Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 2 oKtóBER 2019 21
Miðvikudaginn 25. september síð-
astliðinn var farin hin árlega haust-
ferð Félags aldraðra í Borgarfjarð-
ardölum. Í blíðskaparveðri lá leið-
in í Kjósina þar sem við félagarn-
ir nutu leiðsagnar heimamannanna
Kristjáns Finnssonar á Grjóteyri og
Guðmundar Davíðssonar í Mið-
dal. Dáðust félagar mjög að fegurð
Kjósarinnar. Kaffiveitinga nutum
við í Hjalla í Kjós þar sem kvenfé-
lagið í Kjós reiddi fram veisluborð
sem svignaði undan frábæru með-
læti. Þar hittum við eldri borgara af
svæðinu sem komu og nutu veiting-
anna með okkur. Á Hjalla hafa eig-
endur gert upp gömul útihús á ein-
staklega fallegan máta og geta tek-
ið á móti hópum. Nutum við svo
sannarlega góðs af því. Full þakk-
lætis kvöddum við svo Kjósina og
komum heim sæl og glöð eftir frá-
bæran dag. Anna Halldgrímsdóttir
Hrútadagur verður haldinn í Fax-
ahöllinni á Raufarhöfn um kom-
andi helgi, nú í fjórtánda sinn. Þá
verður þessi fornfrægi síldarbær
enn á ný miðja alheimsins. Margur
kemur kannski til með að spyrja sig,
hvers vegna Raufarhöfn? En ein-
föld og gild skýring er á því. Rauf-
arhöfn er miðsvæðis á milli Þistil-
fjarðar og Öxafjarðar sem er hreint
og riðulaust svæði. Geta bændur
hvaðan sem er af landinu komið
þangað og keypt sér kynbótahrút til
að bæta fjárstofn sinn. En að sjálf-
sögðu þurfa menn að hafa tilskilin
kaupleyfi.
Hrútadagurinn er endapunktur
á vikulangri hátíð sem ber heitið
Menningar- og hrútadagar á Rauf-
arhöfn 2019. Hófst hátíðin síðast-
liðinn föstudag, 27. september, og
lýkur sunnudaginn 6. október á
göngu með Ferðafélaginu Norður-
slóð.
„Ég hef staðið vaktina frá 2014
og alltaf er það jafn gaman. Dag-
skráin er mjög fjölbreytileg. Há-
punktur hátíðarinnar er hin árlega
hrútasýning og þar verða veitt verð-
laun fyrir besta skrokkgæðahrútinn
(Búvíshrútinn). Fær eigandi hans í
hendur farandbikar sem gefinn er
af Búvís. Sú nýung verður núna
að svalasti hrúturinn verður valinn
eða Emmessíshrúturinn og veitt
verða verðlaun fyrir hann. Fyrir
börnin verður haldin fegurðarsam-
keppni gimbra, sjón er sögu ríkari.
Þá verður farið í ýmsa leiki og „al-
mennan fíflagang“ eins og segir í
dagskrá hátíðarinnar. Einnig gefst
fólki kostur á að kaupa ýmsan varn-
ing í sölubásum. Jón Þór Kristjáns-
son verður kynnir og heldur utan
um dagskrána enda alvanur sprelli
og gríni. Rúsínan í pylsuendanum í
Faxahöllinni verður svo sala á hrút-
um sem endað gæti með hrútaupp-
boði,“ segir Ingibjörg Hann Sig-
urðardóttir, framkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar.
„Hrútadeginum lýkur að vanda
með veglegu hrútadagsballi í
Hnitbjörgum. Hefst dagskráin á
skemmtikvöldi sem byrjar klukk-
an 21.00. Karlakór Eyjafjarðar er
40 manna kór undir stjórn Guð-
laugs Viktorssonar en þeir eru al-
vanir sprelli og gríni og stefnir því
í gott kvöld. Undirleikari er Val-
mar Väljaots. Á ballinu sjálfu mun
hljómsveitin Hamrabandið frá Ak-
ureyri troða upp og treysti ég því að
þeir muni algjörlega standa undir
nafni og skemmta fólki langt fram
á nótt.“ mm
Kór Menntaskólans að Laugarvatni
hyggst bregða undir sig betri fætin-
um og ferðast í Borgarfjörð helgina
11.-13. október. Verður kórinn í
æfingabúðum á Varmalandi en mun
koma fram á tónleikum í Reyk-
holtskirkju laugardaginn 12. októ-
ber klukkan 15.
Kór ML hefur notið mikillar at-
hygli undanfarin ár og hlaut hann
og stjórnandi hans Eyrún Jónas-
dóttir snemma á þessu ári Mennta-
verðlaun Suðurlands fyrir sitt starf.
