Skessuhorn


Skessuhorn - 28.08.2019, Qupperneq 18

Skessuhorn - 28.08.2019, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 201918 Parið Quentin Monnier og Jamie Lai Boon Lee hittust fyrst í smala- mennsku hjá Bergsveini Reynissyni bónda á Gróustöðum í Gilsfirði. Hingað til lands koma þau úr sitt- hvorri áttinni, hann frá Frakklandi en hún er af kínverskum ættum en alin upp í Bandaríkjunum. Þótt þau hafi lítið kynnst fyrst þegar leiðir þeirra lágu í saman í smalamennsku þá átti það eftir að breytast nokkr- um mánuðum síðar á sömu slóðum. Í dag búa Quentin og Jamie saman í Króksfjarðarnesi í Reykhólasveit þar sem fréttaritari Skessuhorns náði tali af parinu. Tók fjórar grásleppu- vertíðar í röð Quentin Monnier er frá Angers í Frakklandi en hann kom til Íslands fyrir fjórum árum áhugasamur um að kynnast landi okkar og menn- ingu. „Ég vildi ferðast, kom hingað af því að ég var forvitinn um eldfjöll og einangruð svæði og hef mikinn áhuga á náttúrunni. Ég hafði ekki áhuga á að vera í borginni held- ur vildi ég sjá sveitirnar og hvern- ig fólk lifir í dreifbýlinu. Lands- lagið eitt og sér dugar ekki,“ seg- ir Quentin sem byrjaði dvöl sína sem sjálfboðaliði á Gróustöðum hjá Bergsveini Reynissyni, eða Begga eins og hann er jafnan kall- aður. Quentin hefur verið í sveit- inni meira og minna eftir það með búsetu við bryggjuna í Króksfjarð- arnesi. Sjómennsku hafði Quent- in ekki kynnst fyrr en hann fór að stunda sjóinn með Begga sem ger- ir út á bláskel frá Króksfjarðarnesi. Fyrir þremur árum komst Quentin einnig á grásleppu með feðgunum Gísla Baldurssyni og Baldri Gísla- syni í Búðardal. Þeir feðgar hafa gert út þrjá báta svo Quentin hef- ur náð þremur vertíðum í röð með þeim feðgum. Í ár bætti hann um betur og tók til viðbótar eina ver- tíð með Hlyni Gunnarssyni frá Hólmavík og náði því fjórum ver- tíðum í beit. Líklega er það met í sjósókn á þessum veiðum. „Það var góð grásleppuveiði í ár og það var mjög áhugavert að prófa bátinn frá Hólmavík því það er svo ólíkt verðurfar á þeim slóðum. Það er líka talsverður munur á veiðiað- ferðum út frá Hólmavík og hér á Breiðafirði þar sem ég hef siglt með Gísla og Baldri. Það þarf að halda lengra út og fara miklu dýpra út frá Hólmavík,“ segir Quentin sem hóf fyrstu vertíð ársins 20. mars og lauk þeirri síðustu snemma í ágúst. Lærði haf- og strand- veiðistjórnun á Ísafirði Jamie Lai Boon Lee, unnusta Quentin, er af kínverskum upp- runa en fæddist í San Francisco í Bandaríkjunum. Í uppeldinu segist Jamie hafa fengið góða blöndu af amerískri og kínverskri menningu. „Móðurmálin mín eru tvö; enska og kínverska eða Cantonese. Ég bjó í Hong Kong frá þriggja til sextán ára aldurs og grunnskólanámið fór því fram á Cantonese. Einhvern tímann heyrði ég þá speki að það tungumál sem þú notar til að telja er þitt móðurmál. Ég nota ennþá Cantonese þegar ég tel,“ segir Ja- mie sem einnig hefur lært talsvert í íslensku á dvöl sinni hér á landi. Jamie kom til Íslands til að stunda nám í Háskólasetri Vest- fjarða á Ísafirði og útskrifaðist það- an í haf- og strandsvæðastjórnun; Master of Resource Management. Þótt San Francisco í Kaliforníu sé við strandlengju ólst Jamie ekki upp við sjávarmenningu og