Skessuhorn - 02.10.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 20196
RKÍ kynnir
áfallahóp
BORGARFJ: Rauði Krossinn
í Borgarfirði býður til kynning-
ar á viðbragðshópi sem nýverið
tók til starfa. Hópnum er ætlað
að sinna sálrænni skyndihjálp,
viðurkenndu verklagi á vett-
vangi áfalla með það markmið
að styðja einstaklinga til fyrra
jafnvægis og sjálfstæðis. Einnig
verður farið stuttlega yfir hvað
átt er við með áfalli og hugs-
anlegar afleiðingar áfalla, sögu
áfallahjálpar á Íslandi og upp-
byggingu sálrænar skyndihjálp-
ar. Kynningin verður í Hjálm-
akletti fimmtudaginn 3. októ-
ber klukkan 17:00. „Áhuga-
samir eru hvattir til að mæta og
kynna sér þetta mikilvæga sam-
félaglega verkefni. Viðburð-
inn má finna á facebook undir
– Áfall er ekki sprungið dekk!
Hvað er áfall, hvað getum við
gert,“ segir í tilkynningu. -mm
Hluti háskóla
norðurslóða
HVANNEYRI: Landbúnað-
arháskóli Íslands var 18. sept-
ember sl. formlega samþykkt-
ur sem hluti af Háskóla norður-
slóða (University of the Arctic –
UARCtIC). Var það samþykkt
á aðalfundi samtakanna í Stokk-
hólmi. Nú er LbhÍ hluti af Há-
skóla norðurslóða en þá opn-
ast spennandi nýir möguleikar
til nemenda- og kennaraskipta
við til dæmis Alaska, Kanada,
Grænland, Færeyjar, Rússland
og Norðurlönd ásamt því að
styrkja alþjóðlegan prófíl LbhÍ.
Frá þessu var greint á heima-
síðu skólans. -mm
Orkuveitan fjár-
festir fyrir 102
milljarða
SV-LAND: Fjárhagsspá
orkuveitu Reykjavíkur hefur
verið kynnt. Þar kemur m.a.
fram að næstu sex árin verði
102 milljörðum króna varið
í viðhalds- og nýfjárfestingar
á vegum samstæðunnar, sem
nær auk móðurfyrirtækisins
til Veitna, orku náttúrunn-
ar og Gagnaveitu Reykjavík-
ur. Fjárhagsspá samstæðu oR
fyrir árabilið 2020-2025 var
samþykkt af stjórn oR síðast-
liðinn mánudag og fer til um-
fjöllunar sem hluti af fjárhags-
áætlun samstæðu Reykjavík-
urborgar. „Fjárhagur orku-
veitu Reykjavíkur er traust-
ur og engra stórra breytinga
að vænta í tekjum eða gjöld-
um á næstu árum samkvæmt
spánni. Allsherjaruppfærsla á
orkumælum Veitna er stærsta
einstaka fjárfestingarverkefnið
á tímabilinu en einnig er gert
ráð fyrir byggingu nýrrar að-
veitustöðvar rafmagns sem
getur þjónað farþegaskipum
í Sundahöfn,“ segir í tilkynn-
ingu. -mm
Stórar uppsagnir
hjá bönkunum
LANDIÐ: Fyrir síðustu helgi
voru uppsagnir í tveimur ís-
lensku viðskiptabönkum. Ar-
ionbanki sagði upp 100 starf-
mönnum og Íslandsbanki upp
20, auk sex annarra fyrr í mán-
uðinum. Þá sagði Validor,
dótturfélag Arion banka, upp
tólf starfsmönnum. Nú í byrj-
un október eru því 140 færri
sem starfa í bankatengdri starf-
semi hér á landi. Fram kem-
ur í tilkynningum frá þessum
fjármálastofnunum að fækkun
starfsfólks sé vegna almennrar
hagræðingar í rekstri. -mm
Atvinnuleysi að
aukast
LANDIÐ: Samkvæmt árs-
tíðaleiðréttum tölum vinnu-
markaðsrannsóknar Hagstof-
unnar voru atvinnulausir hér á
landi 8.500 í ágúst, eða 4,4%,
sem er 1,3 prósentustigum
hærra hlutfall en í júlí. Á vef
Vinnuálastofnunar má sjá
skiptingu atvinnulausra eftir
sveitarfélögum á Vesturlandi,
en í júlí var heildarfjöldi at-
vinnulausra 177 í landshlutan-
um. Þar af voru 85 án atvinnu
á Akranesi, 38 í Borgarbyggð,
26 í Snæfellsbæ, 7 í Stykkis-
hólmi, 7 í Hvalfjarðarsveit,
5 í Dalabyggð, 5 í Eyja- og
Miklaholtsreppi, 3 í Grundar-
firði og einn í Skorradal.
