Fréttablaðið - 06.03.2020, Síða 10

Fréttablaðið - 06.03.2020, Síða 10
HAFNARFJÖRÐUR Miklar deilur standa nú yfir vegna sumaropnana leikskóla í Hafnarfirði sem fræðslu­ ráð samþykkti 12. febrúar síðast­ liðinn. Und irsk r if t a list i leik skóla­ kennara, þar sem opnununum var harðlega mótmælt, var af hentur fræðsluráði þann 26. febrúar og nú safnar stuðningsfólk undirskriftum á netinu. „Þetta er skref í að færa Hafnar­ fjarðarbæ til nútímans og verða við þörfum nútímafjölskyldna. Sam­ vera með börnunum okkar skiptir höfuðmáli og það er ekki hægt að gera þá kröfu á vinnumarkaðinn að fá frí ár eftir ár í júlí,“ segir Helga Reynisdóttir, ljósmóðir og íbúi í Hafnarfirði, sem hratt undirskrifta­ söfnuninni nýlega af stað og 136 hafa skrifað undir. 390 starfsmenn leikskóla Hafn­ arfjarðar skrifuðu undir áskorun til fræðsluráðs um að endurskoða samþykktina. Í máli þeirra kom fram að leikskólar væru skilgreindir sem fyrsta skólastigið og því yrði að vera upphaf og endir á skólaári. Faglegt starf gæti raskast til lengri tíma og miðað við núverandi aðstæður væri ekki hægt að taka inn ný börn fyrr en um miðjan september. Nú þegar væri mönnun leikskólakennara erfið og starfs­ mannavelta mikil, þessi ákvörðun gæti gert mönnun enn flóknari. Þá hefur Félag leikskólakenn­ ara ályktað um málið og mótmælt sumaropnunum. „Vilji Hafnar­ fjörður eða önnur sveitar fé lög veita for eldrum þjónustu sem tekur til lit til þarfa þeirra hvað varðar töku sumar or lofs verður að finna aðrar lausnir. Leik skóla stigið, sem er fyrsta skóla stigið, hefur ekkert rými til þess að taka við slíku verk efni,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu. „Ég skil vel að leikskólakennarar séu smeykir við þessar breytingar en alls ekki skortinn á vilja til að setjast niður og skoða málið. Hlut­ irnir eru einfaldlega slegnir út af borðinu án þess að ræða þá og finnst mér það mjög miður,“ segir Helga. Kveðst Helga telja að fræðsluráð hafi unnið málið af heilindum og með hag barnanna að leiðarljósi. „Breytingar eru alltaf f lóknar en þetta er yfirstíganlegt og hefur virkað vel í nágrannalöndum og öðrum bæjarfélögum. Nú er það bara að vinna í útfærslu og sjá hvort það sé ekki hægt að lenda þessu svo að allir séu sáttir,“ segir Helga. Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs, bendir á að ákvörð­ unin hafi verið gerð eftir könnun meðal foreldra. Sú niðurstaða hafi verið afgerandi, 80 prósent hafi verið fylgjandi sumaropnun. Aðspurð um samráð við leikskóla­ starfsfólk segir hún að könnun hafi verið gerð meðal þess. „Niðurstaðan var sú að 60 prósent starfsmanna vildu taka frí sitt í júlí en aðrir í júní og ágúst og fjölmargir svöruðu því í opnum svörum að þeir gætu ekki tekið frí með maka sínum eins og fyrirkomulagið er í dag og þætti það ekki gott,“ segir Kristín. Að sögn Kristínar skiptir afstaða starfsfólks og þær athugasemdir sem fram hafa komið fræðsluráð máli. Unnið verði áfram með málið út frá ábendingum. „Settur var af stað starfshópur sem hefur það markmið að útfæra breytinguna og taka tillit til þeirra þátta sem mikilvægt er að útfæra vel,“ segir Kristín. Í hópnum sitja fulltrúar starfsfólks, foreldra og annarra viðkomandi. Framkvæmdin tekur gildi sum­ arið 2021 og verður árið nýtt í að vinna útfærslu. „Breytingin er bæði fyrir þá sem þiggja þjónustuna og þá sem veita hana að mínu mati,“ segir Kristín. kristinnhaukur@frettabladid.is 6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Undirskriftir með og gegn sumaropnunum Deilur eru í Hafnarfirði vegna sumaropnana leikskóla sem tilkynntar voru nýlega. 390 starfsmenn leikskóla skiluðu undirskriftalista gegn ákvörðuninni en nú safna foreldrar undirskriftum til stuðnings því að leikskólar verði opnir. Breytingin er bæði fyrir þá sem þiggja þjónustuna og þá sem veita hana að mínu mati. Kristín M. Thoroddsen formaður fræðsluráðs Þinn stuðningur skiptir máli! UPP MEÐ SOKKANA! Kauptu sokkka á mottumars.is og á sölustöðum um land allt. Mannskætt óveður í Suðurríkjunum Mikil eyðilegging varð þegar hvirfilbyljir fóru yfir Tennessee og nærliggjandi ríki í Bandaríkjunum á síðustu dögum. Minnst 25 létust og 150 slösuðust í veðrinu, þar á meðal börn. Eignatjón er einnig verulegt og eru hundruð húsa ónýt eftir byljina sem náðu allt að 280 kílómetra hraða á klukkustund. MYND/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.