þekkti lítið til. Námsvalið vakti því áhuga fréttaritara. „Mér er annt um umhverfið, dýr og sjóinn, en sjórinn þekur svo stóran hluta af jörðinni. Seinustu árin heyrum við meira af bráðnun jökla og áhrifin þess á sjóinn,“ seg- ir Jamie sem er einnig menntaður grafískur hönnuður og hafði verið að vinna sem slíkur í San Francisco áður en hún kom til Íslands. Jamie vinnur á Reykhólum á Báta- og hlunnindasýningunni og síðastlið- inn vetur vann hún einnig í félags- starfi unglinga á Reykhólum. Hittust fyrst í smalamennsku Jamie kom fyrst í Reykhóla- sveitina til að sinna rannsóknar- vinnu tengdri náminu við haf- og strandsvæðastjórnun. Þegar kom að smalamennsku langaði Jamie að taka þátt og leitaði til Begga á Gró- ustöðum og það var auðsótt mál. „Þá hittumst ég og Quentin fyrst, í bílnum hans Begga í Gilsfirði. Og það vita allir að Beggi á bara bíl- druslur,“ bætir Jamie við hlæjandi og Quentin tekur undir. „Við vor- um í stórum bíl og vorum mörg á ferðinni. Við Quentin töluðum ekkert saman í þeirri ferð. Ég hélt að hann væri frá Grænlandi eða ein- hvers staðar frá einangruðum stað því hann talaði ekkert, notaði bara tímann í bílnum að vefja sér sígar- ettur og reykja. Þess á milli stökk hann út úr bílnum þar sem Beggi benti honum hingað og þangað að hlaupa á eftir rollum í rigningunni. Annars var hann bara sultuslakur,“ segir Jamie og þau Quentin hafa gaman af endurminningunni. „Maður verður að vera slak- ur, það er ástæðulaust að sprengja sig með látum og verða uppgefinn strax. Það er skynsamlegt að taka því rólega á milli,“ segir Quentin og þau Jamie eru sammála um að hann hafi verið „supercool“ þenn- an daginn. Nokkur tími leið þar til þau Qentin og Jamie hittust næst en hún kom til Reykhóla um miðj- an vetur og fór í sauðburð þá um vorið hjá Begga. „Þá fórum við að tala saman,“ segja þau Quentin og Jamie og vísa til þess að eftir þau kynni hafa þau verið par í sambúð við bryggjuna í Króksfjarðarnesi. Á Íslandi talar fólk í árstíðum Fréttaritara stenst ekki mátið að ljúka samtalinu með því að spyrja þau Quentin og Jamie út í veður- farið og hvort þau sakni mildara veðurfars heimaslóðanna? Jamie er fljót til svara: „Maður fer bara í jakka, þá getur manni liðið svipað og í stutterma- bol í San Francisco.“ Quentin tek- ur undir þetta og þau Jamie hafa gaman af hvernig Íslendingar tala í árstíðum. „Hér talar fólk í árstíð- um sem við gerum ekki heima enda eru árstíðaskiptin svo flöt þar, mað- ur tekur svo lítið eftir þeim,“ segir Jamie og Quentin segir það svipað á hans heimaslóðum. „Árstíðirn- ar renna meira saman, skiptin eru ekki eins áberandi eins og hér á Ís- landi.“ sm Leiðir þeirra lágu saman í smalamennsku í Gilsfirði Í sambúð við bryggjuna á Króksfjarðarnesi Dreymin. Quentin og Jamie í kvöldsólinni við bryggjuna í Króksfjarðarnesi. Quentin náði því í sumar að fara á fjórar grásleppuvertíðar, frá 20. mars og fram í byrjun ágúst. Hér er hann á veiðum með Baldri Gíslasyni. Ljósm. bg. Kvöldstemning í Króksfjarðarnesi. Bergsveinn Reynisson, bóndi á Gróustöðum, áhrifavaldur í lífi parsins, stendur í dyragættinni. Við bryggjuna sem vissulega má muna sinn fífil fegurri.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.