Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2019, Síða 31

Skessuhorn - 02.10.2019, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 2 oKtóBER 2019 31 körfuknattleikstímabilið hafið „Ég held að við verðum betri en á síðasta ári. Við höfum bætt okkur á stöðum þar sem við vorum í vandræðum í fyrra, eins og und- ir körfunni, fengum leikmenn til að leysa þær stöður. Að því sögðu erum við ennþá með mjög ungt lið. Strákarnir í stöðum eitt til þrjú eru að meðaltali 17 ára gamlir. Við förum eins langt í vetur og ungir og efni- legir leikmenn geta borið okkur,“ segir Vla- dimir Ivankovic, þjálfari karlaliðs Snæfells í 1. deild karla, í samtali við Skessuhorn. „Lið- ið er efnilegt, en strákarnir eru ungir og eiga eftir að mæta reynslumiklum og góðum leik- mönnum í vetur. Strákarnir okkar tóku mikl- um framförum í fyrra og ef þeir halda áfram að bæta sig þá verðum við með gott lið,“ bæt- ir hann við. Snæfell vann tvo leiki af 21 síðasta vetur og hafnaði í 7. sæti 1. deildar. Kynslóðaskipti hafa orðið í liðinu og er það í dag að stærst- um hluta skipað mjög ungum en efnilegum leikmönnum. Vladimir segir fyrir öllu að liðið haldi áfram að þroskast og verða betra. „Aðalmarkmiðið er að búa til góða leikmenn, hjálpa þeim að vaxa og dafna. Í ár teljum við að það muni ekki koma niður á árangri liðs- ins,“ segir hann. „Snæfell er lið sem mun alltaf þurfa að byggja á góðum kjarna heimamanna. Úr hverri kynslóð leikmanna þurfa einn eða tveir leikmenn að skila sér inn í meistara- flokk,“ segir hann og bætir því við að hann sé ánægður með hópinn. „Ef við ætluðum að berjast um sæti í Domino‘s deildinni þá væri liðið öðruvísi. Markmiðið og það sem skipt- ir mestu máli núna er að byggja upp gott og samkeppnishæft lið. okkur tókst að byggja aðeins upp í fyrra. Núna erum við reynslu- meiri, bæði ég sem þjálfari og liðið sjálft. Ég held við verðum vel samkeppnishæfir og get- um endað mótið um miðja deild. Það væri gott. En ef færi gefst þá auðvitað reynum við að gera enn betur.“ Nú í fyrsta sinn skipulögðu aðstandend- ur Snæfellsliðsins sérstakan viðburð fyrir keppnistímabilið. Meistaraflokkar karla og kvenna léku rauðir gegn hvítum og þannig voru leikmenn liðsins kynntir til sögunnar fyrir veturinn. Vladimir segist ánægður með þessa nýbreytni og vonast til að hún sé kom- in til að vera. „Það var góð mæting í endur- nýjað íþróttahúsið okkar. Mér finnst að við ættum að gera þetta á hverju ári og vona að þetta verði að hefð hér í Stykkishólmi,“ segir hann. Hvað varðar undirbúninginn sjálfan hafa meiðsli hrjáð karlaliðið á undirbúningstíma- bilinu. Einkum hefur meiðslagrýlan hrjáð leikstjórnendur liðsins og þurfti Snæfell til að mynda að leika æfingaleiki gegn Vestra og Hamri án leikstjórnanda. „Leiknum á móti Vestra töpuðum við með 17 stigum og þar áður töpuðum við fyrir Hamri með 16 stig- um,“ segir Vladimir. „En þrátt fyrir að vera án leikstjórnanda þá sást greinlega að liðið hefur tekið framförum frá síðasta ári. Eftir þessa leiki sagði ég stráknum að þeir væru að spila á 75% af þeirri getu sem ég tel liðið búa yfir. Við höfum verið að glíma við meiðsli en við náum að verða 100% fyrr eða síðar. Þá getum við keppt um miðja deildina,“ segir hann. „okkur langar gjarnan að ná 5. sæti eða ofar og komast í úrslitakeppnina, við vilj- um lengja tímabilið og spila meiri körfubolta en í fyrra. En ef það gerist ekki og við erum samt samkeppnishæfir þá verðum við ekkert óánægðir með það. Við verðum að setja okk- ur erfið markmið til að ná okkar aðalmark- miðum,“ segir Vladimir Ivankovic að end- ingu. kgk Guðrún ósk Ámundadóttir er öllum hnút- um kunnug hjá Skallagrími. Hún er upp- alin hjá félaginu og á að baki fjölda leikja með meistaraflokki Borgarnesliðsins. Á