Skessuhorn - 28.08.2019, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 2019 21
„Sumarið hefur verið alveg frábært
í mínum huga. Völlurinn var frá-
bær og veðrið lék við okkur. Elstu
menn muna ekki eftir annarri eins
sumarblíðu,“ segir Guðmund-
ur Sigvaldason, framkvæmdastjóri
Golfklúbbsins Leynis, í samtali við
Skessuhorn. „Umferðin um Garða-
völl hefur verið mikil og núna um
miðjan ágúst hafa verið spilaðir um
17 þúsund hringir á vellinum í sum-
ar. Það er svipað og gerist í góðu
meðalári og samt er allur septem-
ber eftir,“ segir framkvæmdastjór-
inn og telur veðrið leika þar stórt
hlutverk, ásamt opnun nýrrar frí-
stundamiðstöðvar sem tekin var í
notkun í apríl síðastliðnum. Guð-
mundur segir nýja húsinu hafa ver-
ið afar vel tekið. „Það er sama hvert
litið er; félagsmenn, gestir og kylf-
ingar eru allir ánægðir með nýja
húsið og lofa það í hástert. Jafn-
vel er haft orð á því að umgjörð-
in sé orðin eins og hún gerist best
erlendis. Okkur sem störfum hér
á vegum klúbbsins finnst gaman
að heyra það,“ segir hann ánægð-
ur. „Bygging hússins, í samstarfi við
Akraneskaupstað, var í alla staði vel
heppnuð. Verkið gekk bæði hratt
og örugglega. Ekki liðu nema 14
mánuðir frá því byrjað var að rífa
gamla klúbbhúsið og þar til ný frí-
stundamiðstöð var tekin í notkun.
Öll umgjörð og aðstaða til golfiðk-
unar er orðin til fyrirmyndar, bæði
úti og inni og vinnuaðstaða starfs-
fólks mjög góð,“ segir Guðmund-
ur.
Fleiri sækja
Garðavöll heim
„Þá má ekki gleyma samstarfinu við
Galito, sem annast veitingarekstur
í húsinu. Það hefur gengið afar vel.
Mér finnst þeim hafa tekist að búa
til fjölskylduvænan veitingastað við
Garðavöll þar sem hlýleikinn er í
fyrirrúmi. Enda höfum við fengið
margar heimsóknir af götunni og
mun meiri umferð um svæðið en
verið hefur undanfarin ár. Algengt
er orðið að fólk líti við til að njóta
góðra veitinga, útsýnisins, umhverf-
isins og nándarinnar við kylfingana.
Þetta samstarf gefur því ekki tilefni
til annars en bjartsýni,“ segir hann.
„Húsið býður upp á marga mögu-
leika til fundahalda, ráðstefna og
hvers kyns mannamóta. Í vor og
sumar hafa verið haldnar ferming-
arveislur, afmæli, brúðkaupsveislur,
árgangsmót, erfidrykkjur og djass-
tónleikar í húsinu. Þannig að við
erum búin að prófa ýmislegt, en
allir hafa þessir viðburðir heppnast
vel. Hér er góð hljóðvist og stað-
urinn hentar því vel til hvers kyns
samkvæma og mannamóta,“ seg-
ir Guðmundur. „Allt hefur þetta
haft góð áhrif á klúbbinn og rekst-
urinn hefur tekið miklum breyt-
ingum í ár. Þar hefur ný aðstaða og
gott veður auðvitað mikið að segja
eftir tvö döpur rekstrarár og tap af
rekstri klúbbsins,“ segir hann.
Fjölgun milli ára
Nýliðun hefur verið mikil í Golf-
klúbbnum Leyni undanfarin ár
og á þessu ári hefur félagsmönn-
um fjölgað lítillega, eða um 1%
að sögn Guðmundar. „En síðan
við tókum við vellinum í ársbyrjun
2013, eftir fimm ár í höndum Golf-
klúbbs Reykjavíkur, hefur félags-
mönnum fjölgað um 31%,“ seg-
ir hann. „Eitt af því sem sem mér
þykir samt athyglisverðast er að
skoða fjölda félagsmanna sem hlut-
fall af íbúafjölda í póstnúmerinu
300. Á þessum sjö árum, frá 2013
til dagsins í dag, hefur okkur tek-
ist að halda í við mikla fjölgun íbúa
og eru félagsmenn Leynis á milli 6
og 7% af heildaríbúafjölda og hefur
það hlutfall heldur verið að hækka
síðustu ár. Það þykir mér mjög já-
kvætt, sérstaklega í ljósi þess að íbú-
um á Akranesi hefur fjölgað mik-
ið á þessu sama tímabili. Það segir
okkur að stjórn Leynis hefur unn-
ið mjög gott starf á hverjum tíma,“
segir hann.
Alls voru 499 manns skráðir í
klúbbinn 19. ágúst síðastliðinn og
Leynir því þriðja stærsta íþróttafé-
lagið innan vébanda ÍA, þar af með
á fjórða tug nýliða. „Ekkert íþrótta-
félag hér í bæ tel ég að geti státað
sig af jafn breiðum hópi iðkenda og
aldursbili, það þori ég að fullyrða.
