Skessuhorn - 02.10.2019, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 2. oKtóBER 201926
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Náms- og starfsráðgjöf fyrir full-
orðna hefur verið í boði hjá Sí-
menntunarmiðstöðinni á Vestur-
landi frá árinu 2006, ráðþegum að
kostnaðarlausu. Margir hafa nýtt
sér þessa þjónustu í gegnum árin,
en ráðgjöfin er fyrst og fremst
ætluð markhópnum í framhalds-
fræðslu þ.e. þeim sem eru 18 ára
og hafa ekki lokið formlegu námi.
Hjá Símenntunarmiðstöðinni hef-
ur áhersla verið lögð á að ná til fjöl-
breyttra hópa fólks og ekki síður til
innflytjenda.
Íbúar með erlent ríkisfang hér-
lendis voru 46.720 á síðasta árs-
fjórðungi, eða alls 12,9% af mann-
fjöldanum. Fyrir einu ári voru þeir
11,7% á landsvísu og hér á Vestur-
landi eru innflytjendur núna 12,1%
af íbúum. Þessar tölur segja þó ekki
allt því til þeirra teljast ekki þeir
sem hafa nú þegar fengið íslenskan
ríkisborgararétt en eru sannarlega
innflytjendur, auk þess sem opin-
ber skráning nær ekki alltaf utan
um alla. Af þessu má sjá að innflytj-
endum fjölgar og samfélag okkar er
langt frá því að vera einsleitt leng-
ur.
En hvers vegna ættu innflytjend-
ur að þurfa náms- og starfsráðgjöf?
Ástæðurnar geta verið margar, rétt
eins og hjá öðrum, en hér má m.a.
nefna að þá skortir oft mikilvægar
upplýsingar, eiga lítið tengslanet,
þeir þekkja ekki skólakerfið hér eða
menntunarmöguleika, þeir standa
gjarnan höllum fæti í atvinnulíf-
inu og hafa ekki réttindi og skyldur
á hreinu. Þeir þurfa stundum hjálp
við að gera ferilskrá á íslensku, að-
stoð við atvinnuleit, sem og stuðn-
ing við að fá fyrra nám og reynslu
metna. Jafnframt þurfa þeir gjarn-
an hvatningu og stuðning í námi og
starfi og upplýsingar um styrkja-
möguleika.
Í eigindlegri rannsókn sem gerð
var 2010 um aðgengi innflytjenda
með starfsmenntun að íslenskum
vinnumarkaði, voru helstu niður-
stöður þær að náms- og starfsráðgjöf
„getur hjálpað innflytjendum við að
skilja betur baráttuna og ergelsið
sem fylgir menningarlegu áfalli og
einnig getur hún lagt áherslu á þýð-
ingu þess að læra tungumálið í nýja
heimalandinu. Rannsóknin sýnir
mikilvægi þess að hjálpa innflytj-
endum í gegnum ferlið við að stað-
festa réttindi sín og liðsinna þeim
við atvinnuleit“ (Renner, 2010).
Rannsóknin staðfesti þannig mik-
ilvægi náms- og starfsráðgjafar til
handa innflytjendum á Íslandi.
Hjá Símenntunarmiðstöðinni
hafa innflytjendur verið vaxandi
hópur ráðþega í náms- og starfsráð-
gjöf. Árið 2016 voru viðtöl við inn-
flytjendur 30% af heildarviðtölum,
38% árið 2017 og 39% á síðasta ári.
Flestir ráðþegar eru Pólverjar, en
aðrir af u.þ.b. 20 - 25 þjóðernum.
til að nálgast þá hefur þjónustan
verið kynnt á námskeiðum á okkar
vegum og í heimsóknum í fyrirtæki
á Vesturlandi. Við höfum enn frem-
ur átt gott samstarf við Vinnumála-
stofnun og Rauða kross deildir á
Vesturlandi. Síðan en ekki síst hafa
innflytjendur frétt af ráðgjöfinni í
gegnum aðra og í gegnum kunn-
ingsskap. Ráðgjöfin fer oftast fram á
ensku þar sem ráðþegar eru af mis-
munandi þjóðerni og íslenska yfir-
leitt ekki fyrsti kostur. Í einhverjum
tilvikum fer ráðgjöfin fram á „ein-
faldri pólsku“ en kunnátta ráðgjafa
í pólsku er nægileg fyrir stöðluð
viðtöl og upplýsingar. Þá eru orða-
bækur og „google-translate” gagn-
leg hjálpartæki sem og myndir og
teikningar. Stundum kemur þriðji
aðili með í viðtalið, t.d. vinur eða
vinkona sem kann meiri ensku eða
íslensku en viðkomandi og í ein-
staka tilfelli er túlkur til staðar.