sín- um leikmannaferli varð hún Íslandsmeist- ari með Haukum og fimmfaldur bikarmeist- ari með bæði Haukum og KR. Hún sneri aft- ur í Borgarnes þegar meistaraflokkur kvenna var endurvakinn haustið 2015 og var fyrirliði liðsins sem sigraði 1. deild kvenna vorið eft- ir og tryggði sér sæti í Domino‘s deildinni. Þar hefur liðið spilað síðan. Á síðasta keppn- istímabili var Guðrún spilandi aðstoðarþjálf- ari og mun í vetur þreyta frumraun sína sem aðalþjálfari. Hún segir ráðninguna hafa bor- ið brátt að. „Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að taka við liðinu, en ég bjóst ekki við því að það yrði á þessu ári. Ég er búin að eiga mjög fínan feril sem leikmaður og er mjög sátt við hann. En ég bjóst ekki við að taka við svona stóru hlutverki alveg strax. En það er bara skref upp á við, það eru krefjandi tímar framundan og mér finnst þetta ótrú- lega spennandi verkefni að takast á við,“ seg- ir Guðrún í samtali við Skessuhorn. „Mér líst vel á komandi vetur. Við erum með töluvert breyttan hóp frá því í fyrra, mjög góða ein- staklinga en fyrst og fremst mjög flottan hóp. Liðsandinn er góður og með góðri stemningu getur allt gerst,“ segir hún. Guðrún þekkir hópinn vel og deildina, búin að eiga farsælan leikmannaferil auk þess að hafa þjálfað yngri flokka Skallagríms undanfarin ár. „Yngri flokkar Skallagríms hafa styrkst mjög mikið undanfarin ár. Þar hafa verið miklar framfar- ir og iðkendum hefur fjölgað verulega, sér- staklega hjá stelpunum eftir að meistaraflokk- ur var endurvakinn, það hefur haft mjög jákvæð áhrif á yngri flokkana,“ segir hún. „Núna þurf- um við að sjá til þess að halda meistaraflokki uppi með okkar hóp auk erlendra leikmanna í þrjú til fjögur ár í við- bót. Þá er mjög efnileg- ur hópur að koma upp úr yngri flokkunum og taka við keflinu. Þetta er fljótt að gerast, um leið og ungar stelpur hafa fyrirmyndir þá eykst áhuginn. Ef megnið af þeim stelpum sem eru svona í kringum fermingaraldurinn skila sér upp í meistaraflokk eftir nokkur ár þá er framtíðin ótrúlega björt og við getum byggt meistaraflokkinn alfarið á heimastelp- um í framtíðinni, sem er ótrúlega flott,“ seg- ir Guðrún. Vilja í úrslitakeppnina Spurð hvort það verði einhverjar sérstakar áherslur hjá Skallagrími í vetur nefnir Guð- rún varnarleikinn. „Ég legg áherslu á að við spilum góða vörn og sýnum baráttu inni á vellinum. Við erum að einbeita okkur að því núna og það hefur gengið vel. Reyndar höfum við ekki haft tækifæri til að æfa mik- ið saman, allur hópurinn, en þetta er allt að koma og lítur bara mjög vel út. Við verð- um betri og betri nánast bara með hverjum deginum sem líður,“ segir hún. En hver eru markmið Skallagrímsliðsins á komandi tí- ambili? „Við ætlum í alla leiki til að reyna að vinna þá og munum alltaf gera okkar allra besta inni á vellinum og verðum að sjá hvað það fleytir okkur áfram,“ segir Guðrún. „En auðvitað er alltaf markmiðið að ná einu af fjórum efstu sætunum og komast í úrslita- keppnina. Með góðri baráttu, liðsheild og liðsanda ætti það að geta gengið. Það er fyr- irséð að í deildinni í ár eru tvö mjög sterk lið, KR og Valur, sem munu skipa sér í tvö efstu sætin. Ég spái því að næstu lið eigi eftir að stela stigum hvert af öðru í allan vetur og það verði hörð barátta um seinni tvö sætin í úrslitakeppnina allt tímabilið. Það kæmi mér ekki á óvart að það myndi ekki ráðast fyrr en í síðustu umferðinni hvaða tvö lið enda í 3. og 4. sæti, allavega svona eins og deildin blasir við manni núna fyrir mót,“ segir hún. Að lokum vill Guðrún nýta tækifærið og koma á framfæri þakklæti til stuðnings- manna Skallagríms fyrir að hafa stutt við bakið á liðinu undanfarin ár. „Þeir hafa staðið sig mjög vel og ég vona að þeir haldi áfram að mæta á leiki og styðja við bakið á liðinu,“ segir hún. „Mér finnst vera mjög góð stemning í bænum núna fyrir mót og liðsandinn er frábær,“ segir Guðrún ánægð. „Þetta á auðvitað fyrst og fremst að vera gaman, það er númer eitt, tvö og þrjú. Þó þetta sé keppni þá náum við ekki langt ef þetta er ekki gaman,“ segir Guðrún ósk Ámundadóttir að endingu. kgk/ Ljósm. Skallagrímur. „Góð stemning í bænum og liðsandinn frábær“ segir Guðrún Ósk Ámundadóttir, þjálfari kvennaliðs Skallagríms Frá leik Skallagrímsliðsins síðasta vetur. