Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Side 19

Skessuhorn - 12.06.2019, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 2019 19 SK ES SU H O R N 2 01 9 Viltu vinna með börnum? Leitað er eftir dagforeldrum til starfa á Akranesi fyrir komandi haust. Dagforeldrar starfa eftir reglugerð Félagsmálaráðuneytis um daggæslu barna í heimahúsi. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en Akraneskaupstaður hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra. Réttindanámskeið fyrir verðandi dagforeldra hefur verið haldið af Námsflokkum Hafnarfjarðar og Akraneskaupstaður niðurgreiðir hluta af námsgjaldi. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Akraneskaupstaðar í síma 433-1000, einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið skoliogfristund@akranes.is Nýr Bárður SH var sjósettur í Danmörku fimmtudaginn 6. júní en hann hefur verið í smíðum hjá Bredgaard Bådeværft í Rødbyhavn þar í landi. Pétur Pétursson út- gerðarmaður var viðstaddur sjó- setninguna ásamt eiginkonu sinni Lovísu Sævarsdóttur og Pétri syni þeirra. Nýr Bárður er 26,9 metra lang- ur og sjö metra breiður með 2,5 djúpristu. „Mér er sagt að þetta sé stærsti trefjaplastbáturinn sem hefur verið smíðaður fyrir íslenska útgerð og ég held að það sé alveg hárrétt,“ segir Pétur eldri í samtali við Skessuhorn. Hann segir næstu verkefni vera frágang á mastri og vindum og ýmsum rafmagnsbún- aði. Síðan er áætlað er að báturinn verði tilbúinn til prufukeyrslu um mánaðamótin. „Þá taka við væntan- lega um það bil fjögurra daga próf- anir á bátnum. Þegar búið verður að hallaprófa bátinn og prufukeyra fær hann haffærnisskírteini,“ seg- ir hann. Að svo búnu verður nýja Bárði siglt til Hanstholm á Norð- ur-jótlandi þar sem vinnslubúnaði verður komið fyrir á dekki bátsins. „Það verk kemur til með að taka nokkra daga, kannski tíu til fimm- tán daga. Ef allt gengur vel þá gera áætlarnir ráð fyrir að báturinn verði kominn heim til Ólafsvíkur í end- ann júlí,“ segir Pétur Pétursson að endingu. kgk Fermingarsystkini frá Ólafsvík fögnuðu 65 ára fermingarafmæli sínu síðastliðinn fimmtudag. Þau fermdust níu saman 30. maí 1954 í gömlu Ólafsvíkurkirkju hjá séra Magnúsi Guðmundssyni frá Þyrli. Þetta eru þau Kristbjörg Elías- dóttir, Svava Alfonsdóttir, Guðrún Tryggvadóttir, Aðalheiður Krist- jánsdóttir, Bragi Eyjólfsson, Þor- leifur Markússon, Ögmundur Run- ólfsson, Sævar Þór jónsson og Hulda Ingvadóttir. „Við fórum á Norðurbakkann í Hafnarfirði þar sem við fengum þessa fínu súpu, kaffi og tertu á eft- ir. Síðan var bara spjallað og hleg- ið og rifjaðir upp gamlir og góðir tímar, það er alveg númer eitt,“ seg- ir Ögmundur í samtali við Skessu- horn. „Þorleifur gat reyndar ekki verið með okkur né Hulda, sem býr í Svíþjóð. En hópurinn hefur alltaf haldið sambandi og við erum öll á lífi í dag, sem er ekki sjálfgefið. Frá því við héldum upp á 50 ára ferm- ingarafmælið árið 2004 höfum við hist á fimm ára fresti og við ætlum að halda þessu áfram, en kannski látum við líða styttri tíma fram að næstu samkomu,“ segir Ögmundur að endingu. kgk Nú standa yfir gatnaframkvæmdir á Sandholti í Ólafsvík, en þær hófust þriðjudaginn 28. maí síðastliðinn. Verið er að taka götuna upp, lag- færa hana og endurnýja. Stefnt er að því að sá hluti göt- unnar sem verður endurnýjaður í þessum áfanga verði tilbúinn und- ir malbik seinna í sumar, að því er fram kemur á Facebook-síðu Snæ- fellsbæjar. Það er fyrirtækið TS Vélaleiga ehf. sem annast verkið. kgk Hópurinn hefur hist á fimm ára fresti frá árinu 2004. Hér eru fermingarsystkinin á 60 ára fermingarafmæli sínu árið 2014. Í fremri röð eru þau Kristjbörg Elíasdóttir, Svava Alfonsdóttir, Guðrún Tryggvadóttir, Aðalheiður Kristjánsdóttir og Sævar Þór Jónsson. Fyrir aftan standa Bragi Eyjólfsson, Þorleifur Markússon og Ögmundur Runólfsson. Á myndina vantar Huldu Ingvadóttur. Ljósm. úr safni/ af. Fögnuðu 65 ára fermingarafmæli Framkvæmdir á Sandholti Frá gatnaframkvæmdum á Sandholti í Ólafsvík. Ljósm. TS Vélaleiga. Frá sjósetningu Bárðar SH síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. Bredgaard Bådeværft. Búið að sjósetja nýja Bárð

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.