Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 2 oKtóBER 2019 11
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & Smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 10. október
Föstudaginn 11. október
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Bæjarstjórnarfundur
1300. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar-
þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. október kl. 17:00.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér
bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0
og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Framsókn og frjálsir í Frístundamiðstöðinni, •
laugardaginn 5. október kl. 10:30.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, •
mánudaginn 7. október kl. 20:00.
Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8 •
laugardaginn 5. október kl. 10:30.
Borgarbyggð – heilsueflandi sam-
félag hefur sett fram áskorun á Fa-
cebook síðu sinni undir yfirskrift-
inni „Kvartlaus október“. Með
áskoruninni eru íbúar hvattir til að
hreinsa hugann af ómeðvitaðri nei-
kvæðni með því að kvarta ekki í 31
dag samfleytt. Reglurnar snúast um
að kvarta ekki, og á það við um all-
ar neikvæðar athugasemdir í kvört-
unartón eða baktal og að gagnrýna
ekki á neikvæðan hátt.
Ef fólk hefur eitthvað sem þarf
að koma á framfæri skal það gert
á kurteisislegan hátt við þá mann-
eskju sem málið varðar. Þá er því
útlistað í áskorununni að það flokk-
ist ekki sem baktal þegar talað er
um aðra á jákvæðan hátt, eitthvað
sem viðkomandi myndi ekki hika
við að segja beint við þann sem tal-
að er um. „Lítum tilveruna jákvæð-
um augum í október. Sjáðu það
góða í upplifunum. Gríptu þig þeg-
ar þú ert að hugsa um slæmu eigin-
leikana við upplifunina eða þú ert
að kvarta yfir tilverunni eða dæma
annað fólk. Upplifanir eru nefni-
lega ekki bara góðar eða slæmar,
þær eru yfrleitt sambland af þessu
tvennu. Það er alltaf eitthvað já-
kvætt við það sem þú ert að upplifa.
Snúðu raunveruleikanum þér í hag
með að beina athyglinni þinni á það
góða hverju sinni. Sýndu þakklæti.
Með því að líta jákvæðum augum
á tilveruna býrð þú til betri raun-
veruleika, sem nærir sjálfan þig og
aðra í kringum þig,“ segir í áskor-
uninni.
arg
Ingibjargir verða í Stykkishólms-
kirkju með tónleika næstkom-
andi sunnudag, 6. október, klukk-
an 16:00. Það eru þær Ingibjörg
Fríða Helgadóttir og Ingibjörg Ýr
Skarphéðinsdóttir sem ætla að láta
„þrjár Ingibjargir renna saman í
eina konu, einn hugarheim, einn
hljóm,“ eins og segir í tilkynningu.
Þar ætla þær að flytja lög við ljóð
eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur, sem
er þá þriðja Ingibjörgin. „Konan í
speglinum er sönglagabálkur með
nýjum lögum við ljóð Ingibjarg-
ar Haraldsdóttur. Ingibjörg Fríða
og Ingibjörg Ýr hafa unnið að tón-
listinni síðustu ár og hlutu nú í ár
listamannalaun til að fullvinna tón-
listina og gera klára til flutnings og
upptöku á plötu. Þær hafa flutt tón-
listina við ýmis tækifæri og á tón-
leikum í Reykjavík, Þingvöllum,
Siglufirði og á Egilsstöðum,“ seg-
ir í tilkynningunni. Aðgangur er
ókeypis og eru tónleikarnir styrktir
af launasjóði listamanna. arg
Kvartlaus október í Borgarbyggð
Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir halda tónleika í
Stykkishólmskirkju á sunnudaginn.
Þrjár Ingibjargir renna í eina
að koma þeim í betra horf. Í máli
þeirra kom fram að auka þyrfti
fræðslu og takast á við áskoranir
í umhverfismálum með jákvæðni,
líta á þær sem brýnt verkefni sem
þyrfti að inna af hendi strax. Sveit-
arfélögin hafa skipulagsvaldið og
því skiptu þau sköpum í uppbygg-
ingu innviða framtíðarinnar, með
orkuskipti í samgöngum og fleira
í huga.
Eftir fyrstu spurningahrinuna
bárust margar spurningar um úr-
gang. Stefán vakti máls á því að
þar væri byrjað á öfugum enda.
Fyrst og fremst þyrfti að draga úr
neyslu og koma þannig í veg fyr-
ir úrgang eins og mögulegt væri.
Þeim úrgangi sem myndi síðan
óhjákvæmlega falla til, þegar hann
hefði verið minnkaður eins mik-
ið og mögulegt er, þyrfti síðan að
koma í réttan farveg.
Rætt var hvernig snúa mætti við
blaðinu með góðum fordæmum og
samstarfi. Sara Rós sagði ungt fólk
almennt meðvitaðra um vanda-
málið en eldri kynslóðir en fynd-
ist eins og ekki væri hlustað á þau.
til að gera fólk meðvitað virkaði
fræðsla best, fyrirlestrar sérfærð-
inga, heimildarmyndir og ekki síst
umræður, nefndi hún sem dæmi.
„Fræðasla um umhverfismál þyrfti
að vera uppbyggileg, byrja smátt
og verða síðan ítarlegri eftir því
sem krakkarnir eldast. Það er allt
í lagi að hræða fólk smá en það
verður líka að gefa því von,“ sagði
Sara.
kgk
Þingfulltrúum var skipt upp í hópa sem ræddu umhverfismálin innbyrðis. F.v.
Davíð Sigurðsson sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð og Vífill Karlsson og Ólöf
Guðmundsdóttir frá SSV.
Haraldur Benediktsson flytur ávarp sitt.
Ragnar Sæmundsson bæjarfulltrúi á Akranesi og Eggert Kjartansson, oddviti
Eyja- og Miklaholtshrepps.