-mm
Féll af fjórhjóli
AKRANES: Fjórhjólaslys
varð síðdegis á þriðjudaginn
í síðustu viku þegar ökumað-
ur fjórhjóls velti hjóli sínu á
gamla Akranesvegi. Ökumað-
urinn missti stjórn á hjólinu
við aksturinn með þeim af-
leiðingum að hann kastaðist af
því og hjólið hafnaði utan veg-
ar á hvolfi við ræsi. Ökumað-
ur fjórhjólsins er handleggs-
brotinn og meiddist auk þess á
mjöðm. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akranesi til að-
hlynningar.
-kgk
Ríkið og sex sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu; Garðabær, Hafnar-
fjörður, Kópavogur, Mosfellsbær,
Seltjarnarnes og Reykjavík undir-
rituðu í síðustu viku samkomulag
um uppbyggingu samgönguinnviða
og almenningssamgangna á höf-
uðborgarsvæðinu til næstu fimm-
tán ára. Samgöngusáttmáli höfuð-
borgarsvæðisins var undirritaður af
forsætisráðherra, fjármála- og efna-
hagsráðherra, samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra og sveitarstjór-
um sveitarfélaganna sex. Fjárfest-
ingin í heild er upp á 120 milljarða
króna. Ríkið mun leggja fram 45
milljarða og sveitarfélögin 15 millj-
arða. 60 milljarðar verða fjármagn-
aðir með gjöldum af vegfarend-
um. tekið er fram að tryggt verði
við endurskoðun gjalda af ökutækj-
um og umferð í tengslum við orku-
skipti að bíleigendur verði ekki tví-
skattaðir. Þá er einnig nefnt að rík-
ið gæti selt eignir til að standa und-
ir fjárfestingarhlut sínum.
Á þessu 15 ára tímabili verða 52,2
milljarðar lagðir í stofnvegi á höf-
uðborgarsvæðinu, 49,6 milljarðar í
innviði Borgarlínu og almennings-
samgöngur, 8,2 milljarðar í göngu-
og hjólastíga, göngubrýr og undir-
göng og 7,2 milljarðar í bætta um-
ferðarstýringu og sértækar örygg-
isaðgerðir. Þá verður þegar í stað
ráðist í að innleiða stafræna um-
ferðarstýringu á höfuðborgarsvæð-
inu.
Sundabraut ekki á kortið
Það vakti vissulega athygli að í þess-
um sáttmála ríkis og sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu er ekki gert ráð
fyrir lagningu Sundabrautar næstu
15 árin, né yfirhöfuð nefnt hvort eða
hvenær af því verkefni gæði orðið.
Ný vegtenging höfuðborgarsvæðis-
ins við Vesturlandsveg er því ekki á
dagskrá enn sem komið er. Sigurð-
ur Ingi Jóhannsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, lét þess get-
ið aðspurður á fundi um samgöngu-
mál síðastliðinn mánudag að hann
hyggist eiga samtal um Sundabraut
við Faxaflóahafnir, Reykjavíkurborg
og önnur sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu á næstu mánuðum.
mm
Eftir undirritun samkomulags ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ljósm. Vegagerðin.
Ríkið og sveitarfélög höfuðborgar-
svæðisins í samgönguátak