Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 2 oKtóBER 2019 29
Knattspyrnufólk á Akranesi gerði
sér glaðan dag um síðustu helgi
þegar lokahóf meistaraflokka ÍA og
2. flokks karla og kvenna var haldið
í frístundamiðstöðinni við Garða-
völl. Þar voru valdir bestu leikmenn
hvers flokks auk þess sem leikmenn
fengu leikjaviðurkenningar.
Bestu leikmenn meistaraflokka
karla og kvenna voru valin þau ótt-
ar Bjarni Guðmundsson og Fríða
Halldórsdóttir. óttar og Fríða voru
einnig valin best að mati stuðnings-
manna. Fríða var einnig valin best
að mati ÍA tV, ásamt Herði Inga
Gunnarssyni.
Bestu ungu leikmenn meistara-
flokka voru valin þau Jón Gísli Ey-
land Gíslason og Dagný Halldórs-
dóttir.
Í 2. flokki karla var Sigurður
Hrannar Þorsteinsson valinn best-
ur, Eyþór Aron Wöhler var valinn
besti ungi leikmaðurinn. Kiddabik-
arinn, sem sæmdur er fyrirmynd-
arleikmanni ársins, kom að þessu
sinni í hlut Benjamíns Mehic.
Anna Þóra Hannesdóttir var val-
in best í 2. flokki kvenna og Selma
Dögg Þorsteinsdóttir besti ungi
leikmaðurinn. tM-bikarinn, veitt-
ur fyrirmyndarleikmanni ársins,
kom í hlut Anítu ólafsdóttur.
Arnar Már Guðjónsson fékk
leikjaviðurkenningu fyrir 350 leiki
með meistaraflokki karla, Árni
Snær ólafsson og ólafur Valur
Valdimarsson fyrir 250 leiki, Ein-
ar Logi Einarsson fyrir 200 leiki,
Arnór Snær Guðmundsson, Albert
Hafsteinsson og Steinar Þorsteins-
son fyrir 150 leiki og Stefán teitur
Þórðarson fyrir 100 leiki.
Dómaraverðlaun voru einn-
ig veitt og að þessu sinni var það
Gilmar Þór Benediktsson sem fékk
Adolphsbikarinn.
kgk/ Ljósm. KFÍA.
Guðrún ósk Ámundadóttir hef-
ur verið ráðin þjálfari Skallagríms
í meistaraflokki kvenna. Mun hún
því stýra liðinu í Domino‘s deild-
inni á komandi vetri.
Guðrún er 32 ára gömul og upp-
alin hjá Skallagrími. Hún lék með
yngri flokkum félagsins og á að
baki fjölda leikja í efstu deild með
Skallagrími, Haukum og KR. Á
sínum leikmannaferli hefur hún
hampað bæði Íslands- og bikar-
meistaratitlum.
Guðrún var aðstoðarþjálfari
meistaraflokks Skallagríms á síð-
asta tímabili, auk þess að vera hluti
af leikmannahópnum. Þá hefur hún
einnig þjálfað yngri flokka Borgar-
nesfélagsins undanfarin ár. „Ánægja
er með komu Guðrúnar í þjálfara-
stólinn en hún byrjaði að stýra lið-
inu fyrr í mánuðinum. Hún undir-
býr nú öflugan hóp meistaraflokks
kvenna af fullum krafti fyrir átök
vetrarins,“ segir í tilkynningu kkd.
Skallagríms.
kgk
Skagamenn steinlágu gegn Vík-
ingi R., 1-5, þegar liðin mættust í
lokaleik Pepsi Max deildar karla í
knattspyrnu. Leikið var á Akranesi
á laugardaginn. Það var hvorki bar-
ist við fall né um titla í leiknum á
Akranesvelli, en það kom þó ekki í
veg fyrir að bæði lið mættu ákveð-
in til leiks.
Skagamenn voru ákafir í upp-
hafi og komust yfir á 13. mínútu.
Bjarki Steinn Bjarkason fékk bolt-
ann á miðlínu, fór framhjá nokkr-
um varnarmönnum og þrumaði
boltanum upp í samskeytin með
skoti frá vítateigsboganum. En
Skagamenn voru vart hættir að
fagna þegar gestirnir voru búnir að
jafna. Kwame Quee sendi boltann
fyrir markið á 16. mínútu, varnar-
mönnum ÍA tókst ekki að hreinsa
boltann burt og Örvar Eggertsson
skoraði með skoti af stuttu færi. Á
23. mínútu skiptu þeir um hlut-
verk þegar Örvar sendi hnitmið-
aða sendingu af vinstri kanti beint á
kollinn á Kwame sem skallaði bolt-
ann í netið og gestirnir komnir yfir.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri
hálfleik og gestirnir leiddu því 1-2
í hléinu.
