Skessuhorn - 28.08.2019, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚSt 201924
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Pennagrein
Á vordögum var samþykkt heil-
brigðisstefna til ársins 2030 sem
heilbrigðisráðherra Svandís Svav-
arsdóttir lagði fram út frá sam-
þykktri þingsályktunartillögu
Framsóknarflokksins frá 2017 um
nauðsyn þess að leggja fram slíka
stefnu. Hafði ég framsögu með
málinu í velferðarnefnd þingsins.
Leiðarljós heilbrigðisstefnu til
ársins 2030 er að almenningur á Ís-
landi búi við örugga og hagkvæma
heilbrigðisþjónustu. Stefnan er yf-
irgripsmikil og er henni ætlað að
marka framtíðarsýn fyrir heilbrigð-
iskerfið í heild sinni. Gert er ráð
fyrir að henni verði hrint í fram-
kvæmd með fimm ára aðgerðaáætl-
un sem heilbrigðisráðherra leggur
árlega fram. Nú liggur fyrir slík
aðgerðaáætlun og nær hún til árs-
ins 2023.
Í aðgerðaáætlun ráðherra má
finna sérstök áhersluatriði sem setja
á í forgang á næstu tveimur árum.
Þar má nefna heilbrigðisþjónustu
við aldraða, skipulag sjúkraflutn-
inga í landinu, innleiðingu á nýju
fjármögnunarkerfi fyrir heilbrigð-
isþjónustuna, mönnun heilbrigðis-
þjónustunnar og innleiðingu gæða-
áætlunar.
Öflugar heilbrigðis-
stofnanir á
landsbyggðinni
Í heilbrigðisstefnunni er ráðgert að
heilbrigðisstofnanir um land allt
geri árlega eigin starfsáætlun sem
tekur mið af heilbrigðisstefnu og
aðgerðaáætlun tengt henni. For-
stjórar heilbrigðisstofnana lands-
ins eru umdæmisstjórar heilbrigð-
ismála innan síns umdæmis og hafa
með sér reglulegt samráð um heil-
brigðisþjónustu undir forystu heil-
brigðisráðuneytisins. Þetta kallar á
öfluga leiðtoga á hverju svæði til að
kortleggja þjónustuþörf og skipu-
leggja starfsemi sinnar stofnunnar
út frá því.
Heilbrigðisþjónustan er skil-
greind sem fyrsta stigs (heilsu-
gæsla), annars stigs (sérfræðiþjón-
usta utan háskólasjúkrahúss) og
þriðja stigs þjónusta (þjónusta veitt
á háskólasjúkrahúsi eða í nánu sam-
starfi við það). Mikilvægt er að
fyrsta og annars stigs heilbrigðis-
þjónusta sé aðgengileg sem flest-
um nálægt heimabyggð sinni. Íbúar
í dreifðum byggðum þurfa að hafa
góðan aðgang að heilbrigðisþjón-
ustu sem borin er uppi af heilbrigð-
isstofnunum um allt land.
Sjúkraflutningar
til þess þarf líka að efla t.a.m. utan-
spítalaþjónustu (sjúkraflutninga). Á
vorþingi var samþykkt þingsályktun
velferðanefndar Alþingis um mót-
un stefnu um bráðaþjónustu utan
spítala. Öflug bráðaþjónusta utan
spítala er nauðsynlegur hlekkur í
öflugu heilbrigðiskerfi. Þetta er
baráttumál, sérstaklega í dreifðum
byggðum þar sem erfitt hefur verið
að halda úti skurðstofum, fæðinga-
hjálp og viðverðu sérfræðinga.
Fjarheilbrigðisþjónusta
Í aðgerðaáætlun má finna áherslur
um aðgengi að heilsugæslu og
þjónustu sérfræðinga á landsbyggð-
inni verði bætt með fjarheilbrigðis-
þjónustu. Fjarheilbrigðisþjónustu
fylgja bæði tækifæri og áskoran-
ir. Mótun slíkrar þjónustu þarf að
ígrunda vel. tæknin er til staðar og
ætti að geta nýst til að auka gæði og
spara bæði tíma og fjármagn. Með
fjarheilbrigðisþjónustu er hægt að
nýta betur þann mannauð sem hver
stofnun býr yfir. Þjónustan verður
aðgengileg óháð búsetu og fagfólk
hefur aðgang að meiri stuðningi í
sínu heimahéraði.
Með aðgerðaáætlun heilbrigð-
isstefnu er komið verkfæri til að
gera gott heilbrigðiskerfi betra og
efla enn frekar þjónustuna í heim-
byggð.
Halla Signý Kristjánsdóttir
Höf. er 7. þingmaður
NV kjördæmis.
Nú ætlar Sigurður Ingi Jóhanns-
son, ráðherra sveitastjórnamála að
gera enn eina tilraunina til að sam-
eina sveitarfélög svo þau geti sinnt
síauknum þjónustukröfum. Sveitar-
félög með innan við 250 íbúa sam-
einist í stærri einingu fyrir næstu
sveitastjórnakosningar 2022, og
síðan verði íbúamarkið hækkað í
1000 íbúa fyrir kosningarnar 2026.
Sem gamall heimamaður af Vest-
urlandi, hefur maður fylgst með til-
raunum til sameiningar á Vestur-
landi og þar hefur sannarlega geng-
ið á ýmsu. Best hefur kannski tekist
til með Borgarbyggð og Dalabyggð
og þar virðast flestir sáttir í dag.
