Skessuhorn - 14.08.2019, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 20196
Sumarlestri að
ljúka
AKRANES: Alls voru rúm-
lega 200 börn skráð í Sumar-
lesturinn á Bókasafni Akraness
að þessu sinni. 150 þeirra voru
virkir lesendur í sumar. „Þetta
er mun meiri þátttaka en síð-
ustu ár og erum við mjög
ánægð með árangurinn,“ segir
starfsfólk bókasafnsins í sam-
tali við Skessuhorn. Alls voru
lesnar 1760 bækur og blað-
síðurnar voru 114.306. Í dag,
miðvikudaginn 14. ágúst, verð-
ur lokahátíðin Húllum – hæ á
Bókasafninu og hefst gleðin
klukkan 14.00. Gestur hátíð-
arinnar verður Stjörnu-Sæv-
ar, Sævar Helgi Bragason, og
verður með eitthvað skemmti-
legt í farteskinu. Happdrættið
verður á sínum stað og verður
dregið úr netinu. Síðan fá all-
ir hressingu.
-mm
Dýralæknisþjón-
usta tryggð
VESTFIRÐIR: Náðst hefur
samkomulag við Sigríði Ingu
Sigurjónsdóttur dýralækni
um að draga til baka uppsögn
sína á samningi um að sinna
almennri dýralæknaþjónustu
á Vestfjörðum. Dýralæknis-
þjónusta er því tryggð á Vest-
fjörðum frá og með 15. ágúst
til og með 31. október, en þá
rennur samningurinn út ásamt
öðrum þjónustusamningum
dýralækna í dreifðum byggð-
um landsins. Ráðherra land-
búnaðarmála hefur ákveðið að
skipa starfshóp um þjónustu
dýralækna í dreifðum byggð-
um og vaktþjónustu dýra-
lækna. Matvælastofnun hef-
ur auglýst þjónustusamninga
dýralækna lausa til umsókn-
ar og þá með endurskoðunar-
ákvæði með vísan til breytinga
sem kunna að verða gerðar í
kjölfar niðurstöðu starfshóps
ráðherra, að því að fram kem-
ur í tilkynningu frá Matvæla-
stofnun.
-mm
Fremur róleg
vika hjá lögreglu
VESTURLAND: Liðin vika
var heilt yfir róleg hjá Lög-
reglunni á Vesturlandi. Fimm
umferðaróhöpp voru skráð í
umdæminu en engin teljan-
leg slys urðu á fólki. Einn bíll
var töluvert skemmdur eftir
veltu við Klofning í Dölum.
Sex manns voru stoppaðir fyr-
ir að nota farsíma við akstur án
handfrjáls búnaðar og einn var
tekinn fyrir ölvun við akstur.
–arg
María ráðin í
nýtt starf
BORGARBYGGÐ: María
Neves hefur verið ráðin í nýtt
starf verkefnastjóra atvinnu-,
markaðs- og menningarmála
hjá Borgarbyggð. Alls bárust
14 frambærilegar umsókn-
ir um starfið, að því greint
er frá á vef sveitarfélagsins.
„Eftir úrvinnslu umsókna var
ákveðið að ráða Maríu Neves
í starfið. María lauk BA prófi
í Miðlun og almannatengslum
frá Háskólanum á Bifröst árið
2018 og stundar nú meistara-
nám í markaðsfræði. Einnig
hefur María Gdip próf í við-
burðastjórnun frá Háskól-
anum á Hólum. María hef-
ur unnið sem verkefnastjóri
hjá Akraneskaupstað við við-
burðastjórnun, kynningar- og
markaðsmál, stafræna mark-
aðssetningu, auglýsingagerð,
upplýsingatækni og innri og
ytri samskiptamál frá árinu
2016 en starfaði áður hjá Rit-
ara ehf. og Iceland travel
sem samfélagsmiðlafulltrúi
og verkefnastjóri við upplýs-
inga-, auglýsinga- og mark-
aðsmál frá árinu 2012. María
mun hefja störf hjá Borgar-
byggð um miðjan september.