Yngsti félagsmaðurinn okkar er sex
ára gamall en sá elsti er um nírætt,“
segir Guðmundur og brosir.
Öflugt æskulýðsstarf
„Þannig að starf klúbbsins nær yfir
mjög breiðan aldurshóp. Nýlið-
ar í klúbbnum voru milli 30 og 40
talsins á liðnu sumri, á öllum aldri.
Fjölgun hefur orðið í hópi barna og
unglinga frá síðasta ári, enda stefna
stjórnar að hafa barna- og ung-
lingastarfið eins öflugt og kostur
er hverju sinni. Birgir Leifur Haf-
þórsson hefur verið íþróttastjóri
Leynis undanfarin þrjú ár og hef-
ur hann aukið gæði barna- og ung-
lingastarfsins. Það hefur skilað sér í
fjölgun iðkenda í þeim hópi,“ segir
Guðmundur. „Þá höfum við sömu-
leiðis staðið fyrir golfleikjanám-
skeiðum á sumrin fyrir sex til tíu ára
krakka. Námskeiðin hafa notið vin-
sælda og í raun varð algjör spreng-
ing í aðsókn að þeim núna í sum-
ar þegar vel yfir hundrað krakkar
tóku þátt. Elstu krakkarnir í ung-
lingastarfinu eru leiðbeinendur þar
og hafa staðið sig ofboðslega vel,“
segir hann. „Þarna er grasrótin og
mikilvægt að hlúa að henni. Þetta
er hópurinn sem kemur til með
að taka við keflinu þegar fram líða
stundir,“ bætir hann við.
Gott starf
Alls hafa um 15 starfsmenn stað-
ið vaktina hjá golfklúbbnum frá
því Garðavöllur var opnaður í vor.
„Þeim ber að þakka fyrir vel unn-
in störf, öllum sem einum; vallar-
starfsmenn, starfsmenn í afgreiðslu
og golfverslun, þjálfarar og starfs-
menn leikjanámskeiðanna,“ seg-
ir Guðmundur. „Á veturna er ég í
fullu starfi og svo einn starfsmað-
ur í hlutastarfi við kennslu. Síðan
vorum við að bæta við starfsmanni í
hlutastarf við bókhald og önnur til-
fallandi störf á skrifstofu fyrir kom-
andi vetur,“ segir hann. „Auk þess
höfum við verið í góðu samstarfi
við verktakann Grastec um um-
hirðu vallarins og ráðgjöf. Vélavið-
haldið hefur Steðji séð um en mik-
ilvægt er að viðhalda og vera með
góðan vélakost. „Þar að auki má
geta þess að margir áhugasamir
samstarfsaðilar styðja við klúbbinn
með ýmsum hætti og vilja leggja
öflugu starfi Leynis lið.“
Miklir möguleikar
til framtíðar
Starfsemi klúbbsins fer að dragast
saman þegar líður að lokum sept-
embermánaðar. Að endingu verð-
ur vellinum lokað yfir veturinn og
starfið færist undir þak. „Í janú-
ar síðastliðnum opnuðum við nýja
inniaðstöðu í kjallara frístunda-
miðstöðvarinnar. Hún hefur slegið
í gegn og bjart framundan í starf-
inu þar í vetur. Þar er 9 holu pútt-
völlur og tveir golfhermar og allir
velkomnir að nýta sér þá aðstöðu,“
segir hann.
Framundan á komandi árum
eru breytingar á vellinum, en til
stendur m.a. að endurnýja sex flat-
ir og nokkra teiga. „Það ásamt við-
haldi og áframhaldandi endur-
nýjun tækjakosts eru stærstu verk-
efni næstu ára. Við þurfum að vera
með góð tæki ef við viljum vera
með góðan völl,“ segir Guðmund-
ur og bætir því við að endingu að
framtíðin sé björt hjá Golfklúbbn-
um Leyni. „Við höfum þegar skip-
að okkur í hóp fremstu golfklúbba
landsins þegar gæði vallar og þjón-
usta við kylfinga er annars vegar.
Klúbburinn hefur mikla möguleika
til framtíðar með þennan frábæra
völl og glæsilega frístundamiðstöð
við Garðavöll,“ segir Guðmundur
Sigvaldason að endingu.
kgk
Guðmundur og Sævar Freyr bæjarstjóri bjóða keppendur á Íslandsmóti 60+ í pútti
velkomna síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. mm.
Frábært sumar að baki í golfinu á Akranesi
Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis. Ljósm. kgk. Ný frístundamiðstöð við Garðavöll var formlega opnuð laugardaginn 11. maí
síðastliðinn.
Vilhjálmur Birgisson mundar kylfuna á fyrsta teig á styrktarmóti VLFA sem haldið var í maí. Ljósm. úr safni/ mm.
Eldri kylfingar keppa á púttmóti sem haldið var á púttvellinum við Garðavöll í
júlímánuði. Ljósm. úr safni/ mm.