Síðari hálfleikur var rúmlega tíu
mínútna gamall þegar Víkings-
liðið skoraði þriðja mark sitt. ótt-
ar Magnús Karlsson fékk boltann
rétt utan vítateigs, rakti hann inn í
teiginn og skoraði með góðu skoti í
fjærhornið.
Næstu 20 mínúturnar eða svo var
leikurinn fremur tíðindalítill, eða
allt þar til Kwame skoraði fjórða
mark Víkings á 76. mínútu eftir
frábæra sendingu inn fyrir vörn-
ina. Það var síðan Ágúst Eðvald
Hlynsson sem innsiglaði 1-5 stór-
sigur Víkings á 89. mínútu. Hann
fékk boltann inn fyrir vörnina eftir
snögga sókn og lagði hann í nær-
hornið.
Úrslit leiksins þýða að Skaga-
menn ljúka leik í 10. sæti deildar-
innar með 27 stig, jafn mörg og
HK í sætinu fyrir ofan en sjö stig-
um fyrir ofan Grindavík sem féll.
ÍA sigraði sjö leiki í sumar, gerði sex
jafntefli og tapaði níu með marka-
töluna -5. Fimm af sjö sigrum liðs-
ins í deildinni í sumar komu í maí-
mánuði, auk eins jafnteflis. Eft-
ir það þyngdist róðurinn en tveir
sigrar og fimm jafntefli skiluðu ÍA
27 stigum og 10. sætinu.
kgk
Lokahóf yngri flokka knattspyrnu-
félags ÍA var haldið með pompi og
prakt í Akraneshöllinni þriðjudag-
inn 24. september. Fjölmenni mætti
á hófið og ungir og upprennandi
knattspyrnukappar fengu að spreyta
sig á knattþrautum og vítaskotum,
þar sem þjálfarar yngri flokka stóðu
vaktina. Að lokum var haldið pylsup-
artí og iðkendum í 3.-7. flokki veitt-
ar viðurkenningar.
Í 2.-5. flokki voru einstökum leik-
mönnum veittar viðurkenning-
ar. Sunna Rún Sigurðardóttir, Vala
María Sturludóttir og Kolfinna Eir
Jónsdóttir voru valdar leikmenn árs-
ins í 5. flokki kvenna. Leikmenn árs-
ins í 5. flokki karla voru Arnór Valur
Ágústsson, Jón Þór Finnbogason og
Ísak Davíð Þórðarson.
Í 4. flokki kvenna var Katrín María
ómarsdóttir valin besti leikmaður-
inn, Birna Rún Þórólfsdóttir efnileg-
asti leikmaðurinn og Salka Hrafns
Elvarsdóttir þótti sýna mestar fram-
farir á árinu. Logi Mar Hjaltested
fékk viðurkenningu sem besti leik-
maður 4. flokks karla, Haukur Andri
Haraldsson sem efnilegasti leikmað-
urinn og Sveinn Svavar Hallgríms-
son fyrir mestar framfarir.
Arndís Lilja Eggertsdóttir var val-
in besti leikmaður 3. flokks kvenna,
Dagbjört Líf Guðmundsdóttir þótti
efnilegust og Þórunn Sara Arnars-
dóttir þótti hafa sýnt mestar fram-
farir. Í 3. flokki karla var Ingi Þór
Sigurðsson valinn besti leikmaður-
inn, Ármann Ingi Finnbogason sá
efnilegasti og ólafur Haukur Ari-
líusson fékk viðurkenningu fyrir
mestar framfarir á árinu.
Stínubikarinn kom í hlut Lilju
Bjargar ólafsdóttur og Donnabikar-
inn hlaut Ingi Þór Sigurðsson.
kgk/ Ljósm. KFÍA.
Bjarki Steinn Bjarkason lætur vaða á markið. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og
eina mark Skagamanna sl. laugardag. Ljósm. gbh.
Steinlágu í lokaleiknum
Fríða og Óttar valin best
á lokahófi ÍA
Óttar Bjarni Guðmundsson
(t.h.) og Jón Gísli Eyland
Gíslason. Óttar var valinn
besti leikmaður meistara-
flokks karla og bestur að
mati stuðningsmanna og
Jón Gísli var valinn besti
ungi leikmaður meistara-
flokks.
Systurnar Fríða og Dagný Halldórsdætur. Fríða (t.h.) var valin besti leikmaður
meistaraflokks kvenna, best að mati stuðningsmanna og best að mati ÍA TV og
Dagný var valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks.
Guðrún þjálfar Skallagrím
Guðrún Ósk Ámundadóttir, nýr þjálfari
Skallagríms. Ljósm. Skallagrímur.
Yngri flokkar ÍA fögnuðu
liðnu keppnisári