Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2019, Page 23

Skessuhorn - 04.12.2019, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 23 S K E S S U H O R N 2 01 9 Hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit 2020-2024 Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í hreinsun rotþróa fyrir heimili, frístundarhús og stofnanir í sveitarfélaginu. Rotþrær skal hreinsa þriðja hvert ár. Fjöldi rotþróa í sveitarfélagi er um 680 stk. Verktími er 5 ár, frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2024. Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, og nafn, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda. Tilboð verða opnuð í Stjórnsýsluhúsi (Ráðhúsi) Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes, föstudaginn 9. janúar 2020 kl. 11.00. Skipulags- og umhverfisfulltrúi „Við búum á bóndabæ skammt frá bökkum Dónár í Neðra-Austurríki, sem er stærsta sambandsríki Aust- urríkis. Þar erum við með lífrænan búskap, 131 á á húsi sem við mjólk- um og framleiðum sem stendur níu mismunandi osta úr mjólkinni,“ segja þau Gerald og Katharina Schinwald í samtali við Skessu- horn. „Sem stendur framleiðum við osta úr mjólk um það bil 90 áa, en stefnum að því að mjólka í kringum 120 á næsta ári. Við hófum búskap árið 2016, reistum hús fyrir allt að 150 ær og erum að þróa búið okkar í þá átt að við getum selt alla okk- ar framleiðslu,“ segja þau. „Okkur langaði alltaf að eiga dýr og jafnvel að gerast bændur. En Gerald lærði grafíska hönnun og ég lærði tísku- hönnun. Við störfuðum í eitt ár í Vínarborg áður en rann upp fyrir okkur að stórborgarlífið og skrif- stofuvinna væri ekki það sem okk- ur langaði að fást við alla ævi. Við skelltum okkur því í landbúnaðar- nám, því við höfum í rauninni ekki landbúnaðarbakgrunn,“ segir Kat- harina. „Þú hefur hann nú reynd- ar, foreldrar þínir eru kjúklinga- bændur,“ segir Gerald og lítur á Katharinu. „Já, þeir eru það vissu- lega, en kjúklingabúskapur er ger- ólíkur því sem við erum að gera,“ segir hún og Gerald samsinnir því. Náminu luku þau ekki, því þau hóf- ust handa við að reisa fjárhúsin á sama tíma og þau byrjuðu á meist- araritgerðinni. Hún var því sett í salt. „Foreldrar mínir buðu okk- ur landskika og við slóum til,“ seg- ir Katharina. „Annars hefðum við aldrei getað gert þetta, því ræktar- land er svo dýrt í Austurríki,“ bæt- ir Gerald við. „En við þurftum ekki einu sinni að ræða það hvernig bú- skap við vildum stunda. Það kom aldrei neitt annað til greina en að vera með kindur,“ segir Katharina. Allt unnið heima Fyrstu ostarnir sem Katharina og Gerland bjuggu til voru seld- ir í maí 2017 og voru þeir afrakst- ur framleiðslu febrúarmánaðar. Í ágúst hófu þau að fara reglu- lega til Vínarborgar að selja ost- ana sína og frá þeim tíma hafa þau fjölgað tegundunum. „Núna erum við með camembert, fetaost bæði í olíu og kryddaðan, halloumi, ri- cotta og fleiri tegundir sem marg- ar hverjar eru hefðbundnar á okk- ar svæði,“ segir Katharina. Allur þeirra ostur er framleidd- ur af þeim sjálfum, heima á búinu. Í næsta húsi við fjárhúsin er lítil vinnsla þar sem osturinn er bú- inn til. Þau annast því allt ferlið sjálf, frá mjólkur til osta, en segja að þannig þurfi það ekkert endi- lega að vera. „Ég veit um nokkra bændur sem tóku sig saman og létu útbúa rjómabú á hjólum, sem er vinnsla sem er ekið á milli býla og mjólkinni safnað sam- an. Þá þarf hver og einn aðeins að útbúa mjaltabás og geymslu heima á sínu býli. Síðan er mjólk- inni safnað saman, búinn til ostur og bændurnir selja hana í félagi. Þannig verður fjárfesting hvers og eins ekki jafn mikil,“ segir Ger- ald. „Þetta er kannski ekki algengt í Austurríki en þekkist í Sviss og aðeins í Þýskalandi. Ef til vill er þetta eitthvað sem gæti virkað hér á Íslandi,“ segja þau. Hvetja bændur til að prófa Þau Gerald og Katharina fluttu fræðsluerindi um sauðaostagerð á matarhátíð sem haldin var á Hvanneyri fyrir tíu dögum. Þar sögðu þau frá sinni reynslu og veltu fyrir sér hvernig íslensk- ir bændur gætu borið sig að við sauðaostaframleiðslu. „Ég held að hér á landi gætu sauðfjárbænd- ur hæglega hafið farmleiðslu á mjólkurafurðum meðfram kjöt- framleiðslu. Beitilandið er til stað- ar, sem er líklega hagkvæmasta leiðin til að framleiða mjólk, að hafa dýrin úti á beit þar sem þau Tegundirnar sem þau framleiða eru alls níu talsins og af ýmsum toga. „Tækifæri í sauðaostagerð á Íslandi“ - segja ostabændurnir Gerald og Katharina Schinwald Ostabændurnir Katharina og Gerald Schinwald. Ljósm. kgk. Heima á búinu í Austurríki. Ærnar í góðu yfirlæti í austurrískum haga. Austurrískur sauðaostur, framleiddur á búi Geralds og Katharinu. fá mikið prótín og orku úr fersku grasinu. Þetta væri þó líklega að- eins mögulegt yfir sumarmánuð- ina á meðan gróðurinn er í blóma. Engu að síður er þarna tækifæri til að fá aðra afurð af kindunum til viðbótar við kjötið,“ segir Gerald. „Ég held að þetta gæti vel geng- ið hér, en auðvitað þyrftu íslenskir bændur að laga sig að aðstæðun- um. Við getum ekki sagt fólki að gera þetta bara eins og við gerum í Austurríki, þar sem við sláum fjór- um sinnum á ári en hér er almennt bara slegið tvisvar. Aðstæðurnar eru allt öðruvísi,“ segir hann en þau hvetja íslenska sauðfjárbænd- ur til að reyna sig við ostagerð. „Það væri ráð fyrir þá sem hafa áhuga á að prófa að heimsækja bændur í landi þar sem sauðaosta- gerð hefur fest sig vel í sessi. Læra til verka og sjá hvað myndi ganga upp á Íslandi og hvað ekki,“ segir Gerald. „Það góða er að hér eru töluvert margir sauðfjárbændur fyrir. Íslendingar vita vel hvernig á að hugsa um sauðfé, það er virki- lega góð byrjun,“ segir Katharina. „Það eru tækifæri í sauðaostagerð á Íslandi, við erum ekki í nokkr- um vafa um það,“ segja Gerald og Katharina að endingu. kgk/ Ljósm. úr einkasafni. Tillaga að nýju aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig er auglýst umhverfisskýrsla tillögunnar samkvæmt 7. gr. laga um um- hverfismat áætlana nr. 105/2006. Gefst nú 7 vikna athugasemdafrestur en að honum loknum mun bæjarstjórn taka afstöðu til athugasemda og afgreiða tillöguna til staðfestingar Skipulagsstofnunar. Aðalskipulagstillagan nær til alls sveitarfélagsins og er sett fram í greinargerð og á tveimur skipulagsuppdráttum. Þar kemur fram stefna sem varðar þróun byggðar, landnotkun og innviði og skiptir íbúa og aðra hagsmunaaðila miklu máli. Þeir eru því hvattir til að kynna sér skipulagsgögnin sem eru aðgengileg á vef sveitarfélagsins, www.grundarfjordur.is, og liggja frammi til sýnis á skrif- stofu Grundarfjarðarbæjar og hjá Skipulagsstofnun frá 4. desember 2019 til og með 22. janúar 2020. Sama dag rennur út frestur til að gera athugasemdir við tillöguna og umhverfisskýrslu hennar. Athugasemdir skal senda skriflega á netfangið skipulag@grundarfjordur.is eða til Grundarfjarðarbæjar, vegna aðalskipulags, Borgarbraut 16, 350 Grundarfirði. F.h. bæjarstjórnar Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbær SK ES SU H O R N 2 01 9

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.