Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Page 16

Skessuhorn - 02.10.2019, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201916 Lundarreykjadalur skartaði sínu fegursta þegar blaðamaður Skessu- horns átti þar leið um á fimmtudag- inn. Ferðinni var heitið að tungu- felli í heimsókn til þeirra Þórarins Svavarssonar og Hjördísar Geir- dal. tungufell stendur í dal innar- lega í Lundarreykjadal og var það ævintýri líkast að aka heim að bæn- um. Allt í kringum hús þeirra hjóna voru tré af öllum stærðum og gerð- um og í öllum regnbogans haust- litum. Þórarinn og Hjördís hafa síðustu 19 ár verið skógarbænd- ur á tungufelli og hafa plantað í kringum 600 þúsund trjám á jörð- inni. Nýverið keyptu þau jörðina Iðunnarstaði og hyggjast þar fara í gang með ferðaþjónustu. Vinna við skipulag á jörðinni er á loka- metrunum og framundan að byggja gistihús og veitingaaðstöðu á kross- götum, þar sem stutt verður til allra átta; t.d. á Suðurland, í Borgarfjörð og vestur á Snæfellsnes. Ætlaði alltaf í skógrækt Þórarinn og Hjördís eru bæði Reyk- víkingar en þau ákváðu að kaupa sér jörð í Lundarreykjadal árið 2000 til að rækta þar tré. Hjördís kem- ur af skógræktarfólki og segir hún það alltaf hafa verið ætlunin að ger- ast skógræktarbóndi, spurningin var bara hvar. Foreldrar hennar og systir eru skógræktarbændur í Bisk- upstungum en Hjördís og Þórar- inn ákváðu að koma í Borgarfjörð- inn. „Það var nú bara tilviljun að við enduðum hér en við keyptum jörðina undir skógrækt og vorum hér um helgar og í fríum en bjugg- um í fyrstu áfram í bænum. Það var ekkert ætlunin að flytja hingað en svo fórum við bara að fara sjaldn- ar í bæinn og okkur hætti eiginlega að langa að fara þangað svo hér erum við,“ segir Þórarinn og brosir. „Þegar börnin fóru að fara í skóla þurftum við að ákveða hvar við ætl- uðum að vera og það er bara svo gott að vera hér í Lundarreykjadal, hér er gott samfélag og okkur líður vel,“ bætir Hjördís við og Þórarinn tekur heilshugar undir. Þau segjast lítið sækja til Reykjavíkur og ekkert sakna þess að búa þar. „Maður þarf stundum að fara þangað að útrétta, svona eins og flestir, en þá er allt- af gott að koma heim aftur,“ segir Hjördís og brosir. Flutti heim en vissi ekki af því Skömmu eftir að þau keyptu tungu- fell komst Þórarinn að skemmti- legri tengingu sinni við bæinn og Lundarreykjadal. „Langamma mín bjó víst hér á tungufelli til 16 ára aldurs og langafi minn, Guðmund- ur refaskytta, fæddist á Heggs- stöðum en bjó meðal annars hér á tungufelli um tíma. Svo komst ég að því að ég ætti skyldfólk næstum á öðrum hverjum bæ hér í Lund- arreykjadal og ég hafði ekki hug- mynd um neitt af þessu þegar við keyptum jörðina. Ég var bara að koma heim, en hafði ekki hugmynd um það,“ segir Þórarinn og hlær. Hann og Hjördís hafa mest plant- að furu, lerki, greni, ösp og birki í landið en þó er að finna ýmis- legt annað inn á milli eins og eik, eplatré, ýmsa berjarunna og fleira. „Við þurfum alltaf að prófa allt sem er nýtt,“ segir Hjördís. Auk þess að hafa sett niður öll þessi tré er bæði furan og birkið duglegt að dreifa sér sjálft svo nú er skógurinn orð- inn ansi myndarlegur. „Það er líka alltaf dásamlegt veður hjá okkur,“ Ætla að opna gistihús og kolefnisjafna allan reksturinn Rætt við Þórarinn og Hjördísi á Tungufelli um skógrækt og fyrirhugaðan gistihúsarekstur Hjördís Geirdal og Þórarinn Svavarsson á Tungufelli í Lundarreykjadal. Falleg aðkoma er að Tungufelli. Heiti potturinn í garðinum á Tungufelli. Hjördís og Þórarinn við tjörn í garðinum þeirra. Umhverfið minnir helst á atriði ur teiknimynd.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.