Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2019, Side 29

Skessuhorn - 04.12.2019, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 29 Borgarbyggð - miðvikudagur 4. desember Jólafundur Félags aldraðra í Borg- arfjarðardölum. Fundurinn hefst kl. 13:30 í Félagsheimilinu í Brún. Stykkishólmur - miðvikudagur 4. desember Ljósin á jólagrénu í Hólmgarði verða tendruð kl. 18:00. Kvenfélagskonur verða með heitt súkkulaði og smá- kökur til sölu, spiluð verður jólatón- list, dansað í kringum jólatréð og hver veit nema jólasveinarnir kíki í heimsókn. Stykkishólmur - miðvikudagur 4. desember Snæfell mætir Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leik- urinn hefst kl. 19.15 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Snæfellsbær - miðvikudagur 4. desember Bókamessa í Félagsheimilinu Klifi kl. 20:00. Höfundar lesa upp úr bókum sínum og árita á staðnum. Auður Jónsdóttir, Eva Björg Ægisdóttir, Dóri DNA, Hildur Knútsdóttir og Hjalti Halldórsson lesa upp úr bókum sín- um. Kynning á höfundum verður í höndum 10. bekkinga Grunnskóla Snæfellsbæjar, sem einnig annast veitingasölu. Aðgangseyrir er kr. 1.000 en 500 fyrir börn yngri en 15 ára í fylgd með fullorðnum. Athugið að enginn posi verður á staðnum. Borgarbyggð - fimmtudagur 5. desember Opið hús í Safnahúsi Borgarfjarðar til kl. 20:00. Sett verður upp hand- smíðað jólatré eftir Guðmund Böðv- arsson, skáld á Kirkjubóli og smá- sagan Aðventa eftir Gunnar Gunn- arsson, í þýðingu Magnúsar Ásgeirs- sonar, lesin frá kl. 18:00. Sjálfboðalið- ar lesa ásamt starfsfólki Safnahúss. Akranes - fimmtudagur 5. desember Stjörnubjart í Akranesvita kl. 18:30. Hugljúf aðventustund með Ágústu Sigrúnu söngkonu og Margréti Arn- ar sem spilar á harmonikku. Þær flytja stjörnubjört lög og sálma sem ylja fólki um hjartaræturnar á að- ventunni. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og þá fylgir geisladiskurinn Stjörnu- bjart með í kaupbæti. Snæfellsbær - fimmtudagur 5. desember Jólatónleikar Kirkjukórs Ólafsvík- ur í Ólafsvíkurkirkju kl. 20:00. Ein- söngvarar eru Jón Bjarki Jónatans- son, Olga Guðrún Gunnarsdóttir og Veronica Osterhammer. Meðleikari er Elena Makeeva og stjórnandi er Veronica Osterhammer. Aðgangs- eyrir er kr. 1.500. Akranes - fimmtudagur 5. desember Jólagleði kóranna. Grundartanga- kórinn, Kvennakórinn Ymur, Karla- kórinn Svanir og Kór Saurbæjar- prestakalls halda tónleika í Tónbergi fimmtudaginn 5. desember kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 3.500. Kaffi og smákökur í hléi. Forsala aðgöngu- miða er á Bókasafni Akraness. At- hugið að enginn posi er á staðnum. Akranes - föstudagur 6. desember Jólamorgunstund í Brekkubæjar- skóla kl. 9:00. Fasturliður í að koma Brekkubæingum í jólagírinn. Að vanda koma margir nemendur fram og ýmislegt verður í boði; atriði frá 1., 7., og 8. bekk, sungin jólalög, skólakórinn og jóladans. Allir vel- komnir. Borgarbyggð - laugardagur 7. desember Jólamarkaður í Nesi í Reykholtsdal frá kl. 13:00 til 17:00. Grundarfjörður - laugardagur 7. desember UMFG mætir BF í blaki kvenna. Leik- ið verður í íþróttahúsinu í Grundar- firði frá kl. 14:00. Snæfellsbær - laugardagur 7. desember Prins Jóló í Frystiklefanum. Það er hér með gjört heyrinkunnugt að tónleikar Prins Jóló verða haldnir í Frystiklefanum í Rifi kl. 20:00. Í för með Prinsinum verða