Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2019, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 12.06.2019, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 12. júNÍ 201926 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvaða lag kemur þér í sólargírinn? Spurni g vikunnar (Spurt við Guðlaugu á Akranesi) Hafdís Arthúrsdóttir „Sól sól skín á mig.“ Emilía Hörpudóttir „Sunflower úr Spiderman mynd- inni.“ Guðmunda Freyja Guðráðs- dóttir „Clubbed Up með ClubDub.“ Eyja Kjartansdóttir „Sól sól skín á mig.“ Juan Altmayer Pizzorno (frá Bandaríkjunum) „Don‘t Worry Be Happy.“ Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. Af því tilefni stendur stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrenni fyrir því á afmælisárinu að birta greinar eft- ir hjúkrunarfræðinga í Skessu- horni. Greinarnar eru birtar jafnt og þétt yfir afmælisárið og í þeim munu lesendum fá smá innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir sem hjúkrunarfræðingar fást við. Að þessu sinni kynnir sig til leiks Anna Þóra Þorgilsdóttir, hjúkr- unarfræðingur og aðstoðardeild- arstjóri á Lyflækningadeild Heil- brigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Ég heiti Anna Þóra Þorgilsdótt- ir og er 37 ára, fædd og uppal- in Skagakona og hef búið hér alla mína tíð. Ég er gift Andra Lind- berg Karvelssyni, pípulagninga- manni og viðskiptastjóra í Tengi ehf. Saman eigum við þrjú börn, Ír- isi Emblu 12 ára, Anítu Rut 8 ára og Sölva Frey 4 ára. Áhugamál mín snúast flest um að eiga góðar sam- verustundir með fjölskyldu og vin- um. Ég hef mjög gaman af ýmiss konar útivist, almennri hreyfingu og ferðalögum. Áhugi á tónlist hef- ur fylgt mér frá því ég var lítil enda var ég nemandi við Tónlistarskól- ann á Akranesi í mörg ár. Ég lagði síðan tónlistina að mestu til hliðar þegar ég fór í clausus í hjúkrun, en í dag hef ég þó aðeins verið að dunda mér við að spila á gítar eftir að ég og vinkona mín skelltum okkur á gítarnámskeið. Ég var einnig mjög glöð þegar yngri dóttir mín fór að læra á fiðlu því mér finnst frábært að kunna að spila á hljóðfæri. Hárrétt stefna í lífinu Það hafði alltaf blundað í mér, frá því ég var smábarn, að vinna við hjúkrun. Námsáhugi minn í skóla lá alltaf á raunvísindasviðinu og þegar ég kom í fjölbraut fór ég á náttúru- fræðibraut sem reyndist vera góður grunnur fyrir framhaldsnámið. Eft- ir að hafa lokið stúdentsprófi árið 2001 ákvað ég að sækja um sum- arvinnu á E-deild, öldrunardeild SHA, sem þá var starfandi og sjá hvort ég væri ekki örugglega viss um að ég væri að fara á rétta starfs- braut þegar ég hæfi nám í hjúkr- un við Háskóla Íslands um haustið. Það var ekki nokkur spurning eft- ir að hafa unnið þetta sumar hvert ég vildi stefna. Ég fann að ég var á hárréttum stað, hversu gefandi það var að vinna við þetta og starfsfólk- ið sem ég vann með á deildinni var frábært. Ég leit upp til þeirra, það kenndi mér svo margt og gaf mér góða innsýn í starfið. Samskipti rauðir þráðurinn í starfinu Hjúkrunarstarfið er að mínu mati virkilega heillandi starf. Starfið er margþætt, fjölbreytt og gefandi. Hjúkrun kemur víða við og starfs- möguleikarnir eftir því óteljandi. Mikilvægt er að hjúkrunin sé heild- ræn og við séum meðvituð um að- stæður hvers og eins, tökum til- lit til ólíks bakgrunns og sérstöðu. Að vera til staðar og hlusta á skjól- stæðinginn og aðstandendur hans er einn stærsti þáttur hjúkrunar- innar. Þannig verður nándin meiri og betri tengsl og traust myndast milli allra aðila sem hjálpar til við að bæta líðan. Starfinu fylgja mikl- ar áskoranir, oft óvæntar uppákom- ur sem krefjast þess að við vinnum hraðar en um leið skipulega og fag- lega, á öruggan og yfirvegaðan hátt. Traust og góð samskipti eru lykilat- riði svo allt gangi vel fyrir sig. Eins er mikilvægt að fólk haldi vel utan um hvort annað því álagið er oft mikið og getur haft bæði andleg og líkamleg áhrif. Það má því segja að rauði þráðurinn í starfinu séu sam- skipti, við skjólstæðinginn, aðstand- endur og samstarfsfólk. Unnið á nokkrum sviðum hjúkrunar Árið 2005 útskrifaðist ég með B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Samhliða náminu starfaði ég á nokkrum sviðum innan Sjúkra- húss og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi (SHA). Má þar nefna öldrunar- og endurhæfingardeild sem ég hafði áður unnið á, heilsu- gæslu þar sem ég vann við heima- hjúkrun og á lyflækningadeild. Einnig vann ég um tíma við öldr- unarhjúkrun