Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 1
arionbanki.is
Fjármálin mín
– betri y�irsýn í Arion appinu
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 40. tbl. 22. árg. 2. október 2019 - kr. 950 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Tilboð gilda út september 2019
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Garlic chicken breast meal
1.650 kr.
Máltíð
Enn eru býsna margir sem hafa ánægju af að rækta eigin kartöflur. Fagna þeir margir góðri uppskeru eftir hagfellt sumar.
Þeirra á meðal er Áskell Þórisson fyrrum ritstjóri og nú upplýsingafulltrúi Landgræðslunnar. Á nýbýli sitt Ægissíðu við
Innnesveg er Áskell með kartöflugarð. Var hann að taka upp þegar ljósmyndari Skessuhorns átti leið hjá um liðna helgi. Upp-
skeran var mjög góð en undan grösunum komu fagurrauðar kartöflur af erlendri ættkvísl sem nefnist asterix. Áskell geymir
kartöflurnar í eigin jarðhýsi og notar hluta uppskerunnar sem útsæði næsta vor. Þannig hefur hann fram til þessa komist hjá
því að fá kartöflusjúkdóma í garðinn. Ljósm. mm.
Fimm Vesturlandslið hefja leik í Ís-
landsmótinu í körfuknattleik í þess-
ari viku; kvennalið Skallagríms
og Snæfells leika sinn fyrsta leik í
Domino‘s deildinni í kvöld, karlalið
Skallagríms
og Snæfells
hefja leik í 1.
deild á föstu-
daginn og þá
hóf ÍA leik í
2. deild karla síðastliðinn sunnu-
dag. Rætt er við forsvarsmenn þess-
ara liða í Skessuhorni vikunnar. Af
máli þeirra að dæma er alls staðar
mikil eftirvænting fyrir komandi
vetri í körfunni þó áherslurnar og
markmiðin séu ólík eftir liðum.
Auk þessara liða senda Grund-
firðingar lið til keppni í 3. deild
karla í vetur. Þeir hefja hins vegar
ekki leik fyrr en um þarnæstu helgi.
Rætt verður við forsvarsmenn
Grundarfjarðarliðsins í Skessu-
horni í næstu viku.
Sjá nánar bls. 30-31.
kgk
Síðastliðinn mánudag var tæplega
60 starfsmönnum fiskvinnslunnar
Ísfisks á Akranesi sagt upp störfum.
Það var tilkynnt á fundi með starfs-
fólki og fulltrúum Verkalýðsfélags
Akraness á mánudaginn, á síðasta
degi septembermánaðar. „Á þessum
fundi þurfti fyrirtækið að tilkynna
að öllum starfsmönnum væri sagt
upp störfum frá og með mánaða-
mótum, en um er að ræða uppund-
ir 60 starfsmenn,“ segir Vilhjálm-
ur Birgisson formaður VLFA. Gat
hann þess að fram hafi komið í máli
forsvarsmanna Ísfisks að allar upp-
sagnir væru gerðar með fyrirvara
um að fyrirtækinu tækist að end-
urfjármagna sig, en til þessa hefur
það ekki tekist, en sú vinna er enn í
gangi. Í kjölfar frétta um málið upp-
lýsti Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri á Akranesi að bæjarstjórn
hefði beitt sér af krafti síðustu vik-
ur til að tryggja langtíma fjármögn-
un Ísfisks hjá Byggðastofnun. „Við
vonum að innan tíðar verði komin
niðurstaða sem tryggi störf á sjötta
tug starfsmanna sem og fjárhagsleg-
an grundvöll fyrirtækisins,“ sagði
Sævar í tilkynningu um málið.
Ísfiskur keypti hluta fiskvinnslu-
húsa HB Granda við Bárugötu á
Akranesi haustið 2017 og flutti á
síðasta ári starfsemi sína þangað
frá Kársnesi í Kópavogi. Fyrirtækið
hefur sérhæft sig í vinnslu á ýsu og
sölu á mörkuðum erlendis, en hrá-
efni til vinnslunnar er að stærstum
hluta keypt á markaði. Albert Svav-
arsson, framkvæmdastjóri Ísfisks,
sagði í samtali við Morgunblaðið
á mánudaginn að illa hefði gengið
að endurfjármagna félagið. Áfram
yrði unnið að endurfjármögnun, þó
ekki lengur en fram í miðjan þenn-
an mánuð. Albert kvaðst vongóður
um að endurfjármögnun takist þó
að hann gerði ekki ráð fyrir neinu.
Eftir flutning starfseminnar á Akra-
nesi hefur rekstur Ísfisks gengið
illa. „Kostnaður við flutning fyrir-
tækisins var til að mynda meiri en
áætlað var. Það kostar óhemjumikið
að flytja starfsemi og við erum að
bíta úr nálinni með það,“ sagði Al-
bert Svavarsson í samtali við Morg-
unblaðið.
mm
Hvorki fleiri né færri en þrjú ný fisk-
veiðiskip bættust í flota Grundfirð-
inga í vikunni. Á laugardag komu
Farsæll SH 30 og Sigurborg SH 12
til heimahafnar í fyrsta skipti, en
þau verða gerð út af útgerð Soffaní-
asar Cecilssonar og Fisk Seafood og
leysa skip með sömu nöfn af hólmi.
Í gær sigldi svo Runólfur SH 135 til
hafnar, nýtt skip Guðmundar Run-
ólfssonar hf. Mun Runólfur leysa
Helga SH af hólmi.
Sjá nánar frásögn í máli og
myndum á bls. 22-23.
tfk
Þrjú skip
á þremur
dögum
Karfan
að byrja
Svipmynd úr vinnslusal fyrirtækisins. Ljósm. úr safni/kgk.
Tæplega sextíu sagt upp hjá Ísfiski