Skessuhorn - 28.08.2019, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 2019 17
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í eftirfarandi:
„Rekstur og umsjón Bíóhallarinnar 2020-2023“
Akraneskaupstaður auglýsir eftir áhugasömum aðila til að sjá um rekstur
og umsjón Bíóhallarinnar á Akranesi. Rekstur Bíóhallarinnar skal vera í
samræmi við gildandi menningarstefnu Akraneskaupstaðar hverju sinni
og þannig bjóða upp á umgjörð og stuðning við menningu í bæjarfélaginu
í þeim tilgangi að sköpun og upplifun menningar og lista blómstri.
Bíóhöllin var stofnuð árið 1942 og leggur Akraneskaupstaður áherslu á
að starfsemi í húsinu samræmist menningarsögu hússins.
Bíóhöllin samanstendur af eftirfarandi:
Húsnæði, alls 753,27 m²•
Salur ásamt leiksviði 415,45 m² (209 hefðbundin bíósæti og 24 ◊
lúxus bíósæti).
Undir sviði 73,56 m² (búningsherbergi og snyrtingar).◊
Anddyri 215,28 m² (aðalinngangur, miðasöluherbergi, snyrt-◊
ingar, veitingasala og geymsla).
Sýningarherbergi og skrifstofa 48,98 m².◊
Rekstraraðili tekur við húsnæði í núverandi ástandi með öllum þeim
búnaði sem snýr að daglegum rekstri og er í eigu Akraneskaupstaðar.
Með tilboði skal fylgja greinargerð þar sem lýst er fyrirhugaðri nýtingu
á Bíóhöllinni í því skyni að standa fyrir öflugu menningarlífi í húsinu.
Eftirfarandi skal koma fram í greinargerð og verða umsóknir
metnar á grundvelli eftirfarandi þátta:
Fyrirhuguð menningarstarfsemi og framtíðarsýn fyrir Bíóhöllina á •
tímabilinu 2020-2023.
Reynsla umsækjanda af menningarstarfsemi, viðburðahaldi og •
rekstri fyrirtækis.
Viðskiptamódel/Rekstraráætlun.•
Markaðsáætlun.•
Útboðsgögn verða afhent áhugasömum frá og með miðvikudeginum
28. ágúst 2019. Senda skal óskir um útboðsgögn
á netfangið akranes@akranes.is.
Tilboðum skal skilað í afgreiðslu bæjarskrifstofu Akraness, Stillholti
16-18, 1. hæð, eigi síðar en þriðjudaginn 17. september 2019 kl. 12:00 og
þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Auglýsing um útboð
Í síðustu viku sást til fólks á svif-
vængjum á ferð um Snæfellsnes-
ið. Það sem vakti þó athygli ljós-
myndara var að þessi svifvængir
voru vélknúnir. Hitti hann á þessa
ævintýramenn þegar þeir voru lent-
ir en þarna voru á ferð ofurhugar
sem hönnuðu og framleiddu þessa
ákveðnu tegund af vélknúnum svif-
vængjum. Bjóða þeir upp á ferðir á
ýmsa staði í heiminum þar sem svif-
vængjunum er flogið og fjölbreyttr-
ar náttúru notið. Hefur hópurinn
verið hér á landi síðan í lok júlí og
lauk á dögunum síðustu ferð sinni,
þremur ferðum á sex vikna tímabili.
Staðsetning á landinu var hverju
sinni valin með hliðsjón af veðri
og náttúru. Meðal annars var flog-
ið yfir og í kringum Skógafoss á
Suðurlandi þar sem meðfylgjandi
mynd var tekin. Síðasti hópurinn
sem var á ferðinni fór meðal ann-
ars um Snæfellsnes. Var hópurinn
mjög ánægðir með bæði með að-
stöðu, veður og móttökur.
