Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 4

Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 4
i m - ií f « T j‘ ; Handverkib, upphaf og endir listar Eftir Hatldór Laxness Þegar ég var í Ólafsvík 1936, var ég gerður kunnugur gamalli konu sem vann að fiski. Henni og bónda hennar hafði verið stíað sundur samkvæmt lögum, fyrir meiren aldarfjórðúngi, af því bóndinn var holdsvcikur. Hann var sendur suður á Laugarnesspítala sem þá var stofnaður fyrir ekki allaungu. Þau hjón sáust ekki framar. En konan var sá listamaður í því að hlaða fiski að hún átti sér eingan líka þar í plássi né öðrum nálægum, og fólk gerði sér ferð niður á stakkstæðin á kvöldin til að virða fyrir sér fiskihlaðana konunnar og dást að þeirn. Með því ég var staddur í plássinu iim hávetur átti ég þess ekki kost að sjá hana vinna á stakkstæði, en ég sá fiskihlaða eftir hana í pakkhúsi og þar var eitt þeirra listaverka sem ég hef ávalt síðan verið hróðugur af að hafa augum leitt, þó ég kunni ekki leingur að Iýsa því rétt, og hafi reyndar aldrei kunnað, enda vantar mig þekkíngu til að ræða þessa listgrein. En ég ímynda mér að ég muni enn eftir sér- stakri vend eða munstri í hleðslunni og mjúkum búng- andi fláa sem auðkendi hennar handaverk frá öðrum fiskihlöðum. Slík endurminníng, þó óljós sé, mun láta ókunnuglega í eyrum ýmsra á tímum sem á því þekkjast að annarhver maður er óðamála um list en nokkru færri hafa gert sér Ijóst hvar list byrjar eða endar. Þess tíma er skemst að minnast að hugtakið var orðið svo takmarkað hérna á íslandi, og orðið „Iist“ virtist hafa hlotið svo þraunga merkíngu, að ef menn heyrðu það datt þeim helst ekki annað í hug en málverk gert með olíulitum. Fræg lista- kona íslensk sem hafði í æsku stundað grafík (,,gráfíkju“), en slík list var nefnd svartlist, og orkaði altaðþví einsog líkamleg óþægindi á flesta sem nafnið heyrðu, hún fór þá að stunda olíumálverk til að skera sig ekki úr í þjóð- félaginu. Svo þú ert farin að stunda olíuliti, varð mér að orði: hvernig kantu við það? Konan svarar og grettir sig: Æ það er einsog að vera að grufla í skósvertu. Þó fiskstökkun hafi aldrei komist í metorð sem listgrein, er hitt sönnu nær að list byrjar hvorki né endar í olíu- litum fremur en fiskstökkun. A okkar tíð þegar verk mannshandarinnar hefur verið lagt niður mestan part, nema þá til að þrýsta á hnapp eða skifta um gíra, eða skrúfa ró með sama hnykk allan daginn einsog í Chaplínsmyndinni frægu, þá er þess ekki að vænta Ieingur að fólk geti haldið upprunalegum teingsl- um við list í hversdagslegu lífi sínu. Ekki ber þetta svo að skilja að talað hafi verið af meiri speki um list áðuren vélarnar komu. En meðan hugur og hönd réðu sérhverju verki í sameiníngu, það er að segja, alt verk manna var handverk, þá var list ekki einusinni sérstakt hugtak, því síður að hún ætti heima í heimspekilegum skilgreiníngum og formúlum. Eg held að yfirleitt megi segja að list sé alt verk þar sem mannshöndin er í snertíngu við smíðis- efnið að handverkfæri einu sem miðli. Ef þetta þrent sam- verkar hvað öðru, hrærast öll mannleg vinnubrögð svosem af sjálfu sér í lögmálum listarinnar, hvortheldur verið er að smíða einfaldan búshlut einsog ask eða spón, klyfbera högld eða sylgju, ellegar fínni handíðir einsog sauma vegg- tjöld, vefa sálún eða gera skartgripi. Til þess að ná snildar- bragði þarf að skynja rétt hlutföll í hverju viðfángsefni, og hafa feingið þeirrar háttvísi að auk sem til þarf að gera hlut aðlaðandi og er hið vandskýrða innra lögboð allrar smíði; og hver sem nær í skottið á þeim neista má þykjast góður, einsog maður nokkur sagði við mig þegar ég var únglíngur. Jafnvel einfaldur smíðisgripur geymir sál smiðs síns, og er merkilegt ef satt er að ættarmót geti geingið frá föður til sonar í smíðisgripum þeirra, jafnvel án þess þeir hefðu nokkurntíma kynst persónulega verki hvor 4 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.