Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 14
Lopajakki
Meðal karlmannsstœrð:
Sídd frá öxl 72 cm.
Ermalengd 50 cm.
Vídd um 96 cm.
Efni: Plötulo'pi,
650 gr sauðsvart — ss.
100 gr mórautt — mr.
100 gr hvítt — hv.
Prjónað er úr lopanum þríþættum.
Sokkaprjónar nr. 4, heklunál nr. 4-5,
2 hringprjónar, annar um 70 cm á
lengd, hinn ermaprjónn, nr. 5—5%.
Þensla á sléttu prjóni — 12 1 x 17 umf
= 10x10 cm. Byrjað er á hægri ermi
og endað á þeirri vinstri. Fitjið upp
með ss 32 1 á pr nr 4. Prj 1 sl, 1 br,
12 umf. Nú er aukið í í 4. hverja
lykkju, þá verða 40 1 á prjónunum.
Skiptið nú um prjóna, takið erma-
prjón nr 5 og prj 1 umf sl. Nú er prj
með mr. 1 umf sl og 1 umf br (garð-
ur), síðan 1 garður hv, þá eru prj sl
með ss 26 cm. Næst er mislitum
spotta brugðið um 2 miðlykkjur und-
ir hendi, og aukið í sitt hvoru megin
v'ð þær 6 sinnum í 4. hverri umf. Þá
eru á prjóninrm 52 1. Þegar ermin
mælist 50 cm er byrjað á bolnum,
14
sem er allur prj fram og aftur með
garðaprjóni. Þegar komið er að mið-
lykkjum undir hendi, er önnur prj og
55 1 fitjaðar upp, snúið við og prj út
prjóninn með langa hringprjóninum,
þá eru aftur 55 1 fitjaðar upp. Nú eru
162 1 á prjóninum. Prj nú 7 garða,
síðan munstur, (ath. að byrja á því
á réttunni). 3 garðar mr 2 garðar hv
1 garður ss 1 garður mr 1 garður ss
2 garðar hv 3 garðar mr. Prj nú 9
garða ss. Nú er fellt af á réttu 81 1
prj út prjóninn, snúið við og prj að
affellingu, þá er 81 1 fitjuð upp (ath.
að fitja jafnfast upp og affellingin er
— boðangarnir mætast). Nú eru prj
9 garðar ss, síðan er munsturbekkur
endurtekinn, þá 7 garðar ss. Fellið nú
55 1 af hvoru megin, þá eru eftir 52
1, þær eru settar á ermaprjón. Merkið
nú miðlykkjurnar 2 undir hendi.
Prj sl í hring og takið úr sitt hvoru
megin við miðlykkjurnar í 4. hverri
umf 6 sinnum. Þá eru eftir 40 1 á
prjóninum. Nú eru prj 26 cm sl, síðan
1 garðui' hv 1 garðui' mr. Prj nú 1
umf sl ss, þá sett á sokkaprjóna og
4. hver 1 tekin úr. Eftir eru nú á
prjónunum 32 1. Prj 1 sl, 1 br, 12
umf, þá fellt af (ath. jafnfast og upp-
fitjunin á hinni erminni). Saumið nú
hliðarsauma vel í höndum, byrjað að
neðan.
Leggið peysuna nú á borð og þræðið
hálsmál ca 40 cm í hring. Kringið 5
cm að framan, lítið að aftan, að
munstri á öxlum. Stingið nú í vél
tvisvar eftir þræðingu (klippið ekki
strax). Takið nú upp 50 1 utan við
þennan saum á 3 sokkaprjóna, 1 á
bakið, 2 sitt hvoru megin við peysu
jaðrana og jafnið 1 á þá. Nú er prj
fram og aftur 5 garðar með ss. Á réttu
eru 2 fyrstu og 2 síðustu 1 prj saman,
til þess að kanturinn verði aflíðandi.
Eftir 5. garðinn er fellt af. Nú er
klippt innan úr hálsmáli og saumað
vel niður í höndum. Heklaðar eru 3
umf með fastahekli, byrjað neðst á
hægri boðung og endað á þeim vinstri.
2 fastal í sama gat farið yfir 2 1, 2
fastal í sama gat o. s. frv. 1. umf mr,
2. umf hv (2 fastal koma þá á milli
þeirra mr) 3. umf ss (koma þá 2
fastal á milli þeirra hv). Gangið frá
öllum endum, festið 5 krókapör og
látið boðangana mætast rétt.
Jóhanna Hjaltadóttir.
HUGUR OG HÖND