Skessuhorn - 14.08.2019, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 2019 21
Umhverfisviðurkenningar 2019
Borgarbyggð veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera
ásýnd sveitarfélagsins enn snyrtilegri.
Veittar verða umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð 2019 í eftirfarandi fjórum flokkum:
1. Snyrtilegasta bændabýlið
2. Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús
3. Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði
4. Sérstök viðurkenning umhverfis- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála
Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og getur hver og einn sent inn margar tilnefningar.
Tilnefningar óskast sendar í Ráðhús Borgarbyggðar í bréfi eða tölvupósti á netfangið
borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en 25. ágúst 2019.
Sumarlesari
vikunnar
Nú kynnum við til leiks síð-
asta sumarlesara vikunn-
ar á Bókasafni Akraness, en
lokahátíð lestrarins verður í
dag á safninu.
Hvað heitir þú og hvað ertu
gömul?
Ég heiti Vala Rún og er 8 að
verða 9 ára.
Í hvaða skóla ert þú?
Grundaskóla.
Hvaða bók varstu að lesa og
hvernig var hún?
Ég var að lesa Judy Moody.
Hún var skemmtileg.
Hvar er best að vera þegar
þú ert að lesa?
Í rúminu þegar ég er að fara
að sofa.
Hvernig bækur finnast þér
skemmtilegastar?
Ævintýrabækur og svolítið
fyndnar, helst pínu þykkar
og með stórum stöfum.
Áttu þér uppáhalds bók eða
uppáhalds rithöfund?
David Walliams bækurnar.
Er þetta í fyrsta sinn sem
þú tekur þátt í sumarlestr-
inum?
Nei, ég tók þátt á seinasta
ári.
Hvað ætlar þú að gera það
sem eftir er af sumarinu?
Vera með fjölskyldunni.
Ef þú værir föst á eyðieyju
og gætir kallað á eina bóka-
persónu til að bjarga þér,
hvaða persónu myndir þú
velja?
Lísu úr Handbók fyrir ofur-
hetjur.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
eru nýverið lagðir af stað í fimm-
tán funda ferð um landsbyggðina
þar sem almenningi er boðið að
hitta þá að máli. Einn slíkur fundur
var haldinn í hádeginu í gær í Frí-
stundamiðstöðinni við Garðavöll
á Akranesi. Sex þingmenn flokks-
ins mættu og hafði Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins og ráðherra
framsögu fyrir þeirra hönd. Kom
hún víða við í máli sínu en fyrir-
ferðarmest var umræðan um þriðja
orkupakkann.
Þórdís fór í máli sínu yfir sam-
starfið í ríkisstjórn, nú þegar kjör-
tímabilið er hálfnað, og þann ár-
angur sem ríkisstjórnin er að ná
á ýmsum sviðum. Nefndi hún að
kaupmáttur ráðstöfunartekna hef-
ur verið að aukast og að þriðjung-
ur allra fasteignaviðskipta að und-
anförnu væri hjá fólki sem væri að
kaupa sína fyrstu húseign. Þá hafi
verið leyst farsællega úr kjarasamn-
ingsgerð í vor, meðal annars með
aðkomu stjórnvalda. Í kjaraviðræð-
um hafi það reynst kostur að ólíkar
Orkumál fyrirferðarmest á fundi Sjálfstæðisfólks
flokkar skipuðu ríkisstjórn. Sagði
hún að vissulega kallaði samstarf
þriggja ólíkra flokka í ríkisstjórn
á málamiðlanir af allra hálfu. Þá
nefndi Þórdís að sótt væri að Sjálf-
stæðisflokknum úr ýmsum og jafn-
vel óvæntum áttum. Nefndi hún
einarða afstöðu ritstjórnar Morg-
unblaðsins í orkupakkamálinu en
jafnframt að nú væri Fréttablað-
ið rekið af baklandi Viðreisnar og
þess sæjust merki. Pólitískt ætti
því Sjálfstæðisflokkurinn í vörn við
ýmsa aðra en stjórnarandstöðuna á
þingi.
Í framsögu Þórdísar Kolbrún-
ar, og innleggi Kristjáns Þórs Júlí-
ussonar og áslaugar Örnu Sigur-
björnsdóttur á fundinum, kom
fram að Sjálfstæðisflokkurinn á í
mikilli vörn vegna misvísandi og
jafnvel rangra upplýsinga um hvað
í þriðja orkupakkanum felst. Um
tilurð þriðja orkupakkans fjallaði
Þórdís Kolbrún ítarlega. Hún tók
það skýrt fram að ekkert í sam-
þykkt þriðja orkupakkans fæli í sér
afsal auðlinda. „Ég myndi aldrei
leggja til mál sem fæli í sér að við
Íslendingar afsöluðum okkur yfir-
ráðum yfir auðlindum okkar,“ sagði
Þórdís. taldi hún engar líkur á að
ráðist verði í lagningu sæstrengs og
orkusölu úr landi. Fyrir því væru
hvorki markaðslegar né tæknileg-
ar forsendur. Slík fjárfesting kost-
ar 800 milljarða króna og því væru
engar viðskiptalegar forsendur fyr-
ir sölu raforku úr landi í fyrirsjáan-
legri framtíð. Engir innviðir hér á
landi væru til staðar fyrir slíkt verk-
efni og þá þyrfti sérstakt samþykki
Alþingis ætti að koma til lagning-
ar sæstrengs og sölu orku úr landi.
Deildi Þórdís Kolbrún á forvígis-
menn Miðflokksins sem sjálfir sátu
í ríkisstjórn þegar drög að málinu
og umsögn um það var til umræðu.
Í máli Þórdísar Kolbrúnar kom
einnig fram að fimm stórfyrirtæki
kaupa nú um 80% þeirrar orku sem
hér er framleidd. Heimili í land-
inu nota einungis um 5% orkunn-
ar. „Íslendingar ættu því að líta á
sig sem seljendur orku, í stað þess
að líta eingöngu á sig sem notend-
ur. Við þurfum að svara spurning-
um á borð við hvernig við getum
fengið sem mest fyrir orkuna sem
við sannanlega eigum,“ sagði hún.
Jafnframt kom fram hjá henni og
fundargestum að Íslendinga vant-
ar að setja sér heildstæða stefnu í
orkumálum. Orkustefna Íslands
væri einfaldlega ekki til og slíkt
stefnuleysi væri bagalegt. mm
Þétt setið var í fundasal í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll.
Þingennirnir Kristján Þór Júlíusson, Haraldur Benediktsson, Bryndís Haraldsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörndóttir, Þórdís Kol-
brún Reykfjörð Gylfadóttir og Vilhjálmur Árnason.