Læknablaðið - Sep 2019, Page 47
LÆKNAblaðið 2019/105 407
efnum. Þessir læknar eru einnig virkir við
að halda sérfræðilæknum á tánum með
flóknum og erfiðum spurningum.“ Það sé
krefjandi fyrir sérfræðilækna að vera með
slíka sérnámslækna í handleiðslu.
Hann bendir í sjötta lagi á að hreyfan-
leiki sérfræðilækna hafi aukist í heiminum
sem auðveldi sérnámið. Hingað til lands
komi erlendir sérfræðingar til starfa sem
hefur kennslugildi fyrir sérnámslækna á
Landspítala.
„Auk þess munum við áfram gera
kröfu um að sérnámslæknar á Íslandi taki
minnst sex mánaða námstíma erlendis.“
Hann segir tækifærin mörg til þess. „Við
gerum ráð fyrir að margir taki 1-2 ár af
sérnámstíma sínum erlendis.“ Það nægi
til að víkka sjóndeildarhringinn og koma
fersk að verkum Landspítala.
Kennt hér frá 2002
Bráðalækningar hafa verið kenndar við
Landspítala samkvæmt námskrá allt frá
árinu 2002. Námið hefur þróast og haustið
2016 hófst kennsla samkvæmt námskrá
Royal College of Emergency Medicine.
Hjalti segir fyrstu þrjú árin kjarnanám
kennd í samvinnu við svæfinga- og gjör-
gæsludeild og lyflækningadeild frá árinu
2017.
„Með þessu næst fram betri skilningur
á störfum hinna stéttanna og samþætting
í kennslunni.“ Nemendurnir geti að þeim
loknum fengið þau metin erlendis. „Það
verður örugglega þannig að einhverjir
kjósa að taka allt námið erlendis.“
Hjalti segir námsframvinduna skráða.
Fulltrúar frá Bretlandi tryggi gæðin.
„Við höfum breytt öllum skilgreiningum
þannig að ekki er hægt að flytjast á milli
ára fyrr en kröfum hvers þeirra hefur
verið svarað.“ Hann segir að rétt eins og
í Bretlandi þurfi allir sérnámslæknar að
innleiða breytingar á deildum sínum og
fylgjast með mælingum um að þeir hafi
bætt starfsemina.
Strangt inntökuferli
Hjalti segir ráðningarferlið í sérnámið
strangt. „Umsækjendur koma í formleg
viðtöl. Við förum yfir feril þeirra, leggj-
um fyrir þau klínísk tilfelli og förum yfir
siðferðisleg vandamál í þriðju prófraun-
inni. Umsækjendum er svo boðin staða
eftir mælanlegri frammistöðu. Því eins
og við vitum er íslenskt samfélag lítið og
læknasamfélagið enn minna og því hætta
á frændhygli, þannig að við leggjum mikla
áherslu á fagleg vinnubrögð við ráðningar
þannig að við fáum alltaf þann hæfasta til
að sinna verkinu.“
Allir sérnámslæknar þurfi að standast
þrjú skrifleg og eitt verklegt próf. „Þessi
próf hafa verið gerð á vegum Bretanna, en
við höldum þau hér á landi í samvinnu við
Prófamiðstöð háskólans. Það er ánægju-
legt að segja frá því að þrátt fyrir að fallið
hafi verið hátt í 60% meðal þeirra sem
þreyta fyrsta prófið í Bretlandi hafa allir
sérnámslæknar á Íslandi í ár og í fyrra náð
prófinu,“ segir hann. „Við höfum því fulla
trú á því að þetta fólk nái í gegnum nálar-
augað og ljúki námi í bráðalækningum.“
Hjalti Már Björnsson bráðalæknir er kennslustjóri nýsamþykkts sérnáms í bráðalækningum á Landspítala. Mynd/gag
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins