Skessuhorn - 04.12.2019, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 201914
Við Hafnargötu 12 í Rifi er Bif-
reiðaverkstæði Ægis slf. til húsa.
Verkstæðið er rekið sem fjölskyldu-
fyrirtæki og hefur verið starfrækt
síðan 1. apríl 1986 af hjóninunum
Ægi Ingvarssyni og Ástu Dóru Val-
geirsdóttur, en nú er sonur þeirra
Ingvar Valgeir að mestu tekinn við
rekstrinum. Ástæðuna fyrir því að
opnað var fyrsta apríl segir Ingvar
vera að það hafi nú bara hist svona
á því þetta árið var fyrsti virki dagur
eftir páska 1. apríl. „Það er gaman
að segja frá því að þegar verkstæð-
ið hélt upp á 30 ára afmæli sitt fyr-
ir þremur árum var 1. apríl einmitt
fyrsti virki dagur eftir páska. Þó
formleg opnun hafi verið 1. apríl
var í raun búið að opna, en vik-
una fyrir páska voru nokkrir bílar
teknir inn sem lá á að koma í lag. Á
verkstæðinu hefur alltaf verið boð-
ið uppá almennar viðgerðir ásamt
því að margir strákar hafi komið í
starfskynningu í gegnum árin. Hafa
fleiri en einn þeirra orðið bifvéla-
virkjar sem er mjög ánægjulegt,“
segir Ingvar Valgeir í samtali við
Skessuhorn.
Þegar Ægir faðir Ingvars hóf
fyrst rekstur var það í 60 fermetra
bílskúr við íbúðarhús þeirra að
Görðum, Hraunási 12 á Hellis-
sandi. Það var svo á árunum 1990
og 1991 sem verkstæðið var flutt í
helmingi stærra húsnæði við Hafn-
argötu 12 í Rifi. Unnu þeir feðgar á
verkstæðinu átta tíma á dag og fóru
svo beint upp á efri hæð hússins til
að standsetja íbúð þangað sem fjöl-
skyldan flutti svo inn. Þegar Ing-
var tók svo við verkstæðisrekstr-
inum 2015 má segja að kynslóða-
skipti hafi orðið, en faðir hans hætti
að skrúfa, eins og Ingvar orðar það,
en var honum til aðstoðar við síms-
vörun og móttöku ásamt öðru þar
til hann varð sjötugur, enda margt
sem gera þarf á verkstæði annað
en að gera við bíla. Á Ingvar Val-
geir helmingshlut á móti foreldrum
sínum og skipta þau með sér verk-
um þannig að hann sér um rekstur-
inn og er framkvæmdastjóri, Ægir
faðir hans er stjórnarformaður og
Ásta Dóra móðir hans fjármála-
stjóri. Nú þegar Ingvar er orðinn
einn á verkstæðinu er hann allt í
öllu; svarar í síma, er í móttökunni
og pappírsvinnu fyrir utan að gera
við. Er hann með opið átta tíma á
dag virka daga vikunnar og alltaf er
nóg að gera að hans sögn. Býður
hann alla almenna viðgerðarþjón-
ustu, smurþjónustu og rúðuskipti
og er viðurkennt verkstæði hjá
þeim fyrir tryggingafélögin Sjóvá,
TM og VÍS. Er hann einnig með
tæki til að skipta um dekk og tek-
ur að sér dekkjaþjónustu eftir getu
þar sem hann er einn. Sem dæmi
má verkstæðið þjónusta bíla frá BL,
Bílabúð Benna og Brimborg og er
með smurþjónustu fyrir Toyota.
Aðspurður hvernig gangi að reka
verkstæði úti á landi svarar Ingvar:
„Það væri alltaf nóg að gera hjá mér
og fæ ég viðskiptavini af öllu Nes-
inu, svo ég er bara sáttur.“ þa
Laugardaginn 30. nóvember var
nýja viðbyggingin við Dvalarheim-
ilið Fellaskjól í Grundarfirði vígð
og formlega tekin í notkun. Séra
Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknar-
prestur í Grundarfirði, vígði og
blessaði viðbygginguna áður en
Hildur Sæmundsdóttir fór stutt-
lega yfir sögu dvalarheimilisins. Þá
þakkaði hún öllum sem lagt hafa
hönd á plóg til að láta þetta verða
að veruleika. Eftir stutt ræðuhöld
var öllum boðið að þiggja veiting-
ar með jólalegu ívafi. Viðbygging-
in hefur gjörbreytt aðstöðu íbúa
til hins betra. Næst á dagskrá er að
taka gömlu rýmin í gegn og gera
þau betri.
tfk
Ingvar Valgeir Ægisson bifvélavirki.
Bifreiðaþjónusta Ægis er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki í Rifi
Hildur Sæmundsdóttir formaður stjórnar Fellaskjóls og Patricia Laugesen for-
stöðukona heimilisins.
Viðbygging Dvalarheimilisins Fellaskjóls
vígð við hátíðlega athöfn
Séra Aðalsteinn Þorvaldsson er hér með stutta blessun á þessum hátíðlega degi. Íbúar og gestir við vígsluna.
Björg Ágústsdóttir hélt stutta tölu og færði heimilinu gjöf frá Grundarfjarðarbæ.