-mm
Pálmatrjám
plantað í
Laugardalnum
RVK: Búið er að gróðursetja
fimm pálmatré í Laugardaln-
um í Reykjavík í góðu skjóli
við Sunnuveg þar sem fylgst
verður með því hvernig plönt-
urnar munu pluma sig næsta
vetur. Garðyrkjufræðingarn-
ir Guðlaug Guðjónsdóttir og
Hannes Þór Hafsteinsson áttu
frumkvæðið að þessari tilraun
og hafa umsjón með plönt-
unum. Markmiðið með til-
rauninni er að kanna hvernig
þessar plöntur dafna í íslenskri
veðráttu en plönturnar fimm
eru af sérstöku yrki sem vex í
Himalayafjöllum í Asíu. Enn-
fremur er tilgangur tilraunar-
innar að auka við flóruna og
prófa sig áfram með aukna
fjölbreytni í gróðri í borgar-
landinu. Búið verður vel um
plönturnar þegar kólna tek-
ur, samkvæmt tilkynningu frá
Reykjavíkurborg.
-glh
á síðasta degi júlímánaðar voru hjá
Vegagerðinni opnuð tilboð í leng-
ingu Norðurgarðs Ólafsvíkurhafn-
ar. Hafnarstjórn Snæfellsbæjar hafði
endurauglýst útboð þar sem einung-
is barst eitt tilboð, 80% yfir kostn-
aðaráætlun, þegar það var auglýst í
vor. Að þessu sinni reyndist áhugi
verktaka mun meiri og sjö tilboð
bárust. Reyndust þau öll yfir kostn-
aðaráætlun Vegagerðarinnar sem
hljóðar upp á 128 milljónir króna.
Lægsta tilboð átti Grjótverk ehf.
á Hnífsdal, 147 milljónir króna,
sem er tæplega 15% yfir áætluðum
kostnaði. Borgarverk ehf. átti næst-
lægsta boð; 153,4 milljónir króna.
Í verkinu felst útlögn grjóts og
kjarna upp á 36 þúsund rúmmetra
auk upptektar og endurröðunar tvö
þúsund rúmmetra. Lengja á hafnar-
garðinn um 80 metra og breyta nú-
verandi garði meðal annars á þá lund
að hægt verði að aka eftir honum.
Verktími var lengdur í síðari auglýs-
ingu útboðs en verkinu skal að fullu
lokið 1. september 2020. mm
Fyrr í sumar voru hjá Vega-
gerðinni opnuð tilboð í endur-
gerð Grímarsstaðavegar í Anda-
kíl í Borgarfirði, en hann liggur
frá Hvanneyrarvegamótum og að
gömlu Hvítárbrúnni. Vegur þessi
var þjóðleið milli landshluta allt
þar til Borgarfjarðarbrú var vígð
haustið 1981. Eftir það, og reynd-
ar nokkru áður einnig, var hann
án viðhalds. Í frétt Skessuhorns
frá apríl 2017 kom m.a. fram að
vegur þessi væri með þeim lélegri
sem um getur, og sé þó samanburð
víða að finna. Rifjað var upp hve-
nær vegurinn fékk síðast ærlegt
viðhald með ofaníburði og endur-
byggingu af einhverju tagi. Elstu
menn rak ekki minni til að vegur-
inn hafi fengið viðhald með ofaní-
burði og lagfæringum síðan 1969,
eða í hálfa öld.
Alls verður lagður nýr 5,8 kíló-
metra uppbyggður vegur með
bundnu slitlagi. Verkinu skal að
fullu lokið 1. ágúst á næsta ári.
Þrjú fyrirtæki buðu í verkið og
reyndust tvö tilboðanna undir
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
sem hljóðar upp á 103 milljónir
króna. Lægsta boð átti Borgarverk
ehf. 95,1 milljón króna sem er
92,3% af kostnaðaráætlun. Þrótt-
ur ehf. á Akranesi bauð 99,3 millj-
ónir króna og Mjölnir á Selfossi
131 milljón. mm
Grímarsstaðavegur
Ljósm. úr safni frá vorinu 2017.
Ráðist í gerð nýs vegar frá
Hvanneyri að Hvítárbrú
Fleiri buðu nú í
lengingu Norðurgarðs