Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Qupperneq 16

Skessuhorn - 12.06.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 201916 Á hverju vori fara æðarbændur á Mýrum að undirbúa varpið og bjóða fuglana velkomna heim. Varpið og dúnvertíð er nú í fullum gangi og hjónin Sigurbjörg Helgadóttir og Óskar Þór Óskarsson á Tröð- um á Mýrum verja flestum sínum stundum til dúntínslu á milli þess að halda varginum frá æðarvarpinu sem vissulega getur orðið ágeng- ur. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til hjónanna í Tröðum í blíðskaparveðri í vikunni sem leið til að fræðast betur um æðarvarp- ið og vinnuna sem fer í þessháttar hlunnindabúskap. Bjóða fuglinn velkominn „Ég byrja að undirbúa varpið í lok apríl. Þá laga ég til sérstaklega þau hreiður sem hafa aflagast nálægt fjörunni, í grjótinu þar sem þær vilja oft verpa í. Við reynum að laga til fyrir þær, röðum upp stein- um, setjum hey til að gera hreiðrin heimilisleg og bjóðum æðarfugl- inn þannig velkominn,“ segir Sig- urbjörg um undirbúninginn. Æðarfuglinn verpir nærri sjó og er oft í stórum og þéttum hólm- um. Hreiðrið er opið og fóðr- að með dúni. Þegar kollan verpir, sem er venjulega 4-6 eggjum í maí til júní, þá fóðrar hún hreiðrið að innan með æðardúni sem hún reit- ir af brjósti sér. Þá kemur Sigur- björg gangandi á milli hreiðra og tínir dúninn í poka. „Ég er með hey í einum poka og tíni dúninn í annan. Þegar ég safna dúninum þá passa ég að setja hey í staðinn til að halda eggjunum hlýjum,“ út- skýrir Sigurbjörg og bætir við að stundum getur kollan orðið svolít- ið frek við sig. „Yfirleitt fer fugl- inn af hreiðrinu sjálfur en stundum þarf ég að færa hana til að ná í dún- inn og þá getur hún orðið eitthvað pirruð við mig,“ segir Sigurbjörg og hlær. Vorið hefur verið þeim hjónum virkilega hliðhollt með þurru og björtu veðri dag eftir dag. „Besta veðrið er gott veður. Það er ekki mikill vindur, ekki rigning og ekki kalt. Það er til dæmis voða leiðinlegt að taka dún í rigningu, en maður lætur sig hafa það stund- um. Í ár höfum við ekki þurft að hafa áhyggjur því það hefur verið svo mikill þurrkur.“ Vargurinn getur verið hvimleiður í æðarvarpinu á Mýrum Hjónin og æðarbændurnir að Tröðum sóttir heim Hjónin í Tröðum, Óskar Þór Óskarsson og Sigurbjörg Helgadóttir. Kollan verpir venjulega 4-6 eggjum í maí til júní. Dúnninn er grófhreinsaður á bænum áður en hann er sendur í frekari hreinsun. Hérna gefur Sigurbjörg fuglinum mat og eru margir fuglanna duglegir að kíkja við og fá sér smá snarl. Æðarfuglspar. Karlfuglinn er kallaður bliki sem er hér hægra megin og kvenfuglinn, kollan, er til vinstri.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.