þa
Ný snyrtistofa var opnuð 19. ágúst
síðastliðinn á Akranesi. Stofan ber
nafnið Deluxe Snyrtistofa og er til
húsa þar sem að sólbaðsstofan Ma-
ríkó er staðsett að Smiðjuvöllum
32. „Ég vissi af rýminu og það var
búið að bjóða mér að nota það síð-
asta árið, en ég vildi fá einhvern
með mér,“ sagði Ósk Hjartardótt-
ir, einn af eigendum Deluxe Snyrti-
stofu, í samtali við Skessuhorn. Ósk
og Gyða Agnarsdóttir eiga og reka
stofuna saman og hafa þær komið
sér upp huggulegri aðstöðu til að
snyrta og dekra við viðskiptavini
sína innan veggja sólbaðstofunnar.
„Mamma og stjúppabbi minn eiga
Maríkó og það var auka herbergi
þarna til afnota, tilvalið fyrir snyrti-
stofu,“ bætir Ósk við. Ósk og Gyða
ræddu það á einni kvöldvaktinni á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi, þar sem þær starfa sam-
an, að opna snyrtistofu og áður en
þær vissu voru þær búnar að opna
og byrjaðar að bóka viðskiptavini.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti á
nýju stofuna og spjallaði við þær
stöllur um aðdraganda og framtíð-
arsýn Deluxe Snyrtistofu.
Skyndiákvörðun
Stuttur tími leið frá því að þær vin-
konur töluðu um að opna stofuna
þar til þær ákváðu að slá til og hefja
rekstur en ákvörðunin var tekin á
einni kvöldvaktinni á sjúkrahús-
inu á Akranesi þar sem þær starfa
báðar sem sjúkraliðar. „Við vorum
að ræða þetta eitt kvöldið hvort við
ættum að opna stofu saman. Það
var svo bara í síðustu viku sem við
ákváðum að láta verða af þessu.
Mikil skyndiákvörðun í rauninni,“
segja þær.
Ósk og Gyða kynntust í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi þar sem þær hafa verið að læra
sjúkraliðann og stefna á að útskrif-
ast þaðan í desember á þessu ári.
„Hugmyndin er að hafa snyrtistof-
una samhliða vaktavinnunni á spít-
alanum,“ bæta þær við en ásamt því
að læra sjúkraliðann þá eru þær báð-
ar einnig snyrtifræðingar að mennt.
Gyða er snyrtimeistari, lærði hjá
Snyrtiskóla Íslands og útskrifaðist
þaðan 2004. Í kjölfarið rak hún sína
eigin stofu, Deluxe snyrti- og dek-
urstofu, sem var staðsett í Glæsibæ
í Reykjavík. Síðar elti hún ástina til
Akraness þar sem hún hefur skot-
ið niður rótum með eiginmanni
sínum og börnunum þeirra þrem-
ur. „Það er æðislegt að vera hérna,
sérstaklega gott fyrir börn,“ segir
Gyða um Akranes.
Ósk er aftur á móti rótgróin
Skagamær. Hún er búsett á Akra-
nesi ásamt kærasta sínum og tveim-
ur börnum og útskrifaðist Ósk úr
Snyrtiakademíunni árið 2016.
Litun og vax vinsælast
Nóg hefur verið að gera frá því þær
byrjuðu að taka við fyrstu tíma-
pöntunum en svo virðist vera sem
litun og vax á augabrúnum sé vin-
sælast. „Augnháralengingarnar eru
mjög eftirsóknaverðar hjá mér. Það
er mikil þróun búin að vera í því
sem og augnhárapermanenti, það
er líka vinsælt,“ segir Gyða. Sam-
an deila þær dekur rýminu í Maríkó
og bóka tíma samkvæmt því. Hægt
er að hafa samband við þær í gegn-
um Facebook síðu stofunnar, De-
luxe snyrtistofa, og panta tíma eða
hringja í síma 771-4047, en ekki
verður hefðbundinn opnunartími
þar sem fólk getur gengið inn og
óskað eftir dekri eða annars konar
meðferðum og því hvetja þær við-
skiptavini til að hafa samband við
sig fyrir tímapantanir. Einnig er
hægt að sjá allar meðferðir sem eru
í boði á Facebook síðunni ásamt
verðskrá. „Þetta fer vel af stað og
við erum spenntar fyrir framhald-
inu,“ bætir Ósk við að lokum.
glh
Deluxe Snyrtistofa opnuð á Akranesi
Ósk og Gyða hafa opnað Deluxe Snyrtistofuna á Akranesi.
Á vélknúnum svifvængjum