gildi ákvörðun um ráðstöfun á veiði í Reykjadalsá og taldi samn- inginn ólögmætan vegna formgalla við gerð hans og að ekki hafi verið rétt staðið að boðun félagsfundar í veiðifélaginu. Stangveiðifélag Keflavíkur unir ekki þessari ákvörðun Fiskistofu og Veiðifélags Reykjadalsár og er nú búið að selja flestalla veiðidaga í ánni, annað árið í röð. Þrátt fyr- ir að deilurnar hafi komið upp í fyrravor annaðist SVFK sölu veiði- leyfa í fyrrasumar en landeigendur ætla samkvæmt heimildum Skessu- horns ekki undir neinum kringum- stæðum að láta það endurtaka sig í ár og hafa því auglýst milliliðalaust veiðileyfi í ánni til sölu. Stangveiði- félag Keflavíkur mun leggja fram kröfu um lögbann á sölu veiðileyfa hjá Veiðifélagi Reykjadalsár. Verð- ur krafan tekin fyrir í Héraðsdómi Vesturlands í dag, miðvikudag. Fé- lagið hyggst jafnframt kæra niður- stöðu Fiskistofu í málinu þar sem það telur stofnunina hafa farið út fyrir valdsvið sitt. Reykjadalsá hefur nær alltaf verið skilgreind sem síðsumarsá, tæplega 40 kílómetra dragá sem rennur nið- ur Hálsasveit og Reykholtsdal frá upptökum sínum í Okinu. Þá sam- einast Rauðsgil meginfarvegi ár- innar. Vatnsstaða árinnar hefur alla tíð verið mjög háð úrkomu og snjó í fjöllum. Veiði í fyrrasumar var með besta móti í Reykjadalsá enda var mikil úrkoma í sumarbyrjun, góð vatnsstaða og gekk laxinn því snemma í ána. Reykjadalsá er hins vegar víðast hvar stígvélafær þegar þessi orð eru rituð, þriðjudaginn 11. júní 2019. mm Á þessum árstíma eru folöld víða að koma í heiminn. Þetta fallega merfolald fæddist að morgni Hvíta- sunnudags í blíðskaparveðri uppi í Borgarfirði. Litla hryssan er dótt- ir Prinsessu frá Birkihlíð og Sæs frá Bakkakoti. Eigandi hennar er Magnús Karl Gylfason sem hér lætur vel að folaldinu ásamt Aldísi Emilíu dóttur sinni. Litla hryssan fékk nafnið Sunna Sjöfn og tengist nafngiftin bæði Hvítasunnudegin- um en jafnframt afmælisdegi góðr- ar konu og fjölskylduvinar sem féll frá á liðnu ári. mm Ívar Örn Þórðarsson nýr slökkviliðsstjóri í Dalabyggð, Reyk- hólahreppi og Strandabyggð. Nýr slökkviliðsstjóri í Dalabyggð, Reykhólahreppi og Strandabyggð Háskóli unga fólksins stendur nú yfir Meðfylgjandi er mynd var tekin á setningu Háskóla unga fólksins í gærmorgun. Ljósm. Kristinn Ingvarsson. Lögðu háspennu- streng undir Kljáfossbrú Tekist á um lögmæti samnings um laxveiði Klettsfoss, neðsti veiðistaðurinn í Reykjadalsá. Skammt neðan við Klett sameinast Reykjadalsá og Flókadalsá og renna saman út í Hvítá. Veðrið lék við Sunnu Sjöfn á fyrstu dögum hennar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.