Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201918 Arndís Halla Jóhannesdóttir, mark- þjálfi, þroskaþjálfi og möguleikari, fæddist 8. september 1976. Hún lést 2. febrúar 2018, 41 árs að aldri eft- ir nokkurra ára baráttu við krabba- mein. Arndís Halla bjó lengst af á Akranesi, en einnig í Stykkishólmi á unglingsárum sínum. Hún lét eft- ir sig stóran hóp ættingja og vina; eiginmann, tvær dætur, foreldra, systkini og stóran frændgarð. Átta mánuðum eftir andlát hennar fæð- ist fyrsta barnabarn hennar og Eyj- ólfs Rúnars Stefánssonar. Sú litla var skírð Arndís Lilja og á hún ein- mitt árs afmæli í dag, 2. október. Í tilefni Bleiks október, árvekniátaks krabbameinsfélaganna, minnumst við Arndísar Höllu. Fjölskyld- an hefur haldið minningu hennar á lofti. Meðal annars hafa nokkr- ir fjölskyldumeðlimir látið setja á sig húðflúr, til minningar um Arn- dísi Höllu. Á þessum húðflúrum er meðal annars bleika slaufan, nafn hennar og tileinkun í fyrirlestra sem Arndís Halla hélt í veikindum sínum, en þeim lýsti hún opinskátt. Mikill hlátur en smá grátur Höfuðið á okkur er verkfæri og því er gjarnan hægt að beita, svo sem í hugrænni atferlismeðferð. Arndís Halla spurði meðal annars: „Hvort er líklegra að ná árangri með já- kvæðnina að vopni eða neikvæðn- ina?“ Hún leit þannig á að jákvæðni væri öflugasta leiðin til að takast á við áföll, svo sem baráttuna við krabbamein. Hún miðlaði opin- skátt af eigin reynslu og sagði með- al annars: „Mér var falið risaverk- efni, eins og fullt af öðru fólki, en ég er að lifa lífinu eins og allir hinir þó ég þurfi að lifa því á annan hátt í dag heldur en fyrir veikindi. Ég er heppin af því að ég á ekki eina slæma minningu af heimsóknum á sjúkrahús af því að þannig ákvað ég í upphafi að stilla hugarfarið. Þetta verður ekki erfiðara en ég leyfi því að vera. En ef ég nota eftirfarandi viðmið þá líður mér vel; 80-90% hlátur og gleði og 10-20% grátur og ótti (versti óvinurinn).“ Þannig varð slagorð Arndísar Höllu: „Mik- ill hlátur en smá grátur.“ Með jákvæðni að leiðarljósi Þrátt fyrir að glíma við veikindi leitaði Arndís Halla uppi jákvæðu hliðarnar og lét þær vega upp and- streymið. Meðal annars sagði hún: „Á ákveðnum tímapunkti fer mað- ur í gegnum rússíbanareið sem fel- ur í sér að syrgja „gömlu“ sig og þá hluti sem maður gat gert og þóttu sjálfsagðir, eins og að fara út að skokka, fara í ræktina og taka á, fara í sund og ganga fjöll. Þetta er eitt- hvað sem er ekki í boði fyrir mig í dag, en í staðinn fyrir einn hlut sem við missum er hægt að gera hundrað aðra í staðinn.“ Þannig var Arndís Halla mjög hreinskiptin í samskipum við aðra, en ekki síð- ur gagnvart sjálfri sér. „Alveg eins og íþróttalið auglýsa leikina sína, þá auglýsti ég, óskaði eftir og þáði stuðninginn í minni baráttu, að tala um hlutina og vera opin hjálpaði mér. Leyfa fólki að fylgjast með og þiggja stuðninginn.“ Í samráði við fjölskyldu Arndísar Höllu Jóhannesdóttur birtum við þessi minningarbrot um barát- tukonu sem kvaddi allt of fljótt. tí- masetningin er heldur ekki tilviljun. Nú er bleikur október nýgenginn í garð, árvekniátak Krabbameinsfé- lags Íslands. „Það sem við höfum lært af þessu öllu saman, er hvað það er sem skiptir máli í lífinu þegar upp er staðið,“ segir Jóhannes Finnur Halldórsson, faðir Arndísar Höllu í samtali við Skessuhorn. mm Halldór Bjarkar, bróðir Arndísar Höllu og kona hans Dagmar Egilsdóttir. Halda minningu Arndísar Höllu á lofti Arndís Halla Jóhannesdóttir. Í tilefni ársafmælis Arndísar Lilju Hlynsdóttur kom fjölskyldan saman. F.v. Marín Rós, Rakel Rún, Jóhannes Finnur, Lea Rós, Ástrós Una og Guðbjörg. Húðflúr á handlegg Ástrósar Unu, er hér að mestu fullklárað. Húðflúr á handlegg Jóhannesar Finns. Húðflúr á handlegg Guggu, móður Arndísar Höllu. Lilta blómarósin Arndís Lilja er árs- gömul í dag, 2. október. Minningarreitur er í kirkjugarðinum í Stykkishólmi. Síðustu árin var fjölskyldan dugleg að gera eitthvað skemmtilegt saman. Hér er hún stödd í New York. F.v. Rakel Rún, Eyjólfur Rúnar, Marín Rós og Arndís Halla.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.