Benedikt Her- mann Hermannsson og Björn Krist- jánsson og saman ætla þeir að leika skástu lög Prinsins í hátíðlegum út- gáfum og dusta rykið af nokkr- um þolanlegum jólalögum úr eig- in smiðju. Taktu 7. desember frá til að eiga heilaga stund með hirðinni. Miðasala á tix.is. Snæfellsbær - sunnudagur 8. desember Aðventustund annan sunnudag aðventu. Vegna veðurs þurfti að fresta tendrun jólaljósa síðastliðinn sunnudag. Ákveðið hefur verið að halda þess í stað aðventustund við jólatrén á Hellissandi kl. 15:30 og í Ólafsvík kl. 16:30. Jólasveinar mæta á svæðið og gleðja börnin, auk þess sem Trausti Leó Gunnarsson og Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir syngja nokkur vel valin jólalög. Stykkishólmur - sunnudagur 8. desember Snæfell mætir Selfossi í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Dalabyggð - þriðjudaguri 10. desember Opið hús hjá Rauða krossinum að Vesturbraut 12. Búðardalsdeild Rauða krossins langar að auka mannlífið í Dölum og ætlar að hafa opið hús alla þriðjudaga í desemb- er fram að jólum, milli kl. 15:00 og 18:00. Tækifæri til að koma saman og njóta, hitta aðra og spjalla saman. Eina sem þarf að gera er að mæta á staðinn og njóta samverunnar. Allir velkomnir. Ljósakrossar á leiði Vandaðir díóðuljósakrossar á leiði. Margir litir. Bæði til 32 volta og 24 volta. Upplýsingar á mariajona13@ gmail.com. Borgarnesdagatalið Borgarnes- d a g a t a l - ið 2020 er vettdaga- tal með 13 m y n d u m úr Borgar- nesi. Skoða má mynd- irnar og fá upplýsing- ar á www. hvitatravel.is/dagatal. Dagatalið fæst einnig á Olís í Borgarnesi. Velkomin í FEBBN Allir sem verða 60 ára á árinu og eldri eru velkomnir í Félag eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni. Tökum vel á móti ykkur, enginn er gamall þótt hann/hún sé 60 ára eða eldri. Hafið samband á natfengið sigunna@sim- net.is og gefið upp nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer. Einnig má hafa samband í síma 893-5872. Á döfinni Nýfæddir Vestlendingar Markaðstorg Vesturlands TIL SÖLU 27. nóvember. Stúlka. Þyngd: 3.720 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Marta Maciulewicz og Axel Kristinn Dav- íðsson, Ólafsvík. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is Símenntunarmiðstöðin á vesturlandi ætlar að fara af stað tilraunaverkefni, að vera með reglubundin skyndihjálparnám- skeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þá geta fyrirtæki sent starfsfólkið sitt á námskeið þegar hentar og í nokkrum hollum. Námskeiðin eru kennd bæði á ensku og íslensku. Nú standa skráningar yfir fyrir fyrstu námskeiðin Endilega kíkið inn á : https://simenntun.is/nam/ Námskeiðið kostar 15.000 kr. á mann en 10 % afsláttur er gefin ef fyrirtæki senda 5 eða fleiri. Námskeiðin eru styrkt af starfsmenntasjóðunum. Nánari upplýsingar má fá hjá evakaren@simenntun.is Er ekki komin tími á skyndihjálparnámskeið hjá þínum vinnustað? SK ES SU H O R N 2 01 9 1. desember. Stúlka. Þyngd: 3.670 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Bjarn- veig Birta Bjarnadóttir og Pét- ur Freyr Sigurjónsson, Reykjavík. Ljósmóðir: Elísabet Harles. 1. desember. Drengur. Þyngd: 3.522 gr. Lengd: 49,5 cm. Foreldrar: Alda Björk Einarsdóttir og Guðjón Valgeir Bjarkason, Akranesi. Ljós- móðir: Árdís Kjartansdóttir. ANNAð

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.