Kórinn er fjölmennasti framhalds-
skólakór landsins en í honum
syngja 103 nemendur úr 1.-3. bekk
sem er rúmlega 75% af öllum nem-
endum skólans. Á efnisskrá kórsins
er fjölbreytt tónlist, bæði íslensk
og erlend og því ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi. Undirleikur
er í höndum Eyrúnar kórstjóra auk
kórfélaga sjálfra.
„Borgfirðingar og aðrir eru hvatt-
ir til að koma í Reykholtskirkju og
njóta góðrar tónlistar gegn lágu
gjaldi,“ segir í tilkynningu.
mm
Kór ML syngur í
Reykholtskirkju 12. október
Haustferð eldri Borgfirðinga
Svipmynd frá hrútadeginum á Raufarhöfn.
Hrútadagur framundan á Raufarhöfn
Sköpuðu ný samfélög
Verkefnið um Draumalandið
snerist um að hóparnir sköpuðu
ímyndað land eða eyju í ímynd-
aðri heimsálfu. Gáfu nýja land-
inu nafn, lýstu samfélaginu sem
þar býr, teiknuðu kort, bjuggu
til gjaldmiðla og raunar allt
sem að venjulegum samfélögum
snýr. Þar með talið var skipu-
lagning heilbrigðiskerfis, stjórn-
sýslu, tungumáls, fjölmiðlun-
ar og svo framvegis. Unnið var
í 5-6 manna hópum sem settir
voru saman úr nemendum allra
árganga. „Við höfum aldrei ráð-
ist í svona stórt þemaverkefni
áður en okkar reynsla er að það
gekk vonum framar. Við fengum
mjög góðar móttökur frá nem-
endum og starfsfólki Mennta-
skóla Borgarfjarðar, en vissulega
voru það viðbrigði fyrir skóla-
starf MB að fá okkur hundrað
manna hóp yngri nemenda sem
stormsveip inn í sitt daglega líf.
En þetta samneyti gekk allt sam-
an mjög vel og við erum sann-
færðar um að þetta á eftir að
hjálpa Menntaskóla Borgarfjarð-
ar mikið í framtíðinni, ekki síður
en okkur. Grunnskólakrakkarnir
þekkja nú vel menntaskólann og
það starf sem þar er í gangi og
það kæmi okkur ekki á óvart að
stærra hlutfall útskrifaðra grunn-
skólanemenda velji að hefja hér
skólagöngu þegar þar að kemur,“
sögðu þær Inga Margrét og Birna
Hlín.
Reynir á
mannleg samskipti
Aðspurðar um reynsluna segja þær
að svona stórt hópverkefni sé mik-
ill skóli út af fyrir sig. „Hópavinna
reynir á svo margt í mannlegum
samskiptum. Þú þarft að byggja
upp traust, deila ábyrgð og vinnu
og því reynir þetta á alla. Stór þátt-
ur í þessu öllu saman er samvinna
og því eflir þetta einstaklingana og
á eftir að nýtast þeim í hverju sem
þeir taka sér fyrir hendur síðar.
okkur finnst þetta hafa tekist vel.
Við kölluðum eftir umsögn ung-
linganna og þeir eru jákvæðir og
komu með gagnlegar ábendingar
um verkefnið í heild sinni. Í fyrstu
voru nokkrir foreldrar skeptískir
um verkefnið, óttuðust jafnvel að
krakkarnir myndu dragast aftur úr
jafnöldrum þeirra í öðrum skólum
í námi. En þessir foreldrar hafa
vonandi allir séð ljósið, enda eru
bæði krakkarnir þeirra jákvæð-
ir ekki síður en við kennararnir.
okkur tókst að tengja allar náms-
greinar inn í þetta verkefni og
reynslan er gríðarlega dýrmæt. Nú
færum við okkur hins vegar niður
í skólann okkar á holtinu en búum
af reynslunni héðan í starfi okkar
í vetur,“ sögðu þær Birna Hlín og
Inga Margrét að endingu.
Fínt að kynnast öðrum
Blaðamaður ræddi við fjóra ung-
linga úr 10. bekk um reynsl-
una af Draumalandsverkefninu,
þau Andreu Ínu, Signýju Maríu,
Aron og Andra. Þau sögðu að
þessi tími hafi verið skemmtileg-
ur, fínt að breyta aðeins til. Sögðu
þau jákvætt að hafa kynnst í gegn-
um verkefnið nemendum í öðr-
um bekkjum. Engu að síður sögð-
ust þau hlakka til að komast aft-
ur í gamla bekkinn sinn og hefja
reglulegt nám að nýju. „Þetta var
fínt, en er komið gott núna,“ sagði
Aron.
mm
Þessi frísklegi hópur bjó til ímyndaða eylandið Bara-Búrú-Búrú sem stendur á eld-
fjallaeyjunni Búm-Búm sem gaus síðast fyrir 50 þúsund árum.
Rætt er við Ingu Margréti og Birnu Hlín umsjónarkennara á unglingastigi GBN.