Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 7

Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 7
Kristján. Eldjárn: Handaverk Fjatla Eyvindar Útilegumenn hafa verið nokkrir á Islandi á fyrri öldum og þó hvergi nærri eins margir og ætla mætti af fyrirferð þeirra í þjóðsögum og þjóðtrú. Enginn þeirra kemst í hálfkvisti við Fjalla-Eyvind Jónsson, sem hafðist við á fjöllum uppi meira og minna um tuttugu ára skeið um og upp úr miðri 18. öld. Hann er hinn raunverulegi og klassíski útilegumaður og reyndar ein af þjóðhetjum Is- lendinga, þótt þjófur væri, fyrst í byggð og síðan á fjöll- um. Þær syndir eru honum löngu fyrirgefnar, sem annað- hvort væri, því að hann hefur auðgað hugmyndaheim þjóðarinnar um ríflega þau kindarverð sem hann tók í fyrirframgreiðslu. Þekktir eru nokkrir kofar Eyvindar og Höllu konu hans inni á reginöræfum, og má lesa um þá í góðri bók Olafs Briem, Utilegumenn og auðar tóttir. Þetta eru eins og litlir bæir gerðir af hagleik og útsjónarsemi. Kofarnir eru byggðir við vatnsból, eins og nærri má geta, og Eyvindur hefur hagað því svo til að hægt væri að komast í vatnið án þess að fara út í kuldann. í Hvannalindum fyrir norðan Vatnajökul er eitt þessara bæjarkríla, sem lítill vafi er á að Eyvindur hefur byggt, þótt engar sagnir séu um það. Bærinn var rannsakaður sumarið 1941. Hann er í hraun- jaðri, og úr honum rangali niður í lind fyrir neðan. Þarna var ógrynni af beinum kinda og hrossa, en engir hlutir sem telja mætti smíðisgripi. En stór íhvolf blágrýtishella var þar, og hefur mátt nota hana sem ílát eða pott. Og herðablað úr hesti var þar einnig, tiltelgt svo að líktist frumstæðri sleif. Steinaldartæki þessi sjást hér á ljósmynd. Hellan á enn að vera á sínum stað í Hvannalindum, en beinið er í Þjóðminjasafni. Allar heimildir eru samsaga um að Eyvindur hafi verið verkmaður góður og hagur vel, enda var listgáfa í ætt hans. Grímur Jónsson bóndi í Skipholti, kallaður Grímur stúdent, var bróðursonur hans, merkur maður, mjög list- hagur á málverk, og eru handaverk hans nokkur þekkt hér í Þjóðminjasafni og víðar. Um Eyvind segir Jón Espó- HUGUR OG HÖND 7

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.