á Hrafnistu í Reykja- vík en það ár var verið að opna nýja deild sem heitir H2. Það var mjög gaman að fá að taka þátt í að opna slíka deild og kynnast nýjum íbú- um sem komu hvaðanæva að. Eft- ir útskrift hélt ég áfram að vinna á lyflækningadeild á SHA sem í dag er orðið að Heilbrigðisstofn- un Vesturlands, eða HVE-Akra- nesi. Ég hef unnið meira og minna á þeirri deild til dagsins í dag fyr- ir utan eitt ár þegar ég leysti af á heilsugæslusviðinu árið 2008-2009. Þá vann ég aðallega við skólahjúkr- un en vann einnig við ungbarna- eftirlit og heimahjúkrun. Þar fékk ég góða innsýn í starf heilsugæsl- unnar, sem er einnig fjölbreytt og skemmtilegt. Samhliða vinnunni á lyflækningadeild hef ég í gegnum árin setið í ýmsum nefndum, fé- lögum, ráðum og teymum innan og utan stofnunarinnar er snúa að ólíkum þáttum innan heilbrigðis- geirans. En ég tel að það sé mik- ilvægt fyrir heilbrigðisstarfsfólk að vinna á öðrum sviðum sem tengjast beint og óbeint starfinu því þannig öðlast maður víðtækari reynslu og aðra sýn á það. Aðstoðardeildarstjóri lyflækningadeld Árið 2017 tók ég við sem aðstoð- ardeildarstjóri á lyflækningadeild HVE. Hjúkrunin á lyflækninga- deildinni er mjög víðtæk. Þetta er 18 rúma legudeild sem veitir al- menna og bráðaþjónustu í lyflækn- ingum. Það sem einkennir bráða- hluta starfsins á deildinni er fjöl- breytileiki, hraði og óvæntar upp- ákomur. Auk þess tekur deild- in einnig við sjúklingum í stutt- ar hvíldar- og endurhæfingarinn- lagnir. Á lyflækningadeildinni er vaktþjónusta sérfræðings allan sól- arhinginn. Deildin tekur við ólík- um sjúklingahópum. Má þar nefna hjarta- og lungnasjúklinga, sjúk- linga sem þjást af ýmiss konar sýk- ingum, sjúklinga með ýmiss kon- ar nýrna-, gigtar-, krabbameins-, meltingar- eða innkirtlavanda- mál ásamt ýmsu öðru. Þetta gerir það að verkum að þeir sem starfa á deildinni eru vel þjálfaðir í að vinna með mismunandi sjúklingahópa vegna fjölbreytileika deildarinnar. Starfsfólkið þarf að hafa yfirgrips- mikla þekkingu og geta beitt henni fljótt og skjótt þegar þörf er á en þó um leið á öruggan hátt. Á deildinni er mjög góður starfsandi, þar vinn- ur frábært starfsfólk sem margt hef- ur langa og mikla starfsreynslu. Það eru forréttindi að fá að vinna á slík- um vinnustað enda er vinnan svo stór hluti af lífinu. Bætti við sig kennsluréttindum Árið 2008 ákvað ég að bæta við mig kennsluréttindum frá KHÍ sem hafa komið vel að notum í ýmiss konar fræðslu og kennslu í tengslum við vinnuna. Námið nýttist mér vel þegar ég vann sem skólahjúkrunarfræðingur, þar sem mjög stór hluti af því starfi í dag er fræðsla, heilsuefling og forvarnir. Eins er HVE kennslusjúkrahús þar sem við fáum til okkar nema inn- an heilbrigðisstéttarinnar og því nýtist námið einnig vel á því sviði. Árið 2011 sótti ég réttindi frá RKÍ sem leiðbeinandi í skyndihjálp. Ég, ásamt Láru Björk Gísladóttur og Ólínu Ingibjörgu Gunnarsdóttur sem einnig eru hjúkrunarfræðingar, höfum verið með reglulega kennslu fyrir ýmsa hópa, fyrirtæki og starfs- fólk HVE. Kennslan er afar líf- legt og skemmtilegt starf. Við höf- um ferðast víða og hitt ólíka hópa sem gaman er að kenna. Markmið kennslunnar er að kenna rétt við- brögð í neyð og einfaldar aðferð- ir skyndihjálpar. Sá sem kann fáein einföld undirstöðuatriði í skyndi- hjálp getur bjargað mannslífi eða komið í veg fyrir að hinn veiki eða slasaði verði fyrir varanlegum skaða. Eins og fram hefur komið er starfið fjölbreytt og krefjandi en jafnframt gefandi og skemmtilegt. Það er mikill kostur að geta valið um mismunandi vinnuumhverfi og vinnutíma því það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Sumir kjósa dagvinnu á meðan vaktavinn- an hentar öðrum betur. Ég er svo lánsöm að hafa komið nokkuð víða við síðastliðin ár, sem hefur aukið þekkingu mína og reynslu á ólíkum sviðum. Það er einmitt það sem er svo heillandi við starfið, allur þessi fjölbreytileiki! Að læra hjúkrun opnar svo marga möguleika sem hægt er að starfa við og nýta sér al- mennt í lífinu. Í framtíðinni sé ég mig áfram starfa við hjúkrun en á hvaða hátt eða hvar í heiminum mun tíminn leiða í ljós. Ég mun að minnsta kosti alltaf geta nýtt mér þekk- inguna sama hvaða verkefni ég tek mér fyrir hendur. Anna Þóra Þorgilsdóttir hjúkrun- arfræðingur. Hjúkrunin á lyflækningadeildinni er mjög víðtæk Anna Þóra Þorgilsdóttir, aðstoðardeildarstjóri lyflækningadeildar HVE. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.