Skessuhorn


Skessuhorn - 28.08.2019, Qupperneq 19

Skessuhorn - 28.08.2019, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 2019 19 tryggvi Konráðsson staðarhaldari í Reykholti hélt ásamt dóttur sinni Guðrúnu Huldu, veglega bílasýn- ingu í Reykholti á sunnudaginn. Þokkalegur fjöldi mætti á sýninga- stað til að skoða gömlu glæsibif- reiðarnar og gátu ungir sem aldn- ir notið sín á sýningunni. „Yngsta kynslóðin gat fengið að prófa fót- stigsbílana og líka farið í bíltúr með tunnulestinni sem var eftirsókn- arvert. Það er nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir krakkana að gera því ég get ímyndað mér að það sé ekk- ert rosalega skemmtilegt að skoða stóru bílana sem má ekki snerta,“ segir tryggvi í samtali við Skessu- horn. „Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum svona sýningu fyr- ir almenning, yfirleitt er þetta bara vinafólk sem kemur saman ár hvert,“ bætir hann við. Eftir sýningu var slegið til 60 manna vinaveislu þar sem heilir lambaskrokkar voru grillaðir á sér- stöku bíla-grilli sem tryggvi hafði sjálfur sett saman. „Fjölskyldan hjálpaði til við grillveisluna, ég get náttúrlega ekki verið allsstaðar, svo einfalt er það.“ glh/ Ljósm. Josefina Morell Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallýi; Rallý Reykjavík, fram fer dagana 29. - 31. ágúst næstkom- andi. Að þessu sinni fer stærsti hluti keppninnar fram á Vesturlandi, það er í Borgarfirði sem og á Snæfells- nesi. Einn Borgfirðingurinn; Aðal- steinn Símonarson mætir til leiks ásamt Valdimari Jóni Sveinssyni á MMC Lancer Evo 7, en þetta er fyrsta keppnistímabil þeirra sam- an. Aðalsteinn er rallýáhugamönn- um vel kunnur, en hann hefur ver- ið viðriðinn rallý frá unglingsaldri og skapað sér gott orðspor sem að- stoðarökumaður. Varð hann meðal annars Íslandsmeistari árið 2014 og 2015. Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykja- víkur sér um framkvæmd keppn- innar að þessu sinni en um er að ræða umfangsmestu rallýkeppni ársins, þar sem eknir verða rúmlega þúsund kílómetrar, þar af tæplega 300 km. á sérleiðum. Keppnin hefst stundvíslega fimmtudaginn 29. ágúst klukkan 17:00 við Olís í Mjódd en fyrsta sérleið dagsins verður ekin um Djúpavatn. Eftir næturhlé í Reykja- vík verður dagurinn tekinn snemma og haldið vestur á Snæfellsnes þar sem fyrsti bíll verður ræstur frá Arnarstapa klukkan 10:00. Verða eknar fjórar umferðir milli Arnar- stapa, Ólafsvíkur og Prestahrauns áður en hádegishlé verður tekið hjá söluskála ÓK í Ólafsvík. Eftir há- degishlé verður haldið í Berserkja- hraun en að því loknu verður ekið yfir á Mýrarnar þar sem eknar verða fjórar ferðir um Skíðsholt og Híta- rdal. Samansöfnun og viðgerðarhlé verður síðan um klukkan 21:30 við Olís í Borgarnesi. Þriðja og síðasta daginn, laugar- daginn 31. ágúst, hefst keppni aft- ur snemma og munu keppendur að mestu halda sig í Borgarfirðinum, nánar tiltekið á gamla veginum um tröllháls, Uxahryggi og Kaldadal. Verður fyrsti bíll ræstur inn á tröll- háls klukkan 08:10 og munu kepp- endur aka hverja leið tvisvar sinn- um. Að þeim loknum verður haldið að Djúpavatni en keppninni lýkur klukkan 15:15 við Olís í Mjódd. „Af öryggisástæðum er fólk beð- ið að virða lokanir á leiðum meðan á keppni stendur en einnig er fólk hvatt til að koma og hitta keppend- ur, skoða bílana og upplifa stemm- inguna. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á heimasíðu Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, bikr.is,“ segir í tilkynningu. mm Rallýkeppni víðsvegar um Vesturland um næstu helgi Hélt bílasýningu í Reykholti Bílarnir hver öðrum glæsilegri á sýningunni. Bílafjölskylda.Tunnulestin var vinsæl hjá yngstu kynslóðinni. Heilir lambaskrokkar voru grillaðir í 60 manna vinaveislu eftir sýningu. Benz bílafloti.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.