Hugur og hönd - 01.06.1974, Side 19
Vesti
EFNI: 100 gr. sauðsvart tvinnað loð-
band og lítið eitt af 5 öðrum litum.
Ileklið 170 loftl með heklunál nr. 2^2.
1. umferð: 19 fastar lykkjur, 2 fastar
lykkjur í 20. lykkjuna, x 39 fastar
lykkjur, 2 fastar lykkjur í næstu
lykkju x, endurt frá x til x 3svar
sinnum, 20 fastar lykkjur.
í þessa röð af föstum lykkjum er nú
heklað með mismunandi litum og
hekli þar til kraginn er 8—10 sm
breiður, og hekla alltaf 3, 4 eða 5
loftl í hornunum, eftir því hvort umf
. er hekluð í föstum lykkjum, stuðlum
eða tvöf. stuðlum.
I. , 2. og 3ja umferð: fastar lykkjur
(mismunandi litir).
4. umferð: stuðlar.
5. uviferð: fastar lykkjur.
6. umferð: 2 stuðlar og 1 loftlykkja i
hverjar 3 lykkjur í umf á undan.
7. umferð: xx sl. upp á nál, garnið sótt
inn um bilið á milli stuðlaparanna í
fyrri umf, þetta endurt 4 sinnum, sl.
upp á og garnið dregið í gegnum allar
lykkjurnar á nálinni, 3 loftl (Ananas-
mynstur), þetta er endurt umf út.
8. umferð: 3 tvöfaldir stuðlar heklaðir
í bilið, sem myndast á milli snúðanna
í fyrri umferð.
9. umferð: fastar lykkjur.
10. umferð: 1 tvöfaldur stuðull í aðra
hvora lykkju í síðustu umferð.
II. umferð: 2 stuðlar í bilið á milli
stuðlanna í fyrri umferð.
1 12. umferð: fastar lykkjur.
13. umferð: x 3 hálfir stuðlar heklaðir
í 3 lykkjur í umf á undan (síðasta
lykkjan í hverjum stuðli er geymd á
nálinni) og síðan er bandið dregið í
gegnum þær 4 lykkjur sem eru á nál-
inni, 2 loftl x. Frá x til x er endurt
umf út.
llf. umferð: 3 fastar lykkjur eru hekl-
aðar yfir loftlykkjubogana í nmf á
undan.
Nú er kraginn búinn, og er nú hekl-
að áfram í hvern boðang, 16 umf
stuðlar í grunnlit, síðan einnig 16
umf stuðlar í bakhliðina. Þá eru
boðangar og bakhlið sameinaðir með
10 loftl í hverri hlið, og áfram
eru svo heklaðar 6 umf stuðlar
yfir allt verkið, þ. e. ca. 150 lykkjur.
t næstu umf er svo aukið í 1 stuðli
í 15. hvern stuðul. Síðan er gerður
kantur úr mismunandi litum eins og
í hálsmálinu, en aðeins mjórri. Að
endingu eru svo heklaðar 6 umf
fastar lykkjur á boðangana báða að
framan, og gerð 5 hnappagöt á vinstri
boðang, en 5 tintölur festar á hinn,
fastar lykkjur heklaðar kringum
handveginn og neðan á vestið, en
smátungur (1 föst lykkja x3 stuðlar
1 loftl 3 stuðlar x í 3ju hverja
lykkju) heklaðar meðfram mynstraða
heklinu á öxlunum.
Þetta vesti er ca 75 cm í mittismál,
en eigi það að vera stærra, má hafa
loftlykkjurnar sem sameina bak og
boðanga fleiri, og eins þá færri eigi
vestið að vera minna.
Helga Egilson.
HUGUB OG HOND
19