Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - sep. 2019, Side 47

Læknablaðið - sep. 2019, Side 47
LÆKNAblaðið 2019/105 407 efnum. Þessir læknar eru einnig virkir við að halda sérfræðilæknum á tánum með flóknum og erfiðum spurningum.“ Það sé krefjandi fyrir sérfræðilækna að vera með slíka sérnámslækna í handleiðslu. Hann bendir í sjötta lagi á að hreyfan- leiki sérfræðilækna hafi aukist í heiminum sem auðveldi sérnámið. Hingað til lands komi erlendir sérfræðingar til starfa sem hefur kennslugildi fyrir sérnámslækna á Landspítala. „Auk þess munum við áfram gera kröfu um að sérnámslæknar á Íslandi taki minnst sex mánaða námstíma erlendis.“ Hann segir tækifærin mörg til þess. „Við gerum ráð fyrir að margir taki 1-2 ár af sérnámstíma sínum erlendis.“ Það nægi til að víkka sjóndeildarhringinn og koma fersk að verkum Landspítala. Kennt hér frá 2002 Bráðalækningar hafa verið kenndar við Landspítala samkvæmt námskrá allt frá árinu 2002. Námið hefur þróast og haustið 2016 hófst kennsla samkvæmt námskrá Royal College of Emergency Medicine. Hjalti segir fyrstu þrjú árin kjarnanám kennd í samvinnu við svæfinga- og gjör- gæsludeild og lyflækningadeild frá árinu 2017. „Með þessu næst fram betri skilningur á störfum hinna stéttanna og samþætting í kennslunni.“ Nemendurnir geti að þeim loknum fengið þau metin erlendis. „Það verður örugglega þannig að einhverjir kjósa að taka allt námið erlendis.“ Hjalti segir námsframvinduna skráða. Fulltrúar frá Bretlandi tryggi gæðin. „Við höfum breytt öllum skilgreiningum þannig að ekki er hægt að flytjast á milli ára fyrr en kröfum hvers þeirra hefur verið svarað.“ Hann segir að rétt eins og í Bretlandi þurfi allir sérnámslæknar að innleiða breytingar á deildum sínum og fylgjast með mælingum um að þeir hafi bætt starfsemina. Strangt inntökuferli Hjalti segir ráðningarferlið í sérnámið strangt. „Umsækjendur koma í formleg viðtöl. Við förum yfir feril þeirra, leggj- um fyrir þau klínísk tilfelli og förum yfir siðferðisleg vandamál í þriðju prófraun- inni. Umsækjendum er svo boðin staða eftir mælanlegri frammistöðu. Því eins og við vitum er íslenskt samfélag lítið og læknasamfélagið enn minna og því hætta á frændhygli, þannig að við leggjum mikla áherslu á fagleg vinnubrögð við ráðningar þannig að við fáum alltaf þann hæfasta til að sinna verkinu.“ Allir sérnámslæknar þurfi að standast þrjú skrifleg og eitt verklegt próf. „Þessi próf hafa verið gerð á vegum Bretanna, en við höldum þau hér á landi í samvinnu við Prófamiðstöð háskólans. Það er ánægju- legt að segja frá því að þrátt fyrir að fallið hafi verið hátt í 60% meðal þeirra sem þreyta fyrsta prófið í Bretlandi hafa allir sérnámslæknar á Íslandi í ár og í fyrra náð prófinu,“ segir hann. „Við höfum því fulla trú á því að þetta fólk nái í gegnum nálar- augað og ljúki námi í bráðalækningum.“ Hjalti Már Björnsson bráðalæknir er kennslustjóri nýsamþykkts sérnáms í bráðalækningum á Landspítala. Mynd/gag Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.