En hvað blasir við í dag ef til-
lögur ráðherrans verða samþykktar
sem lög? Hvorki Hvalfjarðarsveit
eða Skorradslshreppur uppfylla
þessi íbúamarkmið. Meðan sýsl-
urnar voru eitt lögsagnarumdæmi,
voru Mýra- og Borgarfjarðarsýsla
gjarnan nefnd í sömu andrá þegar
kom að margvíslegum samstarfs-
verkefnum. Ef fyrrgreind sveitar-
félög sameinast Borgarbyggð, er
þetta gamla byggðamynstur sam-
einað á ný. Sameining við Akra-
nesbæ virðist ekki á dagskrá og það
er bara Borgarfjarðarbúin sem að-
skilur Hvalfjarðarsveit og Borgar-
nes (Borgarbyggð).
Er þetta ekki nokkuð augljóst? Sá
mæti maður, Jón Helgason rithöf-
undur og fyrrum ritstjóri, leit ávallt
á sig sem Borgfirðing, þótt hann
væri fæddur á Stóra-Botni í Hval-
firði.
Þá er það Snæfellsnesið. Þar hef-
ur sundurlyndið lengi ráðið ríkj-
um varðandi sameiningu sveitarfé-
laga og margvísleg héraðsmál. Af-
leiðingin m.a. sú að tvö sveitarfé-
lög hafa sameinast út fyrir héraðið
þ.e. Skógarstrandarhreppur, Dala-
byggð og Kolbeinsstaðahreppur,
Borgarbyggð. Um leið er aldagöm-
ul héraðsvitund á Snæfellsnesi að
breytast og íbúarnir orðnir að hálf-
gerðum nýbúum í Borgarbyggð og
Dalabyggð.
Hvað gera svo íbúar í Helga-
fellssveit og Eyja- og Miklaholts-
hreppi? Þeir verða að snúa sér í
einhverja átt. Einn kosturinn er að
leita til íbúanna í fyrrum Skógar-
strandarhreppi og Kolbeinsstaða-
hreppi með ósk um sameiningu.
Það gæti svo aftur á móti styrkt
stöðuna gagnvart Stykkishólmsbæ
sem augljóslega þarf að ræða við.
Grundarfjörður gæti svo bæst við
þar sem íbúarnir eru nú innan við
eitt þúsund. Snæfellsbær virðist
vilja vera áfram sérstakt sveitarfélag
og ekki til viðtals fyrr en ráðamenn
þar sjá hugsanlega fram á einangr-
un á Snæfellsnesi.
Loks eru það Dalirnir. Þar blas-
ir við fyrir árið 2026 að leita eftir
sameiningu við önnur sveitarfélög.
Nærtækast er að sameinast Reyk-
hólahreppi en það dugar kannski
ekki til? Hvað þá? Dalamenn hafa
horft bæði í norður og suður en
hvað með vestur? Ef sveitarfélög á
Snæfellsnesi sameinast í eitt, er þá
ekki til í dæminu að til verði Breiða-
fjarðarbyggð? Meðan Breiðafjörð-
ur var samgönguæðin, voru mik-
il tengsl milli Snæfellsness, Dala
og Austur-Barðastrandar. Vegur
um Skógarströnd með varanlegu
slitlagi gæti breytt miklu. Þegar
stofnað var Breiðfirðingafélag fyrir
nærri öld, náði félagssvæðið yfir allt
Breiðafjarðarsvæðið. Síðar klufu
brottfluttir Snæfellingar og Barð-
strendingar sig út úr því.
Á Vesturlandi sem og víðar, dugar
ekki lengur að hjóla áfram í gömlu
hjólförunum. Það á að taka tillögur
ráðherra um sameiningu sveitarfé-
laga, mjög alvarlega. Vestlending-
ar eiga svo sameiginlegan kost – að
sameina öll sveitarfélögin á Vestur-
landi í eitt. Kannski væri það skyn-
samlegasti kosturinn?
Reynir Ingibjartsson
frá Hraunholtum.
Ungmennafélag Íslands gaf nýver-
ið út sinn fyrsta hlaðvarpsþátt, Sýn-
um karakter. Um er að ræða verk-
efni á vegum Íþrótta- og Ólymp-
íusamband Íslands og Ungmenna-
félag Íslands. Fyrsti viðmælandi
hlaðvarpsins er Hildur Karen Að-
alsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Íþróttabandalags Akraness, sem tal-
ar um þau forréttindi að hafa alist
upp í litlu samfélagi þar sem íþrótt-
ir voru númer eitt, tvö og þrjú. Sjálf
er Hildur Karen fædd og uppalin í
Bolungarvík en hún fluttist á Akra-
nes eftir nám sitt í Danmörku og
býr þar enn.
Verkefnið Sýnum karakter er
átaksverkefni um þjálfun sálrænnar
og félagslegrar færni barna og ung-
menna í íþróttum. Hugmyndafræði
verkefnisins byggir á að hægt sé að
þjálfa og styrkja sálræna og félags-
lega færni iðkenda eins og líkam-
lega færni. Hægt er að hlusta á frá-
sögn Hildar Karenar í fyrsta þætti
Sýnum karakter á, www.soundclo-
ud.com/synumkarakter.
glh
Hildur Karen, framkvæmdastjóri ÍA, er
viðmælandi í Sýnum karakter.
Ljósm. UMFÍ.
Sýnum karakter
Verður Vesturland
eitt sveitarfélag?
Aðgerðaáætlun
heilbrigðisstefnu