Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201930
körfuknattleikstímabilið hafið
Manuel Rodriguez er kominn í
Borgarnes og mun þjálfa karlalið
Skallagríms í 1. deildinni á kom-
andi vetri. Manuel þekkja Borgnes-
ingar vel. Hann þjálfaði kvenna-
lið Skallagríms frá 2015-2017 með
góðum árangri, kom liðinu upp í
úrvalsdeild og leiddi það í úrslit
bikarsins og í úrslitakeppnina um
Íslandsmeistaratitilinn. Hann seg-
ist ánægður að vera kominn aftur
í Borgarnes. „Þegar ég fékk sím-
tal í sumar og var boðið að taka að
mér þjálfun karlaliðsins þurfti ég
ekki að hugsa mig tvisvar um,“ seg-
ir Manuel í samtali við Skessuhorn.
„Ég er mjög þakklátur stjórninni að
hafa hugsað til mín í tengslum við
þetta einstaka verkefni. Mér fannst
ég ekki hafa náð að ljúka verki mínu
þegar meistaraflokksráð kvenna
ákvað að endurnýja ekki samning-
inn við mig eftir að hafa náð besta
árangri kvennaliðsins frá upphafi.
Ég alltaf vissi að einn daginn kæmi
ég aftur. Núna er mikið og spenn-
andi uppbyggingarstarf framundan,
skemmtilegt verkefni sem ég mun
leggja mig allan fram við,“ seg-
ir þjálfarinn, sem kveðst fullur til-
hlökkunar fyrir komandi tímabili.
„Það er alltaf eftirvænting í loftinu
þegar keppnistímabilið hefst. Leik-
mennirnir stjórnin og aðdáendur
hlakka allir til leikjanna. Augljós-
lega er ég líka spenntur að hefja nýtt
tímabil sem felur í sér nýja áskorun
fyrir mig. Síðasta keppnistímabilið
mitt í Rúmeníu var mjög erfitt bæði
á líkamlega og andlega, þannig að
ég ákvað að taka mér frí frá þjálfun
til að hvílast og núna mæti ég fullur
tilhlökkunar í baráttuna.“
Erfitt tímabil
framundan
Spurður um undirbúninginn fyr-
ir tímabilið segist Manuel ánægð-
ur með hann. „Ég er ánægður með
vinnu okkar hingað til. Við erum
enn að aðlagast og læra. Leikmenn-
irnir eru ennþá að kynnast hvor
öðrum og við eigum langt í land.
En smám saman er liðið að kynnast
styrkleikum sínum og veikleikum,
sem og hugmyndafræði leiksins sem
við munum vinna eftir á tímabilinu
og leikmennirnir fara eftir frá degi
til dags. til að skilja hvert við vilj-
um fara er nauðsynlegt að leggja sig
fram á hverjum degi,“ segir hann
og bætir því við að hann sé ánægð-
ur að upplifa hve leikmennirnir eru
samviskusamir og tilbúnir að leggja
sig fram við verkefnið. „Liðið hefur
auðvitað sína styrkleika og veikleika
eins og öll lið. Mín ábyrgð snýr að
því að styrkja enn frekar styrkleik-
ana og vinna í að bæta veikleikana,“
segir hann. „Ég er viss um að það er
erfitt tímabil framundan, en á sama
tíma er ég sannfærður um að að því
loknu muni leikmennirnir hafa vax-
ið og þroskað hæfileika sína og verði
fyrir vikið betur undir það búnir að
halda áfram að spila og berjast fyr-
ir Skallagrím,“ segir hann. Manu-
el segir viðbúið að á komandi vetri
verði bæði skin og skúrir hjá liðinu.
Mikilvægt sé að halda einbeiting-
unni sama hvernig gengur hverju
sinni og vera alltaf gagnrýnir á eig-
in frammistöðu. „Við verðum að
sína þolinmæði, því ég er sann-
færður um að með hjálp og stuðn-
ingi allra mun okkur takast ætlun-
arverkið,“ segir hann.
Snýst um vöxt
hvers leikmanns
En hvert er ætlunarverkið? Manu-
el vill skipta markmiðum vetrarins í
tvennt. „Í fyrsta lagi eru það fram-
farir einstakra leikmanna, sérstak-
lega ungra leikmanna. Þetta keppn-
istímabil verður að snúast um vöxt
hvers leikmanns og við munum
taka stutt en örugg skref í þá áttina.
Við höfum ekki sett okkur mark-
mið um úrslit, en munum að sjálf-
sögðu berjast í hverjum leik fyrir
sig. Alla langar okkur til að vinna
leiki, það er mjög skemmtilegt, en
við viljum ekki vinna hvernig sem
er. Ef eina markmiðið væri að vinna
leiki þá myndum við gera mistök
á leiðinni sem myndu gera okk-
ur erfitt fyrir að vinna stóru sigr-
ana í framtíðinni,“ segir hann. Hitt
markmið segir þjálfarinn vera að fá
alla til að taka þátt í og trúa á upp-
bygginguna sem framundan er. „Þá
á ég ekki aðeins við um liðið og
leikmennina, heldur alla sem eru
í kringum liðið; stuðningsmenn,
stjórnarmenn og Borgnesingar all-
ir ættu að vera spenntir fyrir verk-
efninu sem framundan er með ung-
um leikmönnum úr Borgarnesi og
nágrenni. Við þurfum öll að vera á
sömu blaðsíðu, því körfuboltahefð-
in í Borgarnesi er og verður alltaf
sterk,“ segir Manuel Rodriguez að
endingu. kgk
Gunnlaugur Smárason og Gísli
Pálsson tóku við þjálfun kvenna-
liðs Snæfells síðasta vor og munu
stýra liðinu í Domino‘s deildinni á
komandi vetri. Snæfell leikur sinn
fyrsta leik í deildinni í kvöld, mið-
vikudaginn 2. október, þegar liðið
mætir Breiðabliki í Stykkishólmi.
