Skessuhorn - 14.08.2019, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 14. áGúSt 201924
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Ifor Willams Kerrur
í öllum stærðum og útfærslum
Heimsmeistaramóti íslenska hestsins
lauk í Berlín á sunnudaginn. Íslend-
ingar hlutu sex gullverðlaun af níu í
flokki fullorðinna, eitt gull í flokki
ungmenna og fjögur af sex kynbóta-
hrossum sem Íslendingar sendu á
mótið urðu efst í sínum flokki. Fjallað
er um mótið á vef Landssambands
hestamannafélaga:
Jóhann Rúnar Skúlason varð þre-
faldur heimsmeistari á hesti sínum
Finnboga frá Minni-Reykjum. Þeir
unnu tölt, fjórgang og samanlagðar
fjórgangsgreinar. Jóhann fékk einnig
verðlaun fyrir bestu reiðmennskuna á
mótinu.
Íslenska liðið var með fullt hús í
skeiðgreinum. teitur árnason og
Dynfari frá Steinnesi eru heimsmeist-
arar í gæðingaskeiði, Guðmundur
Björgvinsson og Glúmur frá Þór-
oddsstöðum eru heimsmeistarar í
250m. skeiði og Konráð Valur Sveins-
son og Losti frá Ekru eru heimsmeist-
arar í 100m. skeiði. Í flokki ungmenna
urðu Benjamín Sandur Ingólfsson og
Messa frá Káragerði heimsmeistarar í
gæðingaskeiði. Allir ofantaldir knapar
unnu sér þar með þátttökurétt á næsta
heimsmeistaramóti sem verður haldið
í Herning í Danmörku eftir tvö ár.
Bergþór Eggertsson og Besti frá
Upphafi unnu til bronsverðlauna í
gæðingaskeiði, ásdís Ósk Elvarsdóttir
og Koltinna frá Varmalæk urðu í öðru
sæti í tölti í flokki ungmenna og í
þriðja til fimmta sæti í fjórgangi ung-
menna, jöfn þeim urðu Hákon Dan
Ólafsson og Stirnir frá Skriðu ásamt
hinni dönsku Kristine B. Jörgensen
og tý frá Þverá. ásdís Ósk og Kolt-
inna urðu einnig í öðru sæti í saman-
lögðum árangri í fjórgangsgreinum.
árni Björn Pálsson og Flaumur frá
Sólvangi voru efstir inn í úrslit í fjór-
gangi en enduðu í fimmta sæti. ás-
mundur Ernir Snorrason og Frægur
frá Strandarhöfði voru efstir inn í b-
úrslit í fjórgangi en enduðu í 7. sæti á
eftir Irenu Reber og Þokka frá Efstu-
Grund.
Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía
frá Hamarsey voru þriðju inn í a-úr-
slit í slaktaumatölti en enduðu í 5.
sæti, heimsmeistari í slaktaumatöli
varð hin danska Julie Christiansen
og Stormur frá Hemlu.
Olil Amble og álfarinn frá Syðri-
Gegnishólum voru efst inn í úr-
slit í fimmgangi en enduðu í 6. sæti,
Gústaf ásgeir Hinriksson og Sproti
frá Innri-Skeljabrekku urðu í fimmta
sæti en Jón Stenild og Eilífur frá
teglborg frá Danmökru unnu sann-
færandi sigur og eru heimsmeist-
arar í fimmgangi. Magnús Skúla-
son og Valsa frá Brösarpsgården
urðu heimsmeistarar í samanlögðum
fimmgangsgreinum en þau keppa
fyrir Svíþjóð.
Íslensku hrossin stóðu sig vel í kyn-
bótasýningu mótsins. Mjallhvít frá
Þverholtum varð efst í flokki fimm
vetra hryssna, knapi á Mjallhvíti var
Þórður Þorgeirsson. Eyrún Ýr frá
Hásæti varð efst í flokki sex vetra
hryssna, knapi á Eyrúnu var Eyrún
Ýr Pálsdóttir, Elja frá Sauðholtum
var efst í flokki sjö vetra hryssna og
var einnig hæst dæmda hross móts-
ins, knapi á Elju var árni Björn Páls-
son, Spaði frá Barkarstöðum var
efstur í flokki sex vetra hesta, knapi
á Spaða var Helga Una Björnsdótt-
ir. Hamur frá Hólabaki varð annar í
flokki fimm vetra stóðhesta, knapi á
Hami var tryggvi Björnsson.
Íslenska liðið vann til flestra verð-
launa á mótinu og hlaut að launum
liðabikarinn.
„Þetta er besti árangur íslenska
landsliðsins í hestaíþróttum frá 2007
og ef öll gull eru talin í flokki ung-
menna og kynbótahrossa hefur ár-
angurinn aldrei verið betri því lið-
ið fór heim með ellefu gullverðlaun
alls,“ segir í frétt LH frá mótinu.
mm
Frábær árangur íslenska landsliðsins á HM
Jóhann Rúnar Skúlason varð þrefaldur heimsmeistari á hesti sínum Finnboga frá Minni-Reykjum.