Skessuhorn - 14.08.2019, Qupperneq 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 32–33. tbl. 22. árg. 14. ágúst 2019 - kr. 750 í lausasölu
Opið daglega
10:00-18:00
Kjöt,
Fiskur og
Grænmeti
Ljómalind Sveitamarkaður,
Brúartorgi 4, Borgarnesi
Sími 537-1400,
Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Grásleppuveiði hefur gengið vel
í Stykkishólmi í sumar. Feðgarnir
Lárus Franz Hallfreðsson og Ein-
ar sonur hans á Ögra SH eru byrj-
aðir að taka upp netin. Létu þeir
vel af vertíðinni. Sömu sögu hafði
Emil Þór Guðbjörnsson að segja,
en hann var að landa upp úr Maí
SH þegar ljósmyndari Skessuhorns
átti leið um nýverið. Aðgerðaborð-
ið hjá Emil var fullt af grásleppu og
mikið líf og fjör.
Davíð Einar Hafsteinsson lönd-
unarmaður skar framan af þumli
við rabbarbaraskurð fyrr í sumar og
getur því ekki spilað golf, að eigin
sögn. Hann getur hins vegar mætt
til vinnu og unnið með sína níu og
hálfa fingur og brosir hér framan í
myndavélina. sá
Síðdegis í dag, miðvikudaginn 14.
ágúst, verður stór stund í íslenskri
samgöngusögu. Þá verður formleg
opnun á nýjum fimm kílómetra veg-
arkafla í Berufirði á Austfjörðum.
Vegurinn er jafnframt lokaáfangi
lagningar bundins slitlags á Hring-
veginn, sem alls er 1.322 kílómetr-
ar. Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra mun klippa á borða
og vígja veginn, en í framhaldi þess
verður boðið upp á kaffi, flutt ávörp
og að auki afhjúpaður skjöldur sem
settur verður upp í tilefni af því að
Hringvegurinn er loks malbikaður
alla leið en þar með lýkur verkefni
sem hófst fyrir fjörutíu árum.
mm
Umferðin í júlí á Hringvegi eitt
umhverfis landið jókst um 1,4% að
jafnaði í júlí. Það er minnsta aukn-
ing í umferðinni í þessum mánuði
síðan árið 2012. Í tilkynningu frá
Vegagerðinni segir að útlit sé fyr-
ir að aukning umferðar í ár í heild
gæti numið 2,7% sem að sama skapi
væri minnsta aukning síðan árið
2012. Samdráttur í umferð mælist
á Austurlandi. Af fimm skilgreind-
um svæðum Vegagerðarinnar, varð
einungis aukning um tvö þeirra eða
á Vesturlandi um 6,1% og yfir lyk-
ilteljara á og í grennd við höfuð-
borgarsvæðið um 3,3%. Um önn-
ur svæði varð samdráttur og mest-
ur varð hann á Austurlandi þar sem
varð 6,9%. Umferð jókst mest um
lykilteljara í Hvalfjarðargöngum
eða um 9,5% í júlí en mestur sam-
dráttur mældist um lykilteljara á
Mývatnsheiði í Þingeyjarsýslu, eða
um 10,9%.
Umferð á landinu hefur aukist
um 4,2% frá áramótum sem er ná-
kvæmlega sama staða og var uppi
á síðasta ári. Mest hefur umferð
aukist um Vesturland og minnst
um Austurland en þar mælist 3,1%
samdráttur og er það eina svæð-
ið á landinu þar sem umferð hefur
dregist saman frá áramótum. „Nú
stefnir í að umferðin geti aukist um
2,7% á árinu hegði umferðin sér
líkt og venja er til,“ segir í tilkynn-
ingu Vegagerðarinnar.
mm
Grásleppu-
veiðin hefur
gengið vel frá
Stykkishólmi
Hringvegurinn loks
malbikaður alla leið
Langmest umferðar-
aukning um Vesturland