„Nú er þetta loksins að byrja,“ seg-
ir Gunnlaugur í samtali við Skessu-
horn. Hann segir mikla eftirvænt-
ingu fyrir vetrinum eftir gott und-
irbúningstímabil. „Við hvíldum
okkur aðeins á körfunni og tókum
vel á því í CrossFit í staðinn. Þær
vildu prófa eitthvað annað þannig
að við fórum þessa leið. Þær hafa
því styrkt sig vel fyrir mót og svo
héldum við síðan lítið mót með ÍR
og Haukum um daginn og feng-
um helling út úr því. Undanfar-
inn mánuð höfum við síðan verið
að slípa okkur saman í körfuboltan-
um sjálfum, þannig að þetta er allt
að smella saman núna við upphaf
mótsins,“ segir hann.
Aðspurður segist Gunnlaugur
vera mjög ánægður með mann-
skapinn sem Snæfellsliðið kemur til
með að tefla fram í vetur. „Liðið er
skipað sama kjarna og hefur borið
það uppi undanfarin ár, en staðan
er sérstaklega góð núna þar sem við
erum ellefu á æfingum í Stykkis-
hólmi. Það hefur ekki gerst í fjölda
ára. Núna eru bara tvær sem æfa í
bænum og maður finnur bara á æf-
ingunum að þær eru allt öðruvísi,
miklu meira tempó á þeim,“ segir
þjálfarinn. Það eitt og sér gefur góð
fyrirheit fyrir veturinn, en þjálfar-
inn vill þó ekki setja markið á eitt-
hvað sæti í deildinni. „Við ætlum
okkur að spila sem eitt lið og ætlum
að reyna að bæta okkur með hverj-
um leiknum. Við setjum markið
ekki á eitthvað ákveðið sæti en við
stefnum á úrslitakeppnina, ég neita
því ekki. Við viljum komast þangað
inn og slást um titilinni eins og öll
önnur lið, annars værum við varla
í þessu,“ segir Gunnlaugur léttur
í bragði. „Það er gríðarleg stemn-
ing í liðinu fyrir tímabilinu og mikil
eftirvænting. Það eru allir að bíða
eftir fyrsta leiknum og við ætlum að
reyna að fá fólk með okkur í stemn-
inguna í vetur,“ segir hann.
Að lokum hvetur þjálfarinn
Hólmara til að styðja vel við bak-
ið á liðinu í vetur og vera duglega
að láta sjá sig á leikjum. Jafnframt
bendir hann þeim sem ekki komast
á leikina að Snæfell tV sendir út frá
Stykkishólmi í vetur. Áhugasamir
geta gerst áskrifendur að Youtube
rásinni Snæfell karfa til að fylgjast
með útsendingum þar.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Spá þjálfara, fyrirliða og formanna vegna
komandi tímabils í Domino‘s deildum karla
og kvenna í körfubolta, sem og 1. deildum
karla og kvenna var birt á kynningarfundi
deildanna í hádeginu á mánudag. Snæfelli
er spáð 5. sæti í Domino‘s deild kvenna en
Skallagrímskonum 7. sæti. Í 1. deild karla er
Skallagrími spáð 8. og næstneðsta sætinu en
Snæfelli er spáð 9. og neðsta sæti.
Spár þjálfara, fyrirliða og for-
manna eru eftirfarandi:
Domino‘s deild kvenna
1. Valur
2. KR
3. Haukar
4. Keflavík
5. Snæfell
6. Grindavík
7. Skallagrímur
8. Breiðablik
Domino‘s deild karla
1. KR
2. Stjarnan
3. tindastóll
4. Njarðvík
5. Grindavík
6. Haukar
7. Keflavík
8. Valur
9. Þór Þ.
10. ÍR
11. Fjölnir
12. Þór Ak.
1. deild karla
1. Hamar
2. Höttur
3. Breiðablik
4. Vestri
5. Álftanes
6. Selfoss
7. Sindri
8. Skallagrímur
9. Snæfell
1. deild kvenna
1. Njarðvík
2. Fjölnir
3. tindastóll
4. ÍR
5. Keflavík B
6. Grindavík B
7. Hamar
kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi
Gunnhildur Gunnarsdóttir í leik með
Snæfelli síðasta vetur
„Stefnum á
úrslitakeppnina“
Gunnlaugur Smárason.
„Spennandi uppbygging framundan“
segir Manuel Rodriguez, þjálfari karlaliðs Skallagríms
Skallagrímsmenn þjappa sér saman í leikhléi í leik síðasta vetur.
Ljósm. Skallagrímur.
Manuel Rodriguez, þjálfari karlaliðs
Skallagríms. Ljósm. úr einkasafni.