Skessuhorn


Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 201912 Ungmenni í vinnuskólanum í Borg- arnesi hafa verið dugleg að dytta að og fegra bæinn sinn í sumar. Eru ýmis verk sem þurft hefur að sinna yfir sumartímann og gleðja mörg þeirra bæjarbúa og gesti sem eiga leið um bæinn. Nýverið var gert við bekk sem staðsettur er fyrir neðan Egilsgöt- una og málaði hópurinn hann eld- rauðan í stíl við vegglistina þar hjá, en þessi bekkur hefur verið vinsæll staður í röðum ferðafólks. Settu ungmennin jafnframt niður staura og máluðu gönguleiðir upp á úti- vistarsvæðið í Einkunnum ásamt því að hreinsa fjöruna í Englendinga- vík af glerbrotum og rusli. Einnig hefur hópurinn útbúið skemmtilegt og litríkt skilti sem blasir við þeg- ar fólk tekur vinstri beygjuna inn í bæinn. Skiltið er staðsett á túninu andspænis heilsugæslustöðinni og því vel áberandi við aðalgötu bæj- arins. Þar má lesa um áhugaverða staði sem leynast í nærumhverfinu nær og fjær og er góður byrjunar- reitur fyrir gesti sem ekki eru viss- ir hvert þeir eigi að fara. til dæmis er Eyjafallajökull merktur á skiltið, sundlaugin í Borgarnesi, vatnstank- urinn uppi í Bjargslandi og ástralía svo fátt eitt sé nefnt. glh Mokveiði hefur verið hjá makríl- bátunum á Snæfellsnesi að undan- förnu eða allt að 20 tonn á dag þeg- ar best lætur. Bárður Jóhönnusson skipstjóri á Júlla Páls var ánægð- ur með veiðarnar þegar fréttaritari hitti hann á kajanum um helgina. Hann segir að makríllinn hafi kom- ið fyrr í ár en á síðasta ári og bætti við að hann hafi ekki byrjað veiðar fyrr en 12. ágúst í fyrra en nú þeg- ar sunnudaginn 11. ágúst var afl- inn orðinn um 120 tonn hjá hon- um. „Við erum að veiða í beitu fyr- ir Kristinn SH en við veiddum 80 tonn sem verða notuð á komandi línuvertíð,“ sagði Bárður. af Stykkishólmsbær hefur hafnað beiðni Verkalýðsfélags Snæfellinga um eingreiðslu til handa félags- mönnum VLFS. á fundi bæjaráðs 31. júlí síðastliðinn var tekið fyr- ir erindi frá félaginu, en það hafði verið sent öllum sveitarfélögum á starfssvæði félagsins. Snýst erindið um þá stöðu sem nú ríkir í samn- ingamálum félagsmanna sem vinna hjá sveitarfélögum á félagssvæðinu. Í bréfi stéttarfélagsins kemur fram að mikið beri á milli í kjaradeilunni og vísaði Starfsgreinasamband Ís- lands, sem fer með samningsum- boð félagsins, deilunni til ríkissátta- semjara 28. maí síðastliðinn. Næsti fundur í deilunni hefur verið boð- aður 21. ágúst nk. hjá ríkissátta- semjara. „Samninganefnd Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hef- ur að undanförnu samið við önnur sambönd og stéttarfélög um frest- un viðræðna og friðarskyldu til 15. september. Samið hefur ver- ið við þessa aðila um eingreiðlsu/ innágreiðslu upp á 105.000 krón- ur miðað við fullt starf. Samninga- nefnd sveitarfélaga hefur neitað að slíkt tilboð standi til boða fyrir að- ildarfélaga Starfsgreinasambands- ins þar sem búið væri að vísa deil- unni til Ríkissáttasemjara,“ seg- ir í bókun bæjarráðs Stykkishólms vegna afgreiðslu málsins. Þá segir í bókun bæjarráðs að þrátt fyrir þessa afstöðu samninga- nefndarinnar vilji Verkalýðsfélag Snæfellinga fara þess á leit við sveit- arfélögin á félagssvæðinu að þau greiði starfsmönnum sem starfa eft- ir kjarasamningi Starfsgreinasam- bands Íslands viðlíka innágreiðslu 1. ágúst miðað við fullt starf. Bæjarráð Stykkishólms bend- ir á að Stykkishólmsbær hafi veitt samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til samninga fyrir sína hönd 14. des- ember 2018. Þar sem sambandið fer með fullnaðarumboð til kjara- samningagerðar, fyrir hönd Stykk- ishólmsbæjar, telur bæjarráð að Stykkishólmsbæ sé óheimilt að hafa hverslags afskipti af kjarasamn- ingsgerð. Enn fremur skuldbindur Stykkishólmsbær sig til þess að hlíta markmiðum og stefnu sambandsins í kjaramálum og þeim samningum sem sambandið gerir fyrir þeirra hönd. „Af framangreindu leiðir að bæjarráð getur ekki orðið við er- indi Verkalýðsfélags Snæfellinga þar sem samningsumboð sveitar- félagsins er hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga,“ segir í bókun byggð- arráðs sem hvatti jafnframt samn- ingsaðila til að ná saman um samn- inga hið fyrsta. mm Þessar fallegu dráttarvélar eru í eigu Hinriks Hinrikssonar frá Helgafelli, sem býr í Stykkishólmi. Hefur hann sjálfur gert vélarnar upp. Þær eru svo teknar út á sunnudögum og tyll- ir Hinrik íslenska fánanum á þær til skrauts. Bragginn í baksýn er nýttur sem handverkshús og glerlistakona sem hefur þar aðsetur. mm Um liðna helgi vann listateym- ið Krot og Krass að gerð lista- verks á gafli skemmu Borgarverks í Brákarey í Borgarnesi. Að Kroti og Krassi standa þau Björn Loki og Elsa Jónsdóttir. Verkið tengd- ist Plan B listahátíðinni sem hald- in var um helgina. Að sögn Sigur- steins Sigurðssonar eins forsprakka hátíðarinnar er ekki vitað um nafn listaverksins, en sannarlega setur það svip sinn á húsgaflinn. þg Svavar Kristmundsson á Júlla Páls við löndun. Mokveiða makríl sem notaður verður í beitu Skemmtilegt og litríkt skilti við aðalgötu bæjarins. Dytta að umhverfinu í Borgarnesi Skilti af Borgarnes er Happiness sem er jafnframt frasi sem mörgum Borgnes- ingum þykir gaman að halda á lofti. Teknar út á sunnudögum Vegglist í Brákarey Stykkishólmsbær hafnar kröfu VLFS um eingreiðslu til félagsmanna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.