Hugur og hönd - 01.06.1974, Síða 10
sem ætt varð á vegi þeirra, rætur, grös, ber, einnig fuglar
og egg. Slíkt hið sama gerðu fátæklingar í byggðum, hirtu
allt sem ætt var. Ollu merkilegra er til þess að hugsa
hvernig þau hafa farið að því að gera sér verkfæri og
klæðnað og allt sem óhjákvæmilegt er að hafa milli handa
í daglegu lífi. Þar hefur sauðkindin verið mestur bjarg-
vættur. Alkunna er að Islendingar fyrr á tíð gjörnýttu
sauðkindina. Allt var til einhvers nýtt nema kannski
klaufirnar. Á sama hátt gjörnýta Lappar hreindýrið.
Nauðsynleg ílát hafa þau sennilega að mestu leyti gert úr
tágum. En þótt allt sé til tínt, sem hægt var að bjargast
við, og eins þótt um sé að ræða sérfræðing í útilegumanna-
lífi eins og Eyvind Jónsson, verður þó alltaf nokkuð úr
byggð að hafa. Hníflaus og pottlaus lifir enginn maður
lengi á fjöllum, jafnvel ekki Fjalla-Eyvindur. Hníflaus er
líflaus, segir máltækið. Þegar hann var tekinn í Innra-
Hreysi 1772 var þar auk skinna, kjöts og mörs, beðjar-
dýna, tágakarfa, páll, pottur og axarkjagg, og sumt af því
hefur hann fengið í byggðum með einhverjum hætti. Eld
hefur hann kunnað að kveikja eins og hver annar stein-
aldarmaður.
„Allir verða í nauðunum nokkurn veginn að láta“. Þess-
um málshætti var Eyvindi tamt að bregða fyrir sig. Tví-
mælalaust hefur hann verið afreksmaður á sinn hátt. Hann
átti ekki rétt á neinu í byggðum nema tugthúsþrælkun.
Að því leyti var ómælanlegur munur á lífsbaráttu hans
og fátæklinganna í byggðum. En það er ekki alveg víst
að hann hafi alltaf haft minna fyrir framan hendur en
þeir. Sú var löngum raunin að þeir þurftu líka að horfa
fram á langan og grimman vetur með ónógan forða. En
þeirra líf var ekki efni í sögur eins og líf Eyvindar. Líf
hans hefur verið gert að grimmilegu ævintýri. En það
má einnig líta á það sem eins konar vistfræðilega tilraun
í frummannslífi. Hvert er þanþol manneskjunnar, með
lágmark tækni og tækja, við þau skilyrði sem öræfi ís-
lands hafa upp á að bjóða? Líf Fjalla-Eyvindar er nokk-
urt svar við spurningunni, en að vísu mundu fáir eftir
leika.
10
HUGUR OG HÖND