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir gerir atlögu að körfunni. Guðrún Ósk Ámundadóttir, nýr þjálfari kvennaliðs Skallagríms. „Aðalmarkmiðið að búa til góða leikmenn“ Vladimir Ivankovic á hliðarlínunni hjá Snæfelli síðasta vetur. Ljósm. sá. ÍA hóf leik í 2. deild karla í körfuknattleik síð- astliðinn sunnudag þegar liðið beið lægri hlut gegn Njarðvík B á Akranesi, 121-131. Eins og lokatölur fyrsta leiksins gefa til kynna ætl- ar ungt og efnilegt lið Skagamanna að spila hraðan bolta eins og í fyrra. „Það verður spil- að á fullu gasi í vetur,“ segir Jón Þór Þórð- arson, formaður Körfuknattleiksfélags ÍA, í samtali við Skessuhorn. Honum líst vel á komandi vetur í körfunni. „Mér líst vel á þetta og þetta verður spenn- andi tímabil fyrir okkur. Við völdum að vera áfram í 2. deildinni af því við erum með mjög ungt lið. Margir leikmenn sem munu spila þónokkrar mínútur í vetur eru enn í 9. og 10. bekk og að stíga sín fyrstu skref í meistara- flokki, í bland við nokkra reynslubolta. Við mátum það svo að 2. deildin væri fínn vett- vangur fyrir svoleiðis hóp,“ segir hann. „Þess- ir leikmenn sem eru að ganga upp í meistara- flokk núna eru hluti af því uppbyggingarstarfi sem við höfum verið í núna um langt skeið. Fyrstu sprotarnir af því eru að koma upp úr jörðinni og vonandi getum við byggt á þessu starfi til framtíðar,“ segir Jón Þór. „Ungu leikmennirnir verða auðvitað reynslunni rík- ari með hverju árinu. Það er ákveðið tækifæri að fá að spila í fullorðinsflokki svona snemma á ferlinum, það flýtir þroskanum mikið,“ seg- ir hann. Bandaríkjamaðurinn Chaz Franklin snýr aftur sem þjálfari liðsins. Jón Þór lætur vel af samstarfinu við hann. „Hann þekkir hóp- inn og félagið eftir að hafa verið með okkur í fyrra og við erum ánægðir að hafa fengið hann aftur,“ segir Jón Þór. Undirbúningur- inn segir hann að hafi gengið vel og að mestu verið hefðbundinn. „Leikmenn frá okkur voru í landsliðsúrtökum í vor og svo fórum við með ungu strákana til Spánar í sumar. Þannig að það eru allir ferskir og koma til- búnir til leiks,“ segir hann og bætir því við að honum þyki spennandi hvernig körfuknatt- leiksfélagið nálgast hlutina þennan veturinn. „Við erum með lágvaxið og snöggt körfubol- talið og spilum algjöran „run and gun“ bolta. Það er ein leið til að spila körfubolta og önn- ur lið verða bara að hlaupa með okkur ef þau ætla sér að halda í við okkur inni á vellinum. Það verður fjör og gaman á ÍA leikjum í vet- ur, þessi leikstíll er mjög líflegur og skemmti- legur,“ segir Jón Þór. Helstu áherslur og markmið vetrarins hjá liðinu verða að halda áfram að þroska leik- menn og gera þá að betri körfuknattleiks- mönnum. „Auðvitað væri gaman að kom- ast í úrslitakeppnina eins og í fyrra og okkur langar að berjast um fjögur efstu sætin, það gefur góða og skemmtilega stemningu í lok tímabilsins,“ segir hann. „En fyrst og fremst snýst þetta um að halda áfram uppbyggingar- starfinu og við horfum bjartir til vetrarins og framtíðarinar,“ segir Jón Þór Þórðarson að endingu. kgk/ Ljósm. úr safni. „Horfum bjartir til vetrarins og framtíðarinnar“ Jón Þór Þórðarson er formaður Körfuknattleiksfélags ÍA.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.