Það er mikilvægt að muna í sem
flestum aðstæðum að innflytjendur
eru ekki einn hópur heldur ólíkir
einstaklingar, úr mismunandi menn-
ingarheimum, með ólíkan uppruna,
bakgrunn, reynslu, menntun, trú,
skoðanir o.fl. Stundum eiga þeir
það eina sameiginlegt að vera út-
lendingar í nýju landi og tveir ein-
staklingar frá sama landinu geta
verið ólíkari en tveir einstaklingar
frá sitthvoru landinu. Þess vegna er
öll ráðgjöf einstaklingsmiðuð, og
sama þjónusta veitt og með íslensk-
um ráðþegum s.s. aðstoð við starfs-
leit, ferilskrárgerð, upplýsingar um
nám, raunfærnimat, persónuleg
ráðgjöf, o.fl. til viðbótar eru gjarn-
an meiri upplýsingar veittar – t.d.
vegna mats á fyrri menntun, upp-
lýsingar um íslenskupróf vegna rík-
isborgararéttar, stöðumat í íslensku,
fræðsla um atvinnulíf, réttindi og
skyldur, tilvísanir áfram ef þarf til
annarra sérfræðinga o.fl.
Þó að innflytjendur séu ólíkir
einstaklingar er samt sem áður áríð-
andi að skilja menningarlegan bak-
grunn fólks. Margar skilgreiningar
eru til á menningu, en ein er þannig:
„Menning er samsafn þeirra trúar-
legu, efnislegu, vitrænu og tilfinn-
ingalegu þátta sem einkenna hvert
samfélag eða samfélagshóp. Listir
og bókmenntir teljast til menning-
ar, en einnig lífsstíll, sambúðarform,
mannleg gildi, hefðir og skoðanir.“
(UNESCo, 2002). Fyrir ráðgjafa er
gott að þekkja ákveðin sammenn-
ingarleg einkenni hópa þannig að
menningarfærni sé höfð að leiðar-
ljósi í samskiptum.
Reynslan af ráðgjöf við innflytj-
endur hefur almennt verið jákvæð,
en við höfum séð fólk ná alls konar
árangri eftir náms- og starfsráðgjöf
t.d. að fá löggilt starfsréttindi. Við
höfum upplifað að fólk fer í raun-
færnimat, nám, fær betri störf eða
færist til í starfi, verður öruggara
og jákvæðara gagnvart því að læra
íslensku. Fólk treystir okkur og er
ánægt með að geta fengið ráðgjöf
sem er ekki háð opinberri stofnun.
Fjöldi innflytjenda mun halda
áfram að aukast á Íslandi og þ.a.l.
mun ráðþegum af erlendum upp-
runa fjölga. Miðað við rannsóknir,
reynslu okkar og ávinning innflytj-
enda af ráðgjöf viljum við hvetja
atvinnurekendur og alla þá sem
telja að náms- og starfsráðgjöf geti
gagnast þeim, að hringja eða senda
okkur línu og óska eftir viðtali.
Þjónustan fer fram um allt Vestur-
land og er ókeypis. S. 437-2391 og
tölvupóstur: vala@simenntun.is.
Guðrún Vala Elísdóttir.
Höf. er náms- og starfsráðgjafi hjá
Símenntunarmiðstöðinni á Vestur-
landi.
Heimildir:
Renner, M.E. (2010). WE WANt to
CoNtRIBUtE too the narrative ex-
perience of immigrants with career qualifica-
tions and their acceptance into the Icelandic
labor market (óútgefin meistararitgerð). Sótt
af https://skemman.is/handle/1946/4198
http://www.unesco.org/educat ion/
imld_2002/unversal_decla.shtml
Pennagrein
Náms- og starfsráðgjöf fyrir innflytjendur
Svipmyndir frá Þjóðahátíð Vesturlands sem haldin var á